Krabbameinsmeðferðir verði gjaldfrjálsar

Kostn­aður vegna krabba­meins­með­ferðar hvílir þungt á mörgum sjúk­lingum. Nú hefur þing­maður Mið­flokks­ins lagt til á Alþingi að krabba­meins­með­ferðir verði gerðar gjald­frjálsar.

Tillaga til þings­á­lykt­unar um gjald­frjálsar krabba­meins­með­ferðir hefur verið lögð fram á Alþingi. Ef hún verður sam­þykkt þá mun heil­brigð­is­ráð­herra vera falið að beita sér fyrir því að krabba­meins­með­ferðir verði gjald­frjálsar en til­lagan hefur einu sinni áður verið lögð fram.

Fyrsti flutn­ings­maður er Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins. Bergþór Ólason, Birgir Þór­ar­ins­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Karl Gauti Hjalta­son, Ólafur Ísleifs­son, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Sigurður Páll Jónsson og Þor­steinn Sæmunds­son eru með­flutn­ings­menn en þeir eru allir í Mið­flokknum.

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir að kostn­aður við krabba­meins­með­ferð sé mörgum þungur baggi og sé kostn­að­ar­hlut­deild krabba­meins­sjúk­linga í lyfja­kostn­aði og allri heil­brigð­is­þjón­ustu hér á landi há og hækki ár frá ári.

Einstaklingar þurfi oft að leggja út fyrir vörum vegna aukaverkana

„Kostn­að­ur­inn reyn­ist sjúk­lingum oft mestur í upp­hafi veik­inda, þegar þeir eru ekki farnir að njóta nið­ur­greiðslu frá hinu opin­bera, en það getur tekið marga mán­uði, allt eftir því hvað ein­stak­ling­ur­inn hefur áunnið sér í rétt­indi. Á þeim tíma fá sjúk­ling­arnir engar nið­ur­greiðslur, hvorki á með­ferðum né hjálp­ar­tækjum sem þeir kunna að þurfa,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þá er tekið fram að afleið­ingar krabba­meins­með­ferða séu þær að ein­stak­lingar þurfi oft að leggja út fyrir ýmsum vörum vegna auka­verk­ana, til að mynda kaupum á hár­kollum og/eða gerð var­an­legra auga­brúna vegna hár­missis og einnig sé kostn­aður við við­tals­með­ferðir sem oft bjóð­ast fjarri heima­byggð. Kostn­aður vegna kaupa á ýmiss konar hjálp­ar­tækjum og kostn­aður við sjúkra­þjálfun geti einnig verið mik­ill.

Fólk kaupir stundum ekki þá þjónustu sem talin er nauðsynleg

Í grein­ar­gerð­inni kemur einnig fram að með því að gera með­ferð­ina sjálfa gjald­frjálsa eigi sjúk­lingar fjár­hags­lega auð­veld­ara með kaup á nauð­syn­legum auka­hlutum og að greiða kostnað við ferða­lög, „svo að ekki sé minnst á þá aðstoð sem nauð­syn­leg er fyrir fjöl­skyldu við­kom­andi.“

Sam­an­lagður kostn­aður geti því orðið svo mik­ill að þess eru dæmi að vegna fjár­hags síns taki fólk þá ákvörðun að kaupa ekki þá þjón­ustu sem talin er nauð­syn­leg. Ofan á útlagðan kostnað bæt­ist síðan tekju­tap sjúk­lings­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár