Jón Steindór ætlar að fá öll gögn í æru-máli Roberts Downey

Vara­for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar ætlar að fara fram á að fá öll gögn um upp­reista æru Róberts Downey á næsta fundi nefnd­ar­innar.

Jón Steindór Valdimarsson.
Jón Steindór Valdi­mars­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Jón Steindór Valdi­mars­son, vara­for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar og þing­maður Við­reisnar, ætlar að óska eftir því að fá öll gögn um mál Roberts Downey afhent á næsta fundi nefnd­ar­innar. Hann seg­ist ekki hafa getað sótt fund nefnd­ar­innar í gær, þegar allir nefnd­ar­menn stjórn­ar­flokk­anna gengu af fundi þegar gögn um þá sem veittu með­mæli fyrir því að Robert Downey fengi upp­reist æru voru lögð fram. Þess í stað muni hann óska eftir því á næsta fundi nefnd­ar­innar að fá „ðgang að öllum gögnum máls­ins og kynna mér þau til hlítar. Þannig tel ég mig, að vel ígrund­uðu máli, best fá fast land undir fætur til frek­ari umfjöll­unar um málið.“

Í stöðu­upp­færslu í dag segir Jón Steindór að þing­menn Við­reisnar muni ekki láta sitt eftir liggja við að taka reglur um upp­reist æru til heild­ar­end­ur­skoð­unar og færa til nútíma­horfs. „Það verk­efni ætti að geta unn­ist hratt og vel í góðri sátt á Alþingi enda málið ekki í eðli sínu þannig að flokkapóli­tík eigi að tefja fyrir. „Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd þings­ins hefur haft þessi mál til skoð­unar af gefnu til­efni sem er mál Róberts Downey. Sjálfur sit ég í þeirri nefnd en gat ekki sótt síð­asta fund. Af fréttum að dæma og þeim upp­lýs­ingum sem ég hef aflað mér fór sá fundur ekki eins og best verður á kosið og er það miður. Málið má ekki detta í far­veg póli­tískra skylm­inga og deilna sem færir umræð­una frá kjarna máls. Þeir sem líða vegna brota Róberts og ann­arra af svip­uðu sauða­húsi eiga það ekki skilið.“

Robert Downey, sem hét áður Róbert Árni Hreið­ars­son, var dæmdur í þriggja ára fang­elsi árið 2008

fyrir að brjóta gegn fjórum stúlkum, einni fjórtán ára og þremur fimmtán ára. Hann komst í sam­band við stúlk­urnar með blekk­ingum og þótt­ist Robert vera 17 ára gam­all ung­lings­piltur sem héti Rikki í sam­skiptum við eina þeirra í gegnum netið. Hann greiddi tveimur stúlkn­anna fyrir kyn­mök. Forseti Íslands veitti honum upp­reist æru í sept­em­ber 2016 og í júni fékk hann lög­manns­rétt­indi sín aftur.

Meiri­hluti nefnd­ar­manna í Stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd gekk út af fundi í gær­morgun þegar þeim var gefin nöfn þeirra sem skrif­uðu undir með­mæli þess efnis að Robert Dow­ney yrði veitt upp­reist æru. Um var að ræða alla almenna nefnd­ar­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans. Í kjöl­farið lýsti Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, yfir van­trausti á Brynj­ar Níels­son, for­mann nefnd­ar­inn­ar. 

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar og heil­brigð­is­ráð­herra, tjáði sig líka um málið í morgun. Í stöðu­upp­færslu a Facebook sagði hann upp­á­koman í nefnd­inni, þegar nefnd­ar­menn stjórn­ar­flokka gengu út, hefði virkað„furðu­leg“. „ Hún þarfn­ast skýr­inga og ég skil ekki þau rök sem komið hafa fram . Það flækir og gerir erfitt fyrir því að ná saman um góð og bætt vinnu­brögð. Ef ekki er þörf á að kynna sér mál í nefnd má óska eftir frá­vísun eða frestun. Við þurfum að vanda okkur þegar við fjöllum um við­kvæm mál. Mann­rétt­indi eru ekki flokkspóli­tísk í eðli sínu heldur verk­efni allra sem starfa í stjórn­málum. Það er margt ófull­komið og sumt getur verið erfitt í fram­kvæmd en það er engin afsökun fyrir því að ganga ekki til verks og ganga til góðs. Þá er borð­leggj­andi að leggja af þessar fár­an­legu reglur sem gefa í skyn að æra sé eitt­hvað sem sé á færi opin­bera aðila að möndla með eða reisa við.“ Björt fram­tíð á ekki full­trúa í nefnd­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár