George Takei óttast að sagan muni endurtaka sig

Leik­ar­inn og aðgerðasinn­inn George Takei öðl­að­ist frægð sína sem Sulu í Star Trek á 7. ára­tugnum en hefur síðan þá orðið stjarna á sam­fé­lags­miðlum þar sem hann hefur gagn­rýnt hug­myndir Donalds Trumps um múslima. Kjarninn kann­aði feril hans og sögu.

George Takei heilsar „Live long and prosper!“
George Takei heilsar „Live long and prosper!“ Mynd: EPA

Fáir Japanir voru í sjón­varp­inu þegar banda­ríski leik­ar­inn og aðgerðasinn­inn George Takei ákvað að fara út í kvik­mynda­brans­ann á 6. ára­tugnum og hafði hann fáar fyr­ir­myndir. Hann varð því braut­ryðj­andi á sínu sviði þegar hann fékk hlut­verk Sulu í Star Trek þar sem hann lék við hlið kanadíska leik­ar­ans William Shatner. En George er ekki ein­ungis þekktur fyrir leik sinn í Star Trek heldur hefur hann verið í sviðs­ljós­inu allar götur síðan fyrir ýmiss konar mann­úð­ar­störf. Hann er aðgerðasinni sem lætur sig mörg mál varða og hefur hann til dæmis verið ötull tals­maður sam­kyn­hneigðra.

Und­an­farna mán­uði hefur hann gagn­rýnt Donald Trump, verð­andi for­seta Banda­ríkj­anna, fyrir hin ýmsu ummæli sem hann hefur látið falla, sér­stak­lega ummæli hans um múslima. Segist George ótt­ast að sagan geti end­ur­tekið sig og vísar hann þar í skrá­setn­ingu Japana í seinni heim­styrj­öld­inni og fanga­búðir sem hann, meðal ann­arra ætt­aðra frá Japan, var færður í sem barn. Hann varar við hug­myndum um bann við því að múslimar komi til Banda­ríkj­anna en í við­tali á CNN lýsir hann þessum áhyggjum sínum. Hann segir að ótt­inn við múslima og hryðju­verk ali á for­dómum og aðgrein­ingu.

Fjölskyldan flutt í fangabúðir

George Takei fædd­ist í Los Angeles í Banda­ríkj­unum árið 1937 en hann átti jap­anskan föður og jap­an­skætt­aða móður. Þegar hann var fimm ára gam­all var fjöl­skyldan neydd til að búa í fanga­búðum sér­út­búnum fyrir Japani í seinni heim­styrj­öld­inni, fyrst í Kali­forníu og síðar í Arkansas. Yfir hund­rað þús­und Japanir í Banda­ríkj­unum voru á þessum tíma neyddir í slíkar búðir á meðan styrj­öldin stóð yfir en flestir voru banda­rískir rík­is­borg­arar.

Eftir árás­irnar á Perlu­höfn, flota­stöð Banda­ríkja­manna á Havaí, árinu áður fór hat­urs­alda um Banda­ríkin sem lýsti sér í mik­illi andúð á fólki ætt­uðu frá Japan eða eins og George orðar það „fólki sem leit út eins og ég.“ Frankin D. Roosevelt for­seti Banda­ríkj­anna gaf þá skipun í febr­úar 1942 að öllum japönskum Amer­ík­önum á vest­ur­strönd­inni skyldi vera safnað saman án nokk­urrar ástæðu, ákæru eða rétt­ar­halda. Fólkinu var safnað saman í tíu víg­girtar fanga­búðir á afskekktum stöðum í Banda­ríkj­unum.

George hefur lýst atburða­rásinni í við­tölum og í TED-fyr­ir­lestri. Hann segir að tveir her­menn, vopn­aðir að fullu, hafi bankað upp á hjá þeim og skipað þeim að fylgja sér. Faðir hans hafi farið með hann og litla bróður hans út á stétt og þegar móðir hans hafi komið út á eftir þeim með litlu systur hans í fang­inu hafi tárin runnið niður and­lit hennar. Hann segir að hann muni aldrei gleyma þess­ari minn­ingu svo lengi sem hann lifi. Eftir þetta hafi þeim verið fylgt af her­mönnum, ásamt öðrum ætt­uðum frá Japan, í lest sem kom þeim á áfanga­stað. Þetta tók þrjár nætur og fjóra daga.

Úr öskunni í eldinn

George seg­ist ennþá muna eftir gadda­vírnum sem umkringdi búð­irnar og turn­inum þar sem vél­byssum var beint að þeim. Hann segir að vegna síns unga ald­urs hafi hann verið fljótur að aðlag­ast líf­inu í fanga­búð­unum. Að vera í fang­elsi umkringdu gadda­vír varð honum hvers­dags­legt og að stilla sér upp í röð þrisvar á dag til að borða vondan mat í háværum sal og að fara með föður sínum í sturtu með fjölda ann­arra manna.

Fjöl­skyldan var í fanga­búð­unum í heil fjögur ár en eftir að þeim var sleppt fóru þau aftur til Los Angeles þar sem þau fengu ekki góðar við­tökur. George segir að á þessum tíma hafi þau verið alls­laus enda hafi allt verið tekið af þeim og að fjand­skap­ur­inn hafi verið mik­ill. Þau neydd­ust til að lifa í versta hverfi Los Angeles-borgar þar sem fátæktin var mikil og aðstæður slæmar. Hann lýsir því þannig að þau hafi í raun farið úr ösk­unni í eld­inn.

For­eldrar Georges náðu að vinna fyrir sér og að lokum, mörgum árum seinna, gátu þau keypt litla íbúð í betra hverfi. Þá var hann orð­inn ung­lingur og átti hann margar sam­ræður við föður sinn um fang­els­un­ina og hvað það þýddi að vera Banda­ríkja­maður. Hann seg­ist hafa verið ráð­viltur um þá þýð­ingu en að hann hafi síðan kom­ist að því að til þess að banda­rískar hug­sjónir nái að blómstra þá þurfi gott fólk að fylgja þeim eftir.

Reynslan í fanga­búð­unum sem barn átti eftir að fylgja honum allar götur síðan. Því þrátt fyrir að vera þekktur fyrir mikla kímni­gáfu, jákvæðni og brosmildi þá hefur hann lýst þess­ari erf­iðu reynslu að vera útlok­aður á þennan máta fyrir þjóð­erni og upp­runa. En þrátt fyrir allt mót­læti virð­ist George verða ein­stak­lega bjart­sýnn maður og seg­ist hann meðal ann­ars í heim­ilda­mynd­inni To Be Takei frá árinu 2014 að hann hafni nei­kvæðni og trúi að hver ákveði örlög sín. 

Líf eftir Star Trek

George fór í leiks­list­ar­nám og útskrif­að­ist með B.A.-próf og síðan M.A.-próf frá Háskól­anum í Kali­forníu árið 1964. Hann birt­ist í ýmsum kvik­myndum og þáttum á 6. og 7. ára­tugnum en hann skaust upp á stjörnu­him­in­inn fyrir fyrr­nefnt hlut­verk í sjón­varps­þátt­unum Star Trek í hlut­verki Sulu. Hann hefur verið iðinn við að mæta á ráð­stefnur um vís­inda­skáld­skap og ljáð rödd sína tölvu­leikjum.

En það var líf eftir Star Trek og hefur George ekki setið auðum höndum þrátt fyrir að vera frægastur fyrir hlut­verk sitt sem Sulu. Hann hefur verið virkur í stjórn­mála­um­ræðu og verið aðgerðasinni í gegnum tíð­ina. Hann hætti ekki alveg að leika og hefur verið gesta­leik­ari í þáttum á borð við Scrubs og Heroes.

Farsæll á samfélagsmiðlum

Sam­fé­lags­miðlar eiga stóran þátt í vel­gengni Georges nú á dögum. Tæplega 10.000.000 manns líkar við síð­una hans á Facebook og tæpar 2.000.000 fylgja honum á Twitter. Hann nýtir iðu­lega athygl­ina til að koma á fram­færi mál­efnum sem honum finn­ast brýn á borð við kyn­þátta- og jafn­rétt­is­mál og mál­efni sam­kyn­hneigðra.

Hann setti upp Facebook-síð­una árið 2011 og var fljótur að safna fylgj­endum. Hann segir í við­tali við Forbes að við­hald þess­arar síðu sé mjög tíma­frek og fær hann stundum mann­inn sinn til að hjálpa sér til að fara yfir bréf frá aðdá­endum og athuga­semdir. Hann telur að sam­fé­lags­miðlar hafi breytt lands­lagi fyrir aðgerða­sinna enda þurfi þeir síður að treysta á hefð­bundna miðla til að koma mál­efnum sínum á fram­færi.

Samkynhneigðin opinbert leyndarmál

Sam­starfs­fólk Georges í Star Trek vissi flest að hann væri sam­kyn­hneigður enda var það opin­bert leynd­ar­mál. Hann kom þó ekki út úr skápnum fyrr en árið 2005 en þá hafði hann verið í sam­bandi með Brad Altman í ein 18 ár. Þeir giftu sig þremur árum síðar og voru fyrsta sam­kyn­hneigða parið til að gift­ast í Vestur-Hollywood.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár