Þrjú ný innanlandssmit – 112 í einangrun

Þrjú ný inn­an­lands­smit af kór­ónu­veirunni greindust hér á landi í gær og tvö í landamæra­skimun. 112 manns eru nú með COVID-19 og í ein­angrun.

Fjöldi þeirra sem greinst hefur með virkt smit af kór­ónu­veirunni hér á landi síð­ustu daga og er í ein­angrun er nú orð­inn 112 sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum COVID.is.

Þrjú ný til­felli greindust inn­an­lands í gær, öll hjá sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans. Þá greindust tvö virk smit í landamæra­skimun. Í gær voru 914 manns í sótt­kví en í dag er fjöld­inn kom­inn í 946. Einn er í önd­un­ar­vél á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans vegna sjúk­dóms­ins.

Þetta er mun minni fjöldi en í gær þegar sautján inn­lands­smit greindust og þrjú á landa­mær­unum.

581 sýni var tekið og greind hjá Land­spít­al­anum í gær. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem birtar voru á covid.is í morgun voru engin sýni tekin inn­an­lands hjá Íslenskri erfða­grein­ingu.

Af þeim sem eru með virkt smit eru flestir í ald­urs­hópnum 18-29 ára eða 42. Tíu á aldr­inum 13-17 ára eru með COVID-19 og eitt barn yngra en tólf ára.

Frá því að fyrsta smitið var greint hér á landi í lok febr­úar hafa 1.955 manns greinst með COVID-19. Tíu hafa lát­ist vegna sjúk­dóms­ins.

[links]Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í gær að fjölgun til­fella síð­ustu daga væri áhyggju­efni. Einnig væru alvar­leg veik­indi að aukast. „Við höfum verið að ræða hvort að þessi veira sé að veikj­ast – en ég held að það séu ekki merki um það. Við erum núna að fara að sjá alvar­leg veik­indi eins og við gerðum síð­asta vetur.“

Sagðist hann hafa spurst fyrir erlendis og að eng­inn teldi að veiran væri eitt­hvað veik­ari núna en áður. Það hafi því verið „veik von“ að sú væri raunin nú miðað við far­ald­ur­inn í vetur. Skýr­ing­una á því að alvar­leg veik­indi urðu ekki í upp­hafi þess­arar bylgju segir Þórólfur lík­lega þá að ungt fólk er í miklum meiri­hluta þeirra sem hafa sýkst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár