Rifta samningi við Fáfni um skipasmíði og krefjast bóta

Norsk skipa­smíða­stöð hefur rift samn­ingi við íslenska félagið Fáfni Offshore um smíði skips fyrir það. Hún ætlar að krefj­ast bóta og selja skipið, sem er ekki full­búið, upp í skuldir. Sápu­óperan um Fáfni Offshore heldur áfram.

Polarsyssel er eina skip Fáfnis Offshore sem er fullsmíðað og með verkefni.
Pol­ar­sys­sel er eina skip Fáfnis Offshore sem er full­smíðað og með verk­efni. Mynd: sysselmannen.no

Skipa­smíða­stöðin Havyard Ship Technology hefur rift samn­ingi við íslenska félagið Fáfni Offshore um smíði á nýju fimm millj­arða króna skipi þess. Áður hafði afhend­ingu skips­ins verið frestað tví­vegis, síð­ast til apríl 2019. Nú greinir norski vef­ur­inn Maritime frá því að samn­ingum við Havyards við Fáfni Offshore hafi verið rift og að skipa­smíða­stöðin muni krefj­ast bóta fyrir það tap sem hún telur sig hafa orðið fyrir vegna máls­ins. Havyard mun einnig krefj­ast þess að skipið, sem er ekki full­búið, verði selt upp í skuldir.

Skipið sem um ræðir, Fáfnir Viking, er í eigu Polar Maritime ehf., dótt­ur­fé­lags Fáfnis Offshore. Fáfni hefur ekki tek­ist að tryggja skip­inu, sem átti að nýt­ast við þjón­ustu við olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó, nein verk­efni og þar með hefur ekki feng­ist láns­fjár­mögnun til að klára smíði þess. Fáfnir Offshore tap­aði tveimur millj­örðum króna á árinu 2015 og virði helstu eignar þess, olíu­þjón­ustu­skips­ins Pol­ar­sys­sel, var færð niður um 785 millj­ónir króna á því ári vegna erf­iðra mark­aðs­að­stæðna. Íslenskir bankar og líf­eyr­is­sjóðir hafa tapað háum fjár­hæðum á fjár­fest­ingu og lánum til Fáfnis Offshore.

Var sætasta stelpan á ballinu...árið 2014

Síðla árs 2014 var Fáfnir Offshore ein sætasta stelpan á fjár­fest­ing­ar­ball­inu. Íslenskir fjár­festar, aðal­lega líf­eyr­is­sjóðir í gegnum fram­taks­sjóði, keppt­ust við að fjár­festa í fyr­ir­tæk­inu fyrir millj­arða króna. Það var „hiti“ í kringum fyr­ir­tækið og menn létu það ekk­ert mikið á sig fá þótt heims­mark­aðs­verð á olíu hefði hrunið úr um 115 dölum á tunnu sum­arið 2014 í um 60 dali í jan­úar 2015. Hermann Þórisson, fram­kvæmda­stjóri Horns II, tal­aði meira að segja um það í við­tali við Mark­að­inn, fylgi­blað Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, í þeim mán­uði að Fáfnir væri „fyr­ir­tæki sem mjög áhuga­vert væri að sjá fara á markað. Vissu­lega eru erf­iðar mark­aðs­að­stæður í olíu­geir­anum akkúrat í dag, en þær voru mjög góðar fyrir sex mán­uðum.“ Hermann sagði að ef ytri aðstæður myndu batna þá gæti Fáfnir Offshore vel verið nógu stórt til að fara á markað.

Ári síðar var heims­mark­aðs­verð á olíu komið niður í 26,7 dali á tunnu. Það er tæp­lega fjórð­ungur þess sem það var sum­arið 2014. Þum­al­putta­reglan er sú að til að olíu­vinnsla á norð­lægum slóðum borgi sig þurfi heims­mark­aðs­verð á olíu að vera að minnsta kosti 60 dalir á tunnu. Tugir skipa sem gera út á sama markað og Fáfnir Offshore hefur verið lagt og fyr­ir­tækin sem eiga þau glíma nú við mik­inn rekstr­ar­vanda. Þá hefur olíu­borpöllum í Norð­ur­sjó fækkað mikið. 

Verðið á olíu hefur hækkað umtals­vert að und­an­förnu og er nú um 55 dalir á tunnu. Það dugar hins vegar ekki til að kveikja aftur í olíu­iðn­að­inum í Norð­ur­sjó, sem Fáfnir Offshore er ætlað að þjón­usta.

Skip sem kostaði yfir fimm milljarða

Fáfnir Offshore á skipið Pol­ar­sys­sel, sem kost­aði yfir fimm millj­arða króna og er dýrasta skip Íslands­sög­unnar. Það skip var afhent haustið 2014 og er með þjón­ustu­samn­ing við sýslu­emb­ættið á Sval­barða til tíu ára um birgða­flutn­inga og örygg­is­eft­ir­lit. Sá samn­ingur gengur út á að sýslu­manns­emb­ættið hefur skipið til umráða að lág­marki í 180 daga á ári, eða sex mán­uði. Hina sex mán­uði árs­ins stóð til að nota skipið í verk­efni tengdum olíu- og gas­iðn­að­inum í Norð­ur­sjó.

Í októ­ber 2015 var gerður nýr samn­ingur við sýslu­manns­emb­ættið á Sval­barða. Hann átti að tryggja Pol­ar­sys­sel verk­efni í níu mán­uði á ári og var síðan stað­festur í febr­úar 2016. Þessi samn­ingur er eina verk­efni Fáfnis Offshore sem stendur og því gríð­ar­lega mik­il­vægur.

Fáfnir Offshore var stór­huga verk­efni og fyr­ir­tækið ætl­aði sér stóra hluti. Stein­grímur Erlings­son, stofn­andi fyr­ir­tæk­is­ins, þykir mjög dríf­andi eld­hugi og náði að sann­færa ansi marga á árinu 2014 um þau tæki­færi sem biðu handan við hornið. Í nóv­em­ber 2014 var Stein­grímur við­mæl­andi á fræðslu­fundi VÍB, sem er hluti af Íslands­banka. Þar sagði hann meðal ann­ars að Fáfnir Offshore stefndi að því að vera með 3-4 skip í rekstri á næstu árum.

Fund­ur­inn var aðgengi­legur á net­inu í rúmt ár eftir að hann fór fram. Eftir að mál­efni Fáfnis Offshore komu aftur í umræð­una fyrir nokkrum vikum var hann hins vegar fjar­lægður af net­inu.

Afhending á seinna skipi Fáfnis tafðist og tafðist

Samhliða lækk­andi olíu­verði jókst vandi Fáfnis Offshore jafnt og þétt. Kjarninn greindi frá því í byrjun des­em­ber 2015 að afhend­ing á Fáfni Viking, skipi í eigu Fáfnis Offshore, hafi verið frestað í annað sinn. Skipið átti að afhend­ast í mars 2016 en sam­kvæmt sam­komu­lagi milli Fáfnis og norsku skipa­smíða­stöðv­ar­innar Hayvard Ship Technologies AS var síðar ákveðið að afhend­ing þess myndi frest­ast fram til júní­mán­aðar 2017. Í fyrra­haust var enn ákveðið að fresta afhend­ingu skips­ins, nú til apríl 2019. Því sam­komu­lagi fylgdi þó krafa um að gengið yrði frá fyr­ir­fram­greiðslu á hluta kaup­verðs­ins í byrjun jan­úar 2017. Það gekk ekki eftir og því hefur Hayvard nú rift samn­ingum við Fáfni Offshore, ætlar að sækja bætur og selja skipið, sem er að hluta byggt, upp í skuldir.

Stein­grími Erlings­syni, stofn­anda Fáfnis Offshore, var sagt upp störfum sem for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins fyrir rúmu ári. Heim­ildir Kjarnans herma að miklir sam­starfs­erf­ið­leikar hafi verið milli stjórnar Fáfnis Offshore og Stein­gríms í aðdrag­anda upp­sagnar hans.

Stein­grímur, sem á enn 21 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu sam­kvæmt fyr­ir­tækja­skrá, stofn­aði Fáfni Offshore árið 2012. Hann reyndi í jan­úar 2016 að kaupa hlut tveggja stærstu hlut­hafa Fáfnis Offshore, sjóð­anna Akurs og Horns II, sem eru í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, banka og VÍS, fyrir brota­brot af því fé sem sjóð­irnir hafa lagt í fyr­ir­tækið. Samkvæmt fréttum DV um málið hafði Stein­grímur tryggt sér fjár­mögnun hjá kanadíska fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Prospect Financial Group. Halldór J. Krist­jáns­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Lands­banka Íslands, er starfs­maður Prospect Financial Group. Tilboði Stein­gríms var hafnað.

Íslenskir bankar tapa á íslensku olíuútrásinni

Íslenskir bankar veðj­uðu umtals­verðum fjár­munum á útrás í norska olíu­iðn­að­inn. bæði Arion banki og Íslands­banki lán­uðu sam­tals um 5,7 millj­arða króna á árunum 2013 og 2014 til norska félags­ins Havila Shipping ASA, sem er á leið í gjald­þrot.

Íslands­banki hefur ekki viljað upp­lýsa um hvert ætlað tap bank­ans á lánum til Havila er. Í árs­reikn­ingi bank­ans, sem birtur var í febr­úar 2016, kom fram að bank­inn hefði bók­að virð­is­rýrnun á stöðu sína á lánum til fyr­ir­tækja sem þjón­usta olíu­­iðn­­að­inn. Ljóst er að sú rýrnun snýr að ann­­ars vegar að lánum til Havila og hins vegar til Fáfnis Offshore, sem Íslands­banki fjár­magn­aði. Í reikn­ingnum kom fram að eitt pró­­sent af útlána­safni bank­ans var til fyr­ir­tækja ­sem þjón­usta olíu­­iðn­­að­inn. Alls voru útlán til við­­skipta­vina 665,7 millj­­arð­­ar­ króna um síð­­­ustu ára­­mót og því námu lán til geirans tæpum sjö millj­­örðum króna.

Í árs­reikn­ingi Arion banka fyrir árið 2015 kom fram að bank­inn hafði fært veru­­lega var­úð­­ar­n­ið­­ur­­færslu á lán til­ er­­lendra fyr­ir­tækja í þjón­ust­u­­starf­­semi tengdri olíu­­­leit, í kjöl­far erf­ið­­leika á þeim mark­aði, á síð­­asta árs­fjórð­ungi árs­ins 2015. Ekki var til­greint um hversu mikið lánið var fært niður en þar kom hins vegar fram að hrein virð­is­breyt­ing lána var 3,1 millj­­arður króna á árinu. Í af­komutil­kynn­ingu Arion banka sagði að nið­­ur­­færsl­­urnar séu að mestu vegna láns­ins til Havila og á lánum sem bank­inn ­yf­­ir­tók frá AFL –spari­­­sjóði á árinu 2015.

Sam­­kvæmt árs­­reikn­ingi voru lánin sem komu frá AFLi færð ­niður á öðrum árs­fjórð­ungi síð­­asta árs. Um þriggja millj­­arða króna var­úð­­ar­n­ið­­ur­­færsla var færð á efna­hags­­reikn­ing bank­ans á fjórða árs­fjórð­ungi. Sú ­nið­­ur­­færsla er því að mestu leyti vegna láns­ins til Havila og ljóst að bank­inn ­reiknar með miklum afföllum vegna þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár