Á þriðja hundrað manns taka þátt í hópmálsókn gegn Björgólfi Thor

Mál gegn fyrrum aðal­eig­anda gamla Lands­bank­ans þing­fest í hér­aðs­dómi Reykja­víkur á morgun.

Alls taka 207 aðilar þátt í hóp­mál­sókn á hendur Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni, fjár­festi og fyrrum aðal­eig­anda Lands­banka Íslands, sem þing­fest verður fyrir hér­aðs­dómi á morgun. Á meðal þeirra sem taka þátt í mál­sókn­inni eru Karen Millen, Kristján Loftsson í Hval, Bolli Héð­ins­son hag­fræð­ingur, Svana Helen Björns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins, Líf­eyr­is­sjóður verk­fræð­inga, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna íslenskra sveit­ar­fé­laga, líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Stapi og Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þeir sem að mál­sókn­inni standa búist við því að fleiri bæt­ist í hóp­inn. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Greint var frá því í júní að hópur fyrrum hlut­hafa gamla Lands­bank­ans væri búinn að stofna hóp­mál­sókn­ar­fé­lag og ætl­aði að stefna Björgólfi Thor fyrir að dylja raun­veru­legt eign­ar­hald sitt í bank­anum svo hann þyrfti ekki að upp­lýsa um stór­tæk lána­við­skipti sín við hann og fyrir að bregð­ast ekki við þegar yfir­töku­skylda á bank­anum mynd­að­ist á árinu 2006. Erf­ið­lega gekk að birta Björgólfi Thor stefnu í mál­inu en það hefur nú tek­ist. Í því verður ekki sóst eftir sér­stökum bótum heldur verður látið reyna á hvort bóta­skylda sé fyrir hendi. Reynist hún vera fyrir hendi verður reynt að finna út hvert mögu­legt tjón hlut­haf­anna var.

Björgólfur Thor hafnar ásök­unum hóps­ins. Hann segir mál­sókn­ina gróðra­brall lög­manna sem að henni standa og áskilur sér rétt til að sækja bætur til félags­manna í hóp­mál­sókn­ar­fé­lag­inu fyrir rangar saka­giftir. Félagið fékk Ragnar H. Hall hæsta­rétt­ar­lög­mann til að vinna fyrir sig lög­fræði­á­lit um þetta atriði. Nið­ur­staða hans, sam­kvæmt frá­sögn Frétta­blaðs­ins, er sú Björgólfur Thor geti ekki sótt bætur til félags­manna á þessum for­sendum.

Margra ára aðdragandi

Und­ir­bún­ingur máls­höfð­un­ar­innar hefur staðið frá árinu 2011 þegar heil­síðu­aug­lýs­ingar birt­ust í íslenskum dag­blöðum þar sem skorað var á hlut­hafa í gamla Lands­bank­anum að taka þátt í mögu­legri hóp­mál­sókn gegn Björgólfi Thor. Á meðal þeirra sem stóðu að und­ir­bún­ingnum var Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og lög­mað­ur­inn Ólafur Krist­ins­son. Síðan þá hefur und­ir­bún­ingur máls­höfð­un­ar­innar staðið yfir og hóp­ur­inn hefur meðal ann­ars höfðað vitna­mál á hendur Björgólfi Thor og sam­starfs­manni hans til að nálg­ast ákveðnar upp­lýs­ingar. Auk þess hefur hóp­ur­inn fengið gögn frá slita­stjórn gamla Lands­bank­ans við und­ir­bún­ing­inn.

Í Kast­ljósi í júní, þar sem fjallað var um mál­sókn­ina, kom fram að málið hafi verið kynnt fyrir þeim líf­eyr­is­sjóðum sem áttu hlut í Lands­bank­anum á árunum 2005 til 2008 og að þeir séu að skoða þátt­töku í mál­sókn­inni. Ný er ljóst að að minnsta kosti þrír þeirra ætla að taka þátt. Alls voru hlut­hafar í gamla Lands­bank­anum um 25 þús­und tals­ins þegar hann féll haustið 2008.

Yfirtökuskylda og of há lán

Í umfjöllun Kastljós kom meðal ann­ars fram að hóp­ur­inn telji að Björgólfur Thor hafi með skipu­legum hætti, og með þátt­töku starfs­manna sinna, unnið að því að koma í veg fyrir að upp­lýs­ingar um umfang lán­veit­inga bank­ans til Björg­ólfs Thors. birt­ust opin­ber­lega. Þetta hafi verið gert með því að dylja hversu stóran hlut Björgólfur Thor hafi raun­veru­lega átt í bank­anum.

Í stefn­unni í mál­inu kemur fram að lán Lands­bank­ans til Björg­ólfs Thor hafi verið langt umfram heim­ildir á árinu 2005 og að á árinu 2006 hafi eign­ar­hald Lands­bank­ans þjapp­ast það mikið saman að það hafi mynd­ast yfir­töku­skylda á Björgólf Thor, sem hann hafi hunsað. Með því hafi hann brugð­ist þeirri skyldu sinni að vernda lög­bundin rétt­indi minni hlut­hafa í bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár