Tryggingagjald lækkað og ráðist í beina styrki til fyrirtækja sem hafa orðið fyrir tekjuhruni

Rík­is­stjórnin kynnti nýjan aðgerð­ar­pakka í dag. Hann er met­inn á 25 millj­arða króna en sá fyr­ir­vari settur að ekki liggi fyrir hversu vel aðgerð­irnar, sem eru átta, verði nýttar.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti nýja aðgerðarpakkann í dag.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kynnti nýja aðgerð­ar­pakk­ann í dag. Mynd: Skjáskot/Vísir

Rík­is­stjórn Íslands hefur kynnt átta aðgerðir, sem hún telur að muni kosta skatt­greið­endur 25 millj­arða króna, til að höggva á þann hnút sem er á vinnu­mark­aði eftir að Samtök atvinnu­lífs­ins boð­uðu atkvæða­greiðslu um upp­sögn Lífs­kjara­samn­ings­ins.

[links]Atkvæða­greiðsla aðild­ar­fyr­ir­tækja Samtaka atvinnu­lífs­ins um hvort segja eigi upp kjara­samn­ingum á að hefj­ast klukkan 12 í dag og því var aðgerð­ar­pakk­inn kynntur innan við klukku­tíma áður.

Katrín Jak­obs­dóttir sagði í sam­tali við Vísi að með þessum aðgerðum væri verið að létta atvinnu­líf­inu róð­ur­inn, sem væri vissu­lega þungur.

„Nú skaltu spyrja SA að því,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra við frétta­mann eftir að hafa verið spurð hvort hún teldi að þetta útspil stjórn­valda yrði til þess að kjara­samn­ingar myndu halda, en hún sagði yfir­lýs­ingu stjórn­valda um þessar aðgerðir mið­aðar að því að kjara­samn­ingar héldu.

Hún sagð­ist bjart­sýn á að þetta leiddi til þess að ekki yrði ófrið­ar­bál á vinnu­mark­aði og sagði mjög mik­il­vægt, í ljósi þess að nú geisar heims­far­aldur sem ekki sér fyrir end­ann á, að ekki væru í ofaná­lag átök á vinnu­mark­aði.

Tryggingagjald lækkað tímabundið

Helstu aðgerðir eru þær að trygg­inga­gjald verður lækkað tíma­bundið í eitt ár, til loka árs 2021, um 0,25 pró­sent og er kostn­aður rík­is­sjóðs við þetta metin á fjóra millj­arða króna. Full end­ur­greiðsla á virð­is­auka­skatti undir hatti úrræð­is­ins „Allir vinna“ verður fram­lengt út árið 2021 og er kostn­aður við þá aðgerð metin á átta millj­arða króna.

[adspot]Þá ætla stjórn­völd að beina frek­ari beinum styrkjum til fyr­ir­tækja sem „orðið fyrir tekju­hruni vegna COVID-19 far­ald­urs­ins“. Gert er ráð fyrir að styrkirnir geti numið um sex millj­örðum króna, en í til­kynn­ingu stjórn­valda í dag er ekki til­greint hvernig útfærsla styrkj­anna verður. „Miðað er við að áætl­anir þar að lút­andi verði und­ir­búnar á næstu vikum og lagðar fyrir Alþingi eigi síðar en við fram­lagn­ingu frum­varps til fjár­auka­laga.“

Þá var greint frá því að unnið sé að „útfærslu á skatta­legum aðgerðum sem hafa það að mark­miði að hvetja og styðja fyr­ir­tæki til fjár­fest­inga sem ætlað er að efla nýsköpun og sam­keppn­is­hæfni atvinnu­lífs­ins.“ Jafn­framt verða skoð­aðar leiðir til að hvetja til þátt­töku almenn­ings í atvinnu­líf­inu með kaupum á hluta­bréfum.

Framlög til nýsköpunarmála aukin um fimm milljarða

Framlög til nýsköp­un­ar­mála verða aukin um fimm millj­arða króna á næsta ári og hafa þá verið aukin um tíu millj­arða króna á árs­grund­velli ef þau eru borið saman við árið 2019.

Rík­is­stjórnin mun líka hrinda í fram­kvæmd úrbótum í skipu­lags- og bygg­inga­málum og vinna að umbótum á líf­eyr­is­kerf­inu og vinnu­mark­aði. Afrakstur þeirrar vinnu á að kynna í græn­bók um líf­eyr­is­mál sem kynnt verður vorið 2021. Í til­kynn­ingu stjórn­valda segir að jafn­framt muni „rík­is­stjórnin hafa for­ystu um gerð græn­bókar um fram­tíð­ar­um­hverfi kjara­samn­inga og vinnu­mark­aðs­mála í nánu sam­starfi við heild­ar­sam­tök á vinnu­mark­aði. Stefnt er að því að græn­bókin um vinnu­markað verði sömu­leiðis kynnt vorið 2021.“

Að lokum lofa stjórn­völd að leggja fram frum­varp starfs­kjara­laga, frum­varp til húsa­leigu­laga, frum­varp til laga um breyt­ingar á gjald­þrota­skiptum (kenni­tölu­flakk) og frum­varp um breyt­ingar á lögum um vexti og verð­trygg­ingu, sem á að mæta lof­orði stjórn­valda um að banna 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán, á haust­þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár