Kaldur pólitískur vetur framundan

Stór póli­tísk átaka­mál, sem stjórn­ar­flokk­arnir eru í grund­vall­ar­at­riðum ósam­mála um, eru á dag­skrá í vetur. Óvin­sældir rík­is­stjórn­ar­innar og hverf­andi fylgi Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar munu reyna á sam­stöðu hennar á kosn­inga­vetri.

Rík­is­stjórnin fund­aði síð­ast­lið­inn föstu­dag. Hún hafði þá ekki fundað í 41 dag, sem er lengsta frí sem rík­is­stjórn hefur tekið frá slíkum fund­ar­höldum í tólf ár. Þing­nefndir byrj­uðu líka að funda í vik­unni og þing verður sett að nýju 12. sept­em­ber. Póli­tíkin er því að vakna úr sum­ar­dvala.

Sá dvali ein­kennd­ist mest­megnis af skoð­ana­könn­unum sem sýndu slæma stöðu rík­is­stjórn­ar­innar, og sér­stak­lega litlu flokk­ana sem hana skipa, og til­raunum þeirra flokka til að sýna að þeir væru ekki bara hækjur fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Á kom­andi vetri verður tek­ist á um lyk­il­kerf­is­breyt­ingar í íslensku sam­fé­lagi. Um land­bún­að­ar­kerfið og hvort ráð­ast eigi í upp­kaup á offram­leiðslu fyrir rík­isfé, um breyt­ingar á gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi og end­ur­skoðun á umgjörð pen­inga­mála- og gjald­miðla­stefn­unnar. Í ljósi þess að í rík­is­stjórn sitja flokkar sem eru á önd­verðu meiði í þessum stóru málum er eðli­legt að velta fyrir sér hvort hún muni lifa af þann kalda póli­tíska vetur sem er framundan. Sér­stak­lega þar sem sveita­stjórn­ar­kosn­ingar eru í vor, og staða flokk­anna á lands­vísu mun án nokk­urs vafa smit­ast inn í árangur þeirra þar.

Óvinsældirnar minnka ekkert

Sumarið hefur ein­kennst af stöðu­töku milli rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Sitjandi rík­is­stjórn hefur ekki farið vel af stað. Það er að minnsta kosti ekki mat kjós­enda, enda hefur engin rík­is­stjórn orðið jafn fljótt jafn óvin­sæl og sú sem nú situr. Í síð­ustu könnun Gallup mæld­ist stuðn­ingur við hana ein­ungis 32,7 pró­sent. Flokk­arnir sem að rík­is­stjórn­inni standa myndu ein­ungis ná inn 21 þing­manni ef kosið yrði í dag, ell­efu færri en í kosn­ing­unum fyrir um tíu mán­uðum síðan, og eru því óra­fjarri því að halda meiri­hluta sínum.

Líkt og venjan er í stjórn­ar­sam­starfi þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er þunga­miðjan þá bitna óvin­sæld­irnar fyrst og síð­ast á sam­starfs­flokk­unum. Samkvæmt könn­unum heldur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn kjarna­fylgi sínu, fengi 26,5 pró­sent atkvæða og 18 þing­menn. Hann yrði því áfram stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði í dag. Viðreisn myndi hins vegar helm­ing­ast í fylgi, og rétt skríða inn á þing með 5,3 pró­sent atkvæða og þrjá þing­menn. Staðan hjá Bjartri fram­­tíð er enn verri. Ein­ungis 3,7 pró­­sent aðspurðra í könnun Gallup sögð­ust ætla að kjósa flokk­inn. Það myndi þýða að Björt fram­­tíð næði ekki inn manni á þing en flokk­­ur­inn hefur nú fjóra þing­­menn.

Þau Björt Ólafsdóttir og Óttarr Proppé eru vön því að mælast vart með lífsmarki í skoðanakönnunum. Fyrir síðustu kosningar náðu þau hins vegar að snúa taflinu við á hárréttum tíma.
Þau Björt Ólafs­dóttir og Óttarr Proppé eru vön því að mæl­ast vart með lífs­marki í skoð­ana­könn­unum. Fyrir síð­ustu kosn­ingar náðu þau hins vegar að snúa tafl­inu við á hár­réttum tíma.

Umræðan um að Viðreisn og Björt fram­tíð séu fyrst og síð­ast til skrauts í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks sem ætlar engu að breyta truflar framá­menn í báðum flokkum mikið. Þeir virð­ast gera sér grein fyrir því að ákvörðun um að afgreiða skipan í nýjan Lands­rétt á loka­metrum síð­asta þings, þar sem atkvæði féllu að öllu leyti eftir víg­línum stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu, var síst til að draga úr þeirri upp­lifun fólks. Hvort sem þeim líkar betur eða verr leit afgreiðsla máls­ins út sem póli­tísk hrossa­kaup í augum ansi margra. Fyrir vikið er litlu flokk­unum tveimur mikið í mun að skerpa á því hver mun­ur­inn á stefnu þeirra og Sjálf­stæð­is­flokks­ins sé.

Reynt að búa til bil

Það sást á sum­ar­mán­uðum. Fyrst skrif­aði Þor­steinn Pálsson, áhrifa­maður innan Við­reisnar, grein á Kjarnann þann 13. júní þar sem hann sagði flokk­anna tvo vera að koma stórum málum á dag­skrá. „Með hæfi­legri ein­földun má segja að við myndun þess­arar stjórnar hafi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn aðeins farið fram á skatta­lækk­anir en óbreytt ástand að öðru leyti. Við­reisn og Björt fram­tíð vildu setja á dag­skrá breyt­ingar í land­bún­að­ar­mál­um, nýjar hug­myndir um veiði­leyfagjöld, rót­tæka end­ur­skipan á gjald­mið­ils- og pen­inga­málum og þjóð­ar­at­kvæði um hvort halda eigi áfram aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­band­ið,“ skrif­aði Þor­steinn. Þessi skrif fóru ekki vel í Sjálf­stæð­is­menn.

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Jóna Sólveig Elín­ar­dóttir, vara­for­maður flokks­ins, hafa síðan verið dug­leg að skrifa greinar um pen­inga­mál, þar sem áhersla hefur verið lögð á að gagn­rýna krón­una. Benedikt skrif­aði til að mynda grein í Frétta­blaðið 20. júlí sem bar yfir­skrift­ina: „Má fjár­mála­ráð­herra hafna krón­unni?“ Nið­ur­staða hans var já, og að fjár­mála­ráð­herra beri hrein­lega „skylda til að leggja til þann kost sem er far­sælastur fyrir Íslend­inga.“ Sá kostur væri ekki krónan.

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, hefur einnig verið áber­andi og meðal ann­ars tjáð sig ítrekað um þörf­ina á breyt­ingum á land­bún­að­ar­kerf­inu. Síðast þann 8. ágúst, þegar hann skrif­aði að það væri ekki nátt­úru­lög­mál að vera með hæsta mat­væla­verð í heimi. Hann kall­aði eftir Costco- og IKEA-áhrifum á land­búnað. Benedikt hefur tekið undir með honum. Þetta hefur truflað ýmsa Sjálf­stæð­is­menn. Páll Magn­ús­son, leið­togi þeirra á Suð­ur­landi, gagn­rýndi þá harð­lega í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær. Þar sagði hann að Þor­steinn og Benedikt hefðu fjallað á „yfir­borðs­legan en skiln­ings­lít­inn hátt um þann alvar­lega vanda sem nú blasir við sauð­fjár­bændum.“

Þá hefur bar­átta fórn­ar­lamba Roberts Downey (áður Róbert Árni Hreið­ars­son), og aðstand­enda þeirra, fyrir því að fá upp­lýs­ingar um af hverju hann hafi fengið upp­reista æru og lög­manns­rétt­indi að nýju einnig fallið í skýrar póli­tískar skot­grafir á ein­hvern ótrú­legan hátt. Málið hefur gert það að verkum að Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra hefur boðað breyt­ingar á því hvernig upp­reist æru er veitt.

Og í lið­inni viku gerð­ist það að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd var kölluð saman til að ræða þær breyt­ingar. Þar voru ýmis gögn um mál Roberts Downey lögð fram í trún­aði. Meðal ann­ars upp­lýs­ingar um nöfn þeirra sem skrif­uðu undir með­mæli fyrir því að Robert Downey fengi upp­reist æru. Þeir nefnd­ar­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans, sem mættir voru á fund­inn, gengu út af honum þegar nöfnin voru lögð fram. Eini stjórn­ar­þing­mað­ur­inn sem varð eftir var Brynjar Níelsson, for­maður nefnd­ar­innar.

Ótt­arr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar og heil­brigð­is­ráð­herra, tjáði sig um málið í kjöl­farið. Í stöðu­upp­færslu a Facebook sagði hann upp­á­koman í nefnd­inni, þegar nefnd­ar­menn stjórn­ar­flokka gengu út, hefði virk­að„f­urðu­leg“. „ Hún þarfn­ast skýr­inga og ég skil ekki þau rök sem komið hafa fram.“ Björt fram­tíð á ekki full­trúa í nefnd­inni og gagn­rýnin beind­ist aug­ljós­lega þeim stjórn­ar­þing­mönnum sem gengu út. Í morgun bætti hann í málið og sagð­ist vilja leggja af upp­reist æru. Ljóst væri að það hefði mis­tek­ist hrapa­lega að ná sam­komu­lagi um hvernig með­höndla ætti málið í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd.

Jón Stein­dór Valdi­mars­son, vara­for­maður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar og þing­maður Við­reisn­ar, til­kynnti síðar sama dag að hann myndi óska eftir því að fá öll gögn um mál Roberts Downey afhent á næsta fundi nefnd­ar­inn­ar. Hann hefði ekki kom­ist á fund­inn í vik­unni. Það verða því ein­ungis nefnd­ar­menn Sjálf­stæð­is­flokks sem munu neita að sjá umrædd gögn. Sú afstaða hefur farið mis­mun­andi í fólk.

Það hefur mætt mikið á Brynjari Níelssyni, formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, vegna máls Roberts Downey. Það virðist skyndilega orðið flokkspólitískt mál.
Það hefur mætt mikið á Brynjari Níels­syni, for­manni stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, vegna máls Roberts Downey. Það virð­ist skyndi­lega orðið flokkspóli­tískt mál.

Fyrrverandi formaður segir stjórnina ekki standa fyrir neitt

Það liggur fyrir að kjós­endur Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar vildu ekki stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Skoð­ana­kann­anir sýna það. T.d. kom fram í könnun sem gerð var í febr­úar, skömmu eftir að rík­is­stjórnin tók við, að tæp­lega 40 pró­sent kjós­enda Við­reisnar væru ánægðir með sam­starfið og ein­ungis 14 pró­sent kjós­enda Bjartrar fram­tíðar.

En það er heldur ekki ánægja með það hjá öllum Sjálf­stæð­is­mönnum. Margir flokks­menn hrein­lega þola ekki Viðreisn og þetta stjórn­ar­sam­starf. Benedikt Jóhann­es­son kom inn á þessa stöðu í við­tali við Kjarnann í júní. Þar sagði hann að það hefði komið honum á óvart hversu mikil tor­tryggni hefði verið í garð Við­reisnar innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins eftir kosn­ing­arnar.

Fremstur í flokki gagn­rýnenda fer Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og nú rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins.

Davíð Oddsson segir ríkisstjórnina ekki hafa nein mál til að falla á, vegna þess að hún standi ekki fyrir neitt.
Davíð Oddsson segir rík­is­stjórn­ina ekki hafa nein mál til að falla á, vegna þess að hún standi ekki fyrir neitt.

Á síð­ustu vikum hefur hann ritað rit­stjórn­ar­greinar þar sem hann hefur gagn­rýnt rík­is­stjórn­ina mjög harka­lega. Í leið­ara sem birt­ist um síð­ustu mán­aða­mót, skrif­aði Davíð: „Íslenska rík­is­stjórnin hefur setið í hálft ár og þegar misst allt álit þótt hún hafi ekki gert neitt sem öllum almenn­ingi mis­líkar. Hún stendur ekki fyrir neitt. Mál­efna­samn­ingur hennar hrópar það framan í fólk. Þar er ekk­ert hand­fast nema helst langur kafli sem virð­ist und­ir­strika að nauð­syn­legt sé að fjölga inn­flytj­endum. Sú nauð­syn var ekki orðuð í kosn­ing­unum.“

Hann end­ur­tók sömu orð að mestu í Reykja­vík­ur­bréfi 4. ágúst. Og bætti svo við: „Ein­hverjir eru í spyrja sig og aðra, með hlið­sjón af fallandi stuðn­ingi, hvort þessi rík­is­stjórn sé við það að falla. En það er með öllu óvíst að hún sé fær um það. Rík­is­stjórn, sem sam­kvæmt sam­eig­in­legum sátt­mála sínum stendur ekki fyrir neitt, á ekki auð­velt að finna sér mál til að falla á. Meira að segja þegar hún mætir með sín allra vit­laus­ustu mál fyrir þingið mun stjórn­ar­and­staðan taka þeim fagn­andi. Rík­is­stjórn sem telur að það bendi til þess að hún sé á réttri leið hefur týnt átta­vit­anum sem hún fékk í ferm­ing­ar­gjöf.“

Ein öfl­ug­asta and­staðan gegn rík­is­stjórn sem stýrt er af Sjálf­stæð­is­flokknum kemur því frá hinu íhalds­sama banda­manni Morg­un­blað­inu um þessar mundir, og fyrr­ver­andi for­manni flokks­ins, sem þar heldur um valdataumanna.

Á lánstíma í pólitík

Innan Bjartrar fram­tíðar virð­ist ekki mik­ill æsingur yfir stöð­unni. Flokks­starfið er enda lítið sem ekk­ert um þessar mundir og þeir sem gagn­rýndu flokk­inn mest innan frá hafa ein­fald­lega yfir­gefið hann.

Liðsmenn Bjartrar fram­tíðar þekkja þá stöðu að hverfa nán­ast í könn­unum. Þannig var staða hans nán­ast allt síð­asta kjör­tíma­bil, eða þar til and­staða við gerð búvöru­samn­inga á hár­réttum tíma, rétt fyrir kosn­ingar, hleypti flokknum skyndi­lega aftur á hinn póli­tíska mat­seðil. Það má því segja að Björt fram­tíð sé á láns­tíma í póli­tík og ofan á það röt­uðu þau í rík­is­stjórn. Afstaða þeirra sem eru í for­ystu flokks­ins er því sú að sitja út kjör­tíma­bilið og reyna að koma sem mestu í verk í krafti stöðu sinnar. Engin ástæða er fyrir þau að sprengja rík­is­stjórn og sér­stak­lega ekki að boða til kosn­inga, sem kann­anir benda til þess að Björt fram­tíð myndi ekki lifa af.

Ef erf­ið­lega gengur að koma á umbótum á kvóta­kerf­inu og atkvæða­greiðslu um áfram­hald við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið á næstu miss­erum gæti Óttarr Proppé þó verið minntur á stöðu­upp­færslu sem hann setti á Facebook 15. nóv­em­ber 2016, þegar slitn­aði upp úr fyrstu stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum þeirra flokka sem nú mynda rík­is­stjórn. Þá sagði hann að flokk­ur­inn hefði staðið fast á sínum prinsipum og að hann myndi gera það áfram.

Telja Sjálfstæðisflokkinn vera að valda sér erfiðleikum

Viðreisn er hins vegar flokkur sem var búinn til með miklum til­kostn­aði. Og ætl­aði sér lang­lífi í íslenskum stjórn­málum sem val­kostur fyrir frjáls­lynda og alþjóð­lega sinn­aða kjós­endur. Í ljósi þess að fyrstu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar flokks­ins eru framundan á næsta ári er ljóst að staða flokks­ins á lands­vísu nú um stundir mun ekki vera gott vega­nesti inn í þá bar­áttu.

Jón Steindór sagði í við­brögðum við einni af skoð­ana­könn­unum sem sýndu afleita stöðu Við­reisnar að flokk­ur­inn þyrfti að skoða stöðu sína. Ljóst væri að sam­búðin við Sjálf­stæð­is­flokk­inn væri að valda flokknum erf­ið­leikum. Viðreisn hafi þurft að gera mála­miðl­anir þegar hann gekk til rík­is­stjórn­ar­sam­starfs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.„Kannski höfum við gengið of langt þar, ég veit það ekki.“

Tveir kostir eru fyrir Viðreisn og Bjarta fram­tíð ef flokk­arnir ákveða að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu. Annar er að kjósa aftur, sem getur varla verið eft­ir­sókn­ar­vert í ljósi stöðu flokk­anna í könn­unum. Hinn er að reyna enn og aftur á myndun fimm flokka rík­is­stjórn sem inni­héldi þá annað hvort Pírata eða Fram­sókn­ar­flokk­inn ásamt Vinstri grænum og Sam­fylk­ingu.

Morg­un­ljóst má vera að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sprengir að minnsta kosti ekki rík­is­stjórn­ina, þrátt fyrir óánægju harð­línu­afl­anna í Hádeg­is­móum. Ástæðan er sú að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill vera við völd. Hann hefur haldið á slíkum nær óslitið frá lýð­veld­is­stofnun og mótað íslenskt sam­fé­lag. Þau kerfi vill hann verja úr valda­stöðu, ekki stjórrn­ar­and­stöðu. Og með hverjum öðrum ætti flokk­ur­inn að starfa?

Það var kalt á tröppunum við Bessastaði þegar ríkisstjórnin tók við í janúar. Og henni hefur gengið illa að hrista kuldahrollinn úr sér síðan þá. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Það var kalt á tröpp­unum við Bessa­staði þegar rík­is­stjórnin tók við í jan­úar. Og henni hefur gengið illa að hrista kulda­hroll­inn úr sér síðan þá. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Vinstri græn eru óskak­andi­dat ýmissa íhalds­afla innan flokks­ins, í ljós þess að þau telja að flokk­arnir geti náð saman um að verja sjáv­ar­út­vegs- og lands­bún­að­ar­kerfin og því að við­halda gild­andi pen­inga­mála­stefnu.

Meg­in­á­hersla Vinstri grænna í póli­tík nú um stundir er hins vegar stór­aukin sam­neysla. Í rík­is­stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum sem flokk­ur­inn tók þátt í í lok síð­asta árs kom skýrt fram að hann vildi fara í fjár­fest­ingar í vel­ferð og innviðum sem gætu kostað tugi millj­arða króna á ári til við­bótar við það sem rekstur rík­is­sjóðs kostar í dag. Þær fjár­fest­ingar þyrfti að fjár­magna með nýjum sjálf­bærum tekjum. Það þýðir að ráð­ast þyrfti í ýmiss konar skatta­hækk­anir, m.a. álagn­ingu hátekju­skatts, til við­bótar við hækkun á gjöldum sem tekin yrðu vegna nýt­ingar á auð­lindum og nýrra gjalda sem hægt yrði að leggja á ferða­þjón­ust­una.

Í ljósi þess að sitj­andi rík­is­stjórn liggur undir stans­lausu ámæli fyrir að vinna fyrst og síð­ast að hags­munum hinna efna­meiri er ljóst að þessi afstaða Vinstri grænna hefur ekki mild­ast. Hún hefur styrkst ef eitt­hvað er, og sú staða hefur skilað flokknum auknu fylgi í könn­unum.

Líkurnar á því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn muni beygja sig undir slíkar skatta­hækk­anir og aukin rík­is­um­svif, til að hald­ast við völd, verða að telj­ast litlar sem engar.

Framsókn dugar ekki lengur

Einungis einn annar stjórn­mála­flokkur sem á full­trúa á Alþingi sem stendur myndi raun­hæft starfa með Sjálf­stæð­is­flokknum, utan þeirra sem nú sitja með honum í rík­is­stjórn. Það er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Flokk­arnir tveir, sem eru vanir því að stjórna á Íslandi, eru hins vegar ekki með nægj­an­legan þing­styrk til að mynda meiri­hluta­stjórn saman.

Og ekki myndi staðan lag­ast ef boðað yrði til kosn­inga. Framsókn mælist með rúm­lega ell­efu pró­sent fylgi í síð­ustu könn­unum sem er í efri mörkum þess sem flokk­ur­inn hefur mælst með á kjör­tíma­bil­inu.

Kerf­is­varn­ar­flokk­arnir tveir myndu fá 37,9 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag. Að minnsta kosti fimm þing­menn myndi vanta upp á til að ná eins manns meiri­hluta. Það er minna en þeir fengu í síð­ustu kosn­ingum þegar Sjálf­stæð­is­flokkur og Framsókn fengu sam­tals 41,9 pró­sent atkvæða. Raunar hafa þessir flokkar ekki mælst með sam­eig­in­legan meiri­hluta í könn­unum frá því fyrir kosn­ing­arnar 2013, en í þeim fengu Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur sam­an­lagt 51,1 pró­sent atkvæða.

Flokk­arnir virð­ast auk þess vera að fiska mest megnis í sömu tjörnum eftir kjós­endum. Þ.e. ef kjós­andi Sjálf­stæð­is­flokks ákveður að kjósa annað færir hann sig vana­lega yfir til Fram­sóknar. Og öfugt. Und­an­tekn­ingin frá þessu fyr­ir­komu­lagi var í kosn­ing­unum 2013, þegar Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn náði að höfða til breið­ari hóps með popúl­ísku lof­orði um að gefa hluta verð­tryggðra hús­næð­is­lán­tak­enda pen­inga ef þeir kæmu flokknum til valda.

Staðan virð­ist vera þannig að tími tveggja flokka kerf­is­varn­ar­stjórnar þess­ara tveggja flokka sé lið­inn.

Því er lík­legt að rík­is­stjórnin reyni áfram að halda áfram í sínu marg­stað­festa ást­lausa hjóna­bandi á næsta þing­vetri. Aðrir mögu­leikar í stjórn­ar­mynstri eru enn jafn fjarri og þeir voru í lok síð­asta árs þegar nán­ast allar teg­undir af rík­is­stjórn­ar­sam­setn­ingum voru mát­aðar. En sam­skiptin verða áfram stirð. Og stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir munu fá nægt hrá­efni til að vinna úr næsta árið við að reyna að hrinda rík­is­stjórn sem hefur minnsta mögu­lega þing­meiri­hluta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár