Alvarleg staða komin upp í deilum grunnskólakennara og sveitarfélaga

Alvarleg staða er komin upp í kjara­deilu grunn­skóla­kenn­ara og sveit­ar­fé­laga. 4.500 manna stétt hefur tví­vegis hafnað kjara­samn­ingum, og sveit­ar­fé­lög segj­ast ekki geta teygt sig lengra.

„Svona sterk skila­boð hafa ekki verið send í langan tíma,“ segir Páll Erlings­son, for­maður Kenn­ara­fé­lags Reykja­ness, í við­tali við Morg­un­blaðið í dag, og vísar til þeirrar stöðu sem nú er uppi í kjara­deilu Félags grunn­skóla­kenn­ara og sveit­ar­fé­laga en félags­menn hafa nú á skömmum tíma í tvígang fellt kjara­samn­ing. Samkvæmt honum áttu laun kenn­ara að hækka um 9 pró­sent á tveimur árum, en eins og mál standa nú eru engar við­ræður í gangi og alls óvíst hvenær hægt verður að reyna í þriðja sinn að ná samn­ingum sem kenn­arar geta sætt sig við.

„Ég vona að sjálf­sögðu það besta. En það er fullt af fólki sem er reiðu­búið til að gera ýmis­legt – maður veit ekki hvað verður. Það sem ég hef hins vegar mestar áhyggjur af er að ef ekk­ert lag­ast þá verður flótti úr stétt­inni,“ segir Páll í við­tali við Morg­un­blaðið.

Inga Rún Ólafs­dóttir, for­maður samn­inga­nefndar sveit­ar­fé­laga, segir stöð­una þrönga. Sveit­ar­fé­lög ráði ekki við frek­ari hækk­anir á launum, og því sé ekk­ert nýtt fram að færa í við­ræðum. Málin hafi marg­sinnis verið rædd, og nú sé stál í stál.

Um 57 pró­sent þeirra sem kusu um samn­ing­inn á mánu­dag­inn sögðu nei við honum, en 39 pró­sent vildu semja. Á kjör­skrá voru 4.513.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár