Birgitta lýsir yfir „algjöru vantrausti“ á Brynjar

Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, sagði Brynjar Níelsson hafa stýrt máli Robert Downey um upp­reist æru í „afar mik­inn skurð“ og lýsir yfir „algjöru van­trausti á Brynjar Níelsson, for­mann stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar.

Birgitta Jónsdóttir.
Birgitta Jóns­dóttir. Mynd: Birgir Þór

Meiri­hluti nefnd­ar­manna í Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd gekk út af fundi í morgun þegar þeim var gefin nöfn þeirra sem skrif­uðu undir með­mæli þess efnis að Robert Downey yrði veitt upp­reist æru. Enn fremur lýsti Birgitta Jóns­dóttir yfir van­trausti gegn Brynjari Níels­syni, for­manni nefnd­ar­innar. Þetta kemur fram í frétt mbl.is.

Samkvæmt frétt­inni fengu nefnd­ar­menn upp­lýs­ingar um með­mæl­endur veit­ingar upp­reisnar æru fyrir Robert Downey á fund­inum í dag. Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, sagð­ist ekki hafa heim­ild til að gefa þau upp, en skorar hins vegar á alla með­mæl­endur til að stíga fram og gefa út sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu.

[adspot]

Að sögn Birgittu gekk meiri­hluti nefnd­ar­manna út úr miðjum fundi þegar umrædd gögn voru birt, „vænt­an­lega af ótta við að þau gætu ekki stað­ist að brjóta ekki trúnað.“ Hún seg­ist ætla að kalla eftir áliti lög­manns Alþingis og for­sætis­nefndar hvort þau geti setið á funum þar sem rætt verður við ráðu­neytið um spurn­ingar sem vakna við lestur bréf­anna.

Að fundi loknum sagði Birgitta um Brynjar Níelsson, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­mann nefnd­ar­innar: „Ég lýsi yfir algjöru van­trausti á hann sem for­mann þess­arar nefndar. Mér finnst hann hafa stýrt þessu máli í afar mik­inn skurð og raun allt í kringum fund­inn með Ólafi Ólafs­syni var mjög til vans. Hann virð­ist ekki átta sig á sinni stöðu sem for­maður nefnd­ar­innar, eins og hann tjáir sig í fjöl­miðlum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár