Stefnan á hendur Björgólfi Thor 50 síður - Kjarninn birtir brot úr henni

Söguleg hóp­mál­sókn fyrrum hlut­hafa í Lands­bank­anum á hendur Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni verður þing­fest á morgun.

Klukkan tíu í fyrra­málið verður þing­fest hóp­mál­sókn fyrrum hlut­hafa í Lands­banka Íslands gegn Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni, rík­asta Íslend­ingnum og einum rík­asta manni í heimi. Hlut­haf­arnir fyrr­ver­andi hafa myndað mál­sókn­ar­fé­lag og í dag hafa á þriðja hund­rað aðilar sam­þykkt að taka þátt í mál­inu gegn Björgólfi Thor. Á meðal þeirra eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Máls­höfð­unin verður sú fyrsta sinnar teg­undar á Íslandi er lýtur að dóms­málum sem tengj­ast banka­hrun­inu. Aldrei áður hafa fyrrum hlut­hafar í íslenskum banka tekið sig saman og stefnt fyrrum aðal­eig­anda hans fyrir að hafa blekkt sig með sak­næmum hætti til að eiga í bank­anum. Og krefj­ast skaða­bóta fyrir. Björgólfur Thor hefur ávallt neitað sök og sagt máls­höfð­un­ina vera gróðra­brall lög­manna sem að henni starfa.

Kjarninn hefur stefn­una í mál­inu, sem er 50 blað­síður að lengd, undir höndum.

Kaupa verðlaus hlutabréf til að taka þátt

Frétta­blaðið greindi frá því í morgun að 207 aðilar hafi þegar til­kynnt að þeir taki þátt í hóp­mál­sókn­inni. Á meðal þeirra Karen Millen, Kristján Loftsson í Hval, Bolli Héð­ins­son hag­fræð­ingur, Svana Helen Björns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins, Líf­eyr­is­sjóður verk­fræð­inga, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna íslenskra sveit­ar­fé­laga, líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Stapi og Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Búist er við að það fjölgi í hópnum næstu daga. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru fleiri líf­eyr­is­sjóðir meðal ann­ars að skoða aðkomu að stefn­unni.

Auk þess hafa ein­hverjir aðilar keypt hluta­bréf í Lands­bank­anum af fyrrum eig­endum þeirra til þess eins að geta tekið þátt í mál­sókn­inni, en það fellur til kostn­aður vegna þátt­töku í henni. Kjarninn hefur ekki upp­lýs­ingar um hvernig slík hluta­bréf eru verð­metin. Þ.e. bréf í banka sem féll fyrir rúmum sjö árum og eru verð­laus.

Kenna blekkingum Björgólfs um tjón sitt

Mál­sókn­ar­fé­lagið var stofnað af fjórum fyrrum hlut­höfum í Lands­bank­anum, Vil­hjálmi Bjarna­syni alþing­is­manni, Ólafi Krist­ins­syni lög­manni, Stapa líf­eyr­is­sjóði og Samtökum spari­fjár­eig­enda. Síðan hafa ansi margir sleg­ist í hóp­inn.

Það krefst þess að skaða­bóta­skylda Björg­ólfs Thors á því tjóni sem aðilar að félag­inu urðu fyrir þegar hluta­bréf í Lands­bank­anum urðu verð­laus við fall hans 7. októ­ber 2008. Í stefn­unni kemur fram að félags­menn byggi mál­sókn­ina á því „að þeir hefðu ekki verið hlut­hafar í Lands­banka Íslands hf. og þar með ekki orðið fyrir tjóni, ef ekki hafði komið til hinnar sak­næmu og ólög­mætu hátt­semi stefnda [Björg­ólfs Thors]“.

Það sem mál­sókn­ar­fé­lagið telur að Björgólfur Thor hafi gert, og hafi ollið þeim skaða, er þrennt. Í fyrsta lagi hafi ekki verið veittar upp­lýs­ingar um lán­veit­ingar Lands­banka Íslands til Björg­ólfs Thors og tengdra aðila í árs­reikn­ingum bank­ans fyrir rekstr­ar­árið 2005 og í öllum upp­gjörum eftir það fram að hruni.

Í öðru lagi hafi Björgólfur Thor van­rækt á tíma­bil­inu 30. júní 2006 til 7. októ­ber 2008, að „upp­lýsa opin­ber­lega um að Samson eign­ar­halds­fé­lag ehf. [Í aðal­eigu Björg­ólfs Thors og föður hans] færi með yfir­ráð yfir Lands­banka Íslands hf., og teld­ist því móð­ur­fé­lag bank­ans“.

Í þriðja lagi telur félagið að Björgólfur Thor hafi van­rækt að „sjá til þess að Samson eign­ar­halds­fé­lag ehf. gerði öðrum hlut­höfum Lands­banka Íslands hf. yfir­tökutil­boð hinn 30. júní 2006, eða síðar, í sam­ræmi við ákvæði laga um verð­bréfa­við­skipti“.

Mála­vextir eru síðan raktir í löngu máli. Nánar til­tekið nær sú upp­taln­ing yfir á fimmta tug blað­síðna.

Ætla að leggja fram mikið magn gagna

Í lok stefn­unnar er farið yfir þau sönn­un­ar­gögn sem mál­sókn­ar­fé­lagið hyggst leggja fram til stuðn­ings máli sínu.

Þar segir að eft­ir­far­andi gögn verði lögð fram við máls­með­ferð­ina: „Sam­skipti eig­enda Samson við FME vegna umsóknar um heim­ild til að fara með virkan eign­ar­hlut í Lands­bank­anum og sam­skipti sömu aðila í tengslum við við­var­andi eft­ir­lit með hæfi eig­enda Samson, minnis­p­unkta af fundi hjá PWC sem hald­inn var þann 20. októ­ber 2005, sam­skipti í aðdrag­anda og kaup­samn­ing Samson og Hersis, sam­skipti starfs­manna Samson og Novators við starfs­menn Lands­bank­ans vegna mats á því hvort stefndi [Björgólfur Thor] skuli telj­ast tengdur aðili við Lands­bank­ann, sam­skipti starfs­manna Samson og Novators, við starfs­menn Lands­bank­ans í Lúx­em­borg og sam­skipti sömu aðila við starfs­menn lög­manns­stofu á Kýpur, yfir­lýs­ingu Björg­ólfs Guð­munds­sonar til PWC í jan­úar 2008, árs­reikn­inga og árs­hluta­reikn­inga Lands­bank­ans frá 2005.

Árs­reikn­inga Samson frá 2005 til 2008 og árs­reikn­inga Hersis fyrir sama tíma, upp­lýs­ingar úr hluta­skrá Lands­bank­ans, sem og skýrslur um eigin hluti bank­ans, upp­lýs­ingar og skjöl vegna aflands­fé­laga Lands­bank­ans, end­ur­rit af skýrslum sem gefnar voru fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur“ í máli sem mál­sókn­ar­fé­lagið hafði höfðað vegna gagna­öfl­unnar á árinu 2012.

Sakar Vilhjálm Bjarnason um þráhyggju

Björgólfur Thor tjáði sig um málið á heima­síðu sinni, btb.is, fyrr í dag. Þar sagði hann að störfum hlaðið dóms­kerfi Íslands þurfi nú að bæta á sig duttl­ungum Vil­hjálms Bjarna­sonar. "Málefni mín og bank­ans hafa verið rann­sökuð í þaula af þar til bærum yfir­völdum og ekki talin ástæða til aðgerða í nokkru þeirra. Þar að auki hef ég gert upp allar mínar skuldir við bank­ann og hann því skað­laus af við­skiptum við mig. Slita­stjórn bank­ans hefur stað­fest að hann eigi engar kröfur á mig. Mis­færslum í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar hef ég svarað ítar­lega enda hef ég ekk­ert sak­næmt unnið.

Þrá­hyggja Vil­hjálms Bjarna­sonar á sér hins vegar lítil tak­mörk. Með hana að vopni sér hann rang­færslur og svik þar sem sér­fróðir rann­sak­endur sjá ekk­ert aðfinnslu­vert. Það er illt að dóms­kerfið þurfi að eyða tíma sínum í slíkan mála­til­búnað."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár