Össur greiðir til baka 20 milljónir vegna hlutabótaleiðar

Þegar Össur ákvað tíma­bundið að nýta sér úrræði stjórn­valda víða um heim hafði sala fyr­ir­tæk­is­ins á heims­vísu minnkað um helm­ing og var enn á nið­ur­leið. Ljóst var að þessi þróun myndi hafa mikil áhrif á fjár­hags­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins.

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar.
Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Össurar. Mynd: Össur

Össur hf. hefur tekið ákvörðun um að end­ur­greiða Vinnu­mála­stofnun það fé sem runnið hefur til 165 starfs­manna félags­ins á meðan þeir voru í hluta­starfi vegna COVID-19 far­ald­urs­ins og hætta að nota úrræðið hér á landi.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Þar segir að þegar Össur ákvað tíma­bundið, um miðjan apríl, að nýta sér úrræði stjórn­valda víða um heim hafði sala fyr­ir­tæk­is­ins á heims­vísu minnkað um helm­ing og var enn á nið­ur­leið. Ljóst var að þessi þróun myndi hafa mikil áhrif á fjár­hags­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins og því var gripið til víð­tækra aðgerða til að minnka bæði umsvif og kostnað.

Þessar aðgerðir hafa haft áhrif á störf og starfs­hlut­fall um 1.000 starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins um allan heim, þar af 165 á Íslandi. Sú óvissa sem ríkt hefur um fram­tíð­ina hefði, án hluta­bóta­úr­ræð­is­ins á Íslandi og sam­bæri­legra mót­væg­is­að­gerða í öðrum löndum, leitt til upp­sagna hér­lendis sem erlendis. Nú mán­uði síðar er enn mikil óvissa, en merki eru um að mark­aðir fyr­ir­tæk­is­ins séu að taka við sér á ný.

„Að gefnu til­efni vill fyr­ir­tækið taka fram að ákvörðun um arð­greiðslu vegna afkomu árs­ins 2019 var afgreidd áður en áhrif af COVID-19 far­aldr­inum voru ljós,“ segir í til­kynn­ing­unni Þá var kaupum á eigin bréfum hætt 17. mars, um mán­uði áður en Össur nýtti sér úrræði stjórn­valda.

„Við erum stjórn­völdum hér­lendis og erlendis afar þakk­lát fyrir aðgerðir sem hafa gert okkur kleift að við­halda verð­mætu ráðn­ing­ar­sam­bandi við okkar starfs­menn. Nú liggur fyrir að ekki er full sam­staða hér á landi um að fyr­ir­tæki nýti hluta­bóta­úr­ræðið. Það er okkur mik­ils virði að starfa í góðri sátt við sam­fé­lögin þar sem við störfum. Við greiðum því til baka alla þá fjár­muni sem starfs­menn okkar hafa fengið hér á landi vegna hluta­bót­ar­leið­ar­innar, sem námu um 20 millj­ónum króna á tíma­bil­inu 18.-30. apríl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár