Hætt við skerðingu á innflutningskvóta fyrir kjötvörur

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hefur hætt við áform um að umreikna toll­frjálsa inn­flutn­ings­kvóta fyrir kjöt­vörur frá Evr­ópu­sam­band­inu yfir í ígildi kjöts með beini, en slíkur umreikn­ingur hefði skert toll­frjálsan inn­flutn­ing um allt að þriðj­ung.

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hefur hætt við áform um að umreikna toll­frjálsa inn­flutn­ings­kvóta fyrir kjöt­vörur frá Evr­ópu­sam­band­inu yfir í ígildi kjöts með beini. Í til­kynn­ingu frá Félagi atvinnu­rek­enda segir að þetta sé mikið fagn­að­ar­efni fyrir bæði neyt­endur og inn­flytj­endur en slíkur umreikn­ingur hefði skert toll­frjálsan inn­flutn­ing um allt að þriðj­ungi sam­kvæmt félag­inu.

Umreikningur til að koma til móts við áhrif tollasamnings við ESB

Íslensk stjórn­völd und­ir­rit­uðu tolla­samn­ing við Evr­ópu­sam­bandið um land­bún­að­ar­af­urðir 17. sept­em­ber 2015. Samn­ing­ur­inn tók gildi 1. maí sl. og tók við af tolla­samn­ingi sem gerður var við Evr­ópu­sam­bandið árið 2007. Í apríl 2016 skip­aði þáver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra starfs­hóp sem hafði það hlut­verk að kanna áhrif tolla­samn­ings við ESB, þar sem lagt var mat á hvernig ein­staka búgreinar gætu tek­ist á við afleið­ingar samn­ings­ins. Í starfs­hópnum áttu sæti full­trúar frá Bænda­sam­tökum Íslands og búgreina­fé­lögum, Samtökum iðn­að­ar­ins, utan­rík­is­ráðu­neyt­inu auk full­trúa sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Tveimur mán­uðum síðar skil­aði starfs­hóp­ur­inn af sér skýrslu þar sem fram komu til­lögur í átta liðum.

Í maí 2018 kom til­kynn­ing frá ráðu­neyt­inu um af þeim átta til­lögum sem starfs­hóp­ur­inn hafði lagt til væru tvær til­lag­anna nú þegar komnar til fram­kvæmda, tvær aðrar langt komnar en um fjórar hafði ekki verið tekin ákvörðun. Önnur til­lag­anna sem langt var á leið komin var til­laga um að við útreikn­ing á magni toll­kvóta við inn­flutn­ing væri miðað við ígildi kjöts með beini, í sam­ræmi við alþjóð­legar skuld­bind­ing­unni. Samkvæmt til­kynn­ing­unni var unnið að því að koma þessu til fram­kvæmda í kjöl­far þess að nýir samn­ingar við ESB hafði tekið gildi.

Tolla­samn­ing­ur­inn við ESB, sem sam­þykktur var í maí á síð­asta ári, stækkar toll­frjálsa inn­flutn­ings­kvóta fyrir kjöt og sam­kvæmt skýrslu starfs­hóps­ins er til­lög­urnar lagðar fram til að koma til­ ­móts við áhrif tolla­samn­ings­ins. Í ofan­greindri til­lögu myndi útreikn­ing­ur­inn virka þannig að ef til dæmis eitt kíló af bein­lausu kjöti væri inn­flutt til lands­ins þá yrði reiknað hversu þungt kjötið væri með beini og sú þyngd tekin af kvóta inn­flytj­anda kjöts­ins, en til að flytja inn kjöt til lands­ins þurfa inn­flytj­endur að kaupa inn­flutn­ings­kvóta. Samkvæmt Félagi atvinnu­rek­enda hefði þessi umreikn­ingur skert toll­frjálsan inn­flutn­ing um allt að þriðj­ung.

Félag atvinnu­rek­enda gagn­rýndi áformin um skerð­ingu kvót­anna með umreikn­ingi í erindi til ráðu­neyt­is­ins í byrjun maí á síð­asta ári. Í til­kynn­ingu frá FA segir að félagið hafi bent á að hvergi sé kveðið á um að toll­frjálsir inn­flutn­ings­kvótar fyrir kjöt­vöru skuli mið­aðir við kjöt með beini. Samn­ing­ur­inn tæki því til hvort heldur er inn­flutn­ings á úrbein­uðu kjöti eða kjöti með beini. Félagið benti jafn­framt á að slíkir inn­flutn­ings­kvótar fyrir kjöt, byggðir á milli­ríkja­samn­ingum, hefðu verið í gildi á Íslandi í 23 ár, eða frá því WTO-samn­ing­ur­inn tók gildi árið 1995. Alla tíð hefði verið miðað við inn­flutn­ing á kjöti hvort heldur er með eða án beins.

Framkvæmd Evrópusambandsins breytt

Samkvæmt Félagi atvinnu­rek­enda bar ráðu­neytið fyrir sig að Evr­ópu­sam­bandið hefði við inn­flutn­ing á íslensku lamba­kjöti á toll­kvóta miðað við kjöt með beini. Í til­kynn­ingu Michaels Mann, sendi­herra Evr­ópu­sam­bands­ins á Íslandi, sem birt­ist á Facebook 14. maí, kom fram að hvað varð­aði allt annað kjöt, sem flutt væri út frá Íslandi til ESB á toll­frjálsum kvótum, væri miðað við nettó­vigt. Hins vegar væri í gildi und­an­tekn­ing vegna lamba­kjöts sem ætti sér „sögu­legar skýr­ingar“. 

Í svari ráðu­neyts­ins við bréfi félags­ins sem barst nú fyrir árs­lok, segir að nýlega hafi feng­ist þær upp­lýs­ingar frá Evr­ópu­sam­band­inu að fram­kvæmd­inni hvað varðar inn­flutn­ing kinda­kjöts hafi verið breytt og sé nú miðað við nettó­vigt í öllum til­vikum. „Þar af leið­andi gerir ráðu­neytið ekki ráð fyrir því að svo stöddu að fram­kvæmd­inni verði breytt frá því sem verið hefur hvað varðar ofan­greint,“ segir í svar­inu.

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, segir þessa nið­ur­stöðu fagn­að­ar­efni í til­kynn­ingu frá félag­inu „Það er afar jákvætt að Evr­ópu­sam­bandið hefur tekið af allan vafa um fram­kvæmd samn­ings­ins sín megin og þá standa engin rök til þess að breyta fram­kvæmd­inni á Íslandi. Umreikn­ing­ur­inn hefði skert veru­lega hag bæði neyt­enda og inn­flytj­enda. Nú blasir hins vegar við að það aukna fram­boð á inn­fluttu kjöti á hag­stæðu verði, sem samn­ing­ur­inn gaf fyr­ir­heit um, mun ganga eftir,“ segir Ólafur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár