Björgólfur Thor segir málsókn gegn honum vera gróðabrall lögmanna

Lögsókn hóps fyrrum hlut­hafa í gamla Lands­bank­anum gegn Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni er gróða­brall lög­mann­anna sem fara með málið. Þetta segir Björgólfur í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér í dag.

Í Kast­ljósi í gær kom fram að á næstu vikum verði Björgólfi sem fyrrum aðal­eig­anda bank­ans stefnt fyrir að dylja raun­veru­legt eign­ar­hald sitt í bank­anum svo hann þyrfti ekki að upp­lýsa um stór­tæk lána­við­skipti sín við hann. Einnig fyrir að bregð­ast ekki við þegar yfir­töku­skylda á bank­anum mynd­að­ist árið 2006. Hann hafi brugð­ist skyldu sinni að vernda lög­bundin rétt­indi minni hlut­hafa í bank­anum. Aðeins á að láta reyna á það fyrir dómi hvort bóta­skylda sé fyrir hendi gagn­vart hlut­höf­unum. Lesa má meira um mál­sókn­ina hér.

Björgólfur Thor segir að lög­menn­irnir hafi þegar borið háar þókn­arnir úr býtum vegna máls­ins. „Af opin­berum gögnum má sjá að lög­menn­irnir hyggj­ast til við­bótar við þegar heimtar þókn­anir hafa af mál­sókn­ar­fé­lag­inu 25 milljón krónur í þókn­anir fyrir að reka mál um við­ur­kenn­ingu bóta­skyldu. Þetta ætla þeir sér jafn­vel þótt málið tap­ist. Þá fá þeir að auki 5.000 krónur greiddar frá félag­inu fyrir hvern félags­mann. Að auki verða félags­menn að greiða allan annan kostnað vegna máls­ins, til dæmis vegna vinnu sér­fræð­inga sem lög­menn­irnir kalla að mál­inu,“ segir Björgólfur í yfir­lýs­ingu sinni. Lög­menn­irnir muni líka fá tíu pró­sent af dæmdum skaða­bótum ef til þess kæmi að þær yrðu dæmdar. „Málið er því gróða­brall lög­mann­anna sem hagn­ast óháð nið­ur­stöðu máls­ins.“

Björgólfur segir að lög­menn­irnir vilji því lokka til sín mik­inn fjölda hlut­hafa og hafi mætt í Kastljós í aug­lýs­inga­skyni. Þar hafi þeir haldið fram „röngum, ófull­nægj­andi og vill­andi upp­lýs­ingum.“ Hann segir því rang­lega hafa verið haldið fram að við­skipti Samsonar með hluti hafi verið mála­mynda­gern­ingar sem ekki hafi verið efndir, og einnig rang­lega haldið fram að Lands­bank­inn í Lúx­em­borg hafi verið eig­andi hluta sem geymdir voru á vörslu­reikn­ingi við­skipta­vinar.

Björgólfur seg­ist ætla að beina kvörtun til úrskurð­ar­nefndar lög­manna vegna þess sem hann kallar „aug­lýs­inga­skrum“.

Þeir sem hæst hafa fría sig ábyrgð á kostnað almennra hluthafa


Björgólfur Thor segir einnig að ef honum verði dæmdur máls­kostn­aður í mál­inu muni hann geta valið „hvaða félags­mann sem er og krafið hann um allan kostn­að­inn“ vegna þess að félagar í mál­sókn­ar­fé­lag­inu beri óskipta ábyrgð. Auk þess beri mál­sókn­ar­fé­lagið allan kostnað af mála­rekstr­inum en fjár­hags­leg ábyrgð félags­manna nái enn lengra. „Leiði rangar ásak­anir lög­manna í minn garð til tjóns bera félags­menn óskipta ábyrgð á hugs­an­legum bótum. Þeir sem hafa hæst í mál­inu fría sig þannig ábyrgð á kostnað almennra hlut­hafa.“

Yfirlýsing frá Björgólfi Thor Björgólfssyni:


Tug­millj­óna kostn­aður lagður á hlut­hafa


Kvörtun til Lög­manna­fé­lags­ins vegna brots á siða­reglum


Lögmenn í Reykja­vík hafa stofnað mál­sókn­ar­fé­lag um mál gegn mér. Lög­menn­irnir hafa um margra ára skeið velkst með málið, án þess að nokkuð mark­vert hafi komið fram. Lög­menn­irnir hafa borið háar þókn­anir úr býtum.


Af opin­berum gögnum má sjá að lög­menn­irnir hyggj­ast til við­bótar við þegar heimtar þókn­anir hafa af mál­sókn­ar­fé­lag­inu 25 milljón krónur í þókn­anir fyrir að reka mál um við­ur­kenn­ingu bóta­skyldu. Þetta ætla þeir sér jafn­vel þótt málið tap­ist. Þá fá þeir að auki 5.000 krónur greiddar frá félag­inu fyrir hvern félags­mann. Að auki verða félags­menn að greiða allan annan kostnað vegna máls­ins, til dæmis vegna vinnu sér­fræð­inga sem lög­menn­irnir kalla að mál­inu. Þóknanir lög­manna og annar kostn­aður við rekstur máls­ins mun því telja í millj­ónum tuga óháð nið­ur­stöðu þess. Fái hlut­hafar skaða­bætur dæmdar, sem mér virð­ist reyndar úti­lokað og verður ekki fjallað um í mál­inu sem nú á að höfða, ætla lög­menn­irnir sér 10% af dæmdum skaða­bótum, ofan á allar þókn­anir.


Málið er því gróða­brall lög­mann­anna sem hagn­ast óháð nið­ur­stöðu máls­ins. Til að ganga í mál­sókn­ar­fé­lagið þarf að greiða aðgangs­eyri, að lág­marki 5.000 krónur en stig­hækk­andi eftir því hve marga hluti við­kom­andi hlut­hafi átti.


Til að fá greiðslu þókn­ana sinna vilja lög­menn­irnir eðli­lega lokka mik­inn fjölda hlut­hafa til máls­ins. Því er e.t.v. ekki að undra að lög­menn­irnir séu til­búnir að beita vafasömum með­ölum.


Þeir freist­uð­ust til að mæta í Kastljós í gær­kvöldi í aug­lýs­inga­skyni þar sem þeir héldu fram röngum, ófull­nægj­andi og vill­andi upp­lýs­ingum. Þeir hafa, svo fátt eitt sé nefnt, rang­lega haldið því fram að við­skipti Samsonar með hluti bank­ans hafi verið mála­mynda­gern­ingar sem hafi aldrei verið efndir. Þá hafa þeir rang­lega haldið því fram að Lands­bank­inn í Lúx­em­borg hafi verið eig­andi hluta sem geymdir voru á vörslu­reikn­ingi við­skipta­vinar bank­ans. Þetta allt gera þeir til að lokka til sín við­skipta­vini á röngum for­sendum.


Þetta er óásætt­an­legt. Ætla má að þetta aug­lýs­inga­skrum lög­mann­anna brjóti í bága við 42. gr. siða­reglna lög­manna. Ég hlýt að beina kvörtun vegna þessa til úrskurð­ar­nefndar lög­manna.


Óskipt ábyrgð félags­manna


Nái lög­menn­irnir fram vilja sínum og leggi mál fyrir dóm bera félagar mál­sókn­ar­fé­lags­ins óskipta ábyrgð á mál­inu gagn­vart mér, sam­kvæmt sam­þykktum félags­ins sjálfs. Verði mér dæmdur máls­kostn­aður get ég því valið hvaða félags­mann sem er og krafið hann um allan kostn­að­inn, ekki bara hlut­deild hans.


Þá bera félags­menn óskipta ábyrgð á þóknun lög­mann­anna, 25 millj­ónum króna, auk alls ann­ars kostn­aðar við rekstur máls­ins sem getur talið í millj­ónum. Samn­ingur við lög­menn gerir m.a. ráð fyrir kostn­aði erlendis. Sá kostn­aður er enn óskil­greindur, en félags­menn bera samt óskipta ábyrgð á honum. Lög­menn­irnir geta krafið hvern og einn félags­mann um alla þóknun sína og allan kostnað af rekstri máls­ins, ekki bara hlut­deild hans.


En fjár­hags­leg ábyrgð félags­manna nær enn lengra en bara til kostn­aðar við mála­rekst­ur­inn. Leiði rangar ásak­anir lög­manna í minn garð til tjóns bera félags­menn óskipta ábyrgð á hugs­an­legum bótum. Þeir sem hafa hæst í mál­inu fría sig þannig ábyrgð á kostnað almennra hlut­hafa.


Björgólfur Thor Björg­ólfs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár