Fyrrum hluthafar Landsbankans ætla að stefna Björgólfi Thor á næstu vikum

Hópur fyrrum hlut­hafa gamla Lands­bank­ans er búinn að stofna hóp­mál­sókn­ar­fé­lag og ætlar að stefna Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni, fyrrum aðal­eig­anda bank­ans, fyrir að dylja raun­veru­legt eign­ar­hald sitt í bank­anum svo hann þyrfti ekki að upp­lýsa um stór­tæk lána­við­skipti sín við hann og fyrir að bregð­ast ekki við þegar yfir­töku­skylda á bank­anum mynd­að­ist á árinu 2006. Stefna í mál­inu er til­búin og búist er við því að Björgólfi Thor verði stefnt á næstu vikum. Í mál­inu verður ekki sóst eftir sér­stökum bótum heldur verður látið reyna á hvort bóta­skylda sé fyrir hendi. Reynist hún vera fyrir hendi verður reynt að finna út hvert mögu­legt tjón hlut­haf­anna var. Þetta kom fram í Kast­ljósi kvölds­ins.

Björgólfur Thor hafnar ásök­unum hóps­ins.

Margra ára aðdragandi


Und­ir­bún­ingur máls­höfð­un­ar­innar hefur staðið frá árinu 2011 þegar heil­síðu­aug­lýs­ingar birt­ust í íslenskum dag­blöðum þar sem skorað var á hlut­hafa í gamla Lands­bank­anum að taka þátt í mögu­legri hóp­mál­sókn gegn Björgólfi Thor. Á meðal þeirra sem stóðu að und­ir­bún­ingnum var Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og lög­mað­ur­inn Ólafur Krist­ins­son. Síðan þá hefur und­ir­bún­ingur máls­höfð­un­ar­innar staðið yfir og hóp­ur­inn hefur meðal ann­ars höfðað vitna­mál á hendur Björgólfi Thor og sam­starfs­manni hans til að nálg­ast ákveðnar upp­lýs­ingar. Auk þess hefur hóp­ur­inn fengið gögn frá slita­stjórn gamla Lands­bank­ans við und­ir­bún­ing­inn.

Í Kast­ljósi kom fram að málið hafi verið kynnt fyrir þeim líf­eyr­is­sjóðum sem áttu hlut í Lands­bank­anum á árunum 2005 til 2008 og að þeir séu að skoða þátt­töku í mál­sókn­inni. Alls voru hlut­hafar í gamla Lands­bank­anum um 25 þús­und tals­ins þegar hann féll haustið 2008.

Yfirtökuskylda og of há lán


Í umfjöllun Kastljós kom meðal ann­ars fram að hóp­ur­inn telji að Björgólfur Thor hafi með skipu­legum hætti, og með þátt­töku starfs­manna sinna, unnið að því að koma í veg fyrir að upp­lýs­ingar um umfang lán­veit­inga bank­ans til Björg­ólfs Thors. birt­ust opin­ber­lega. Þetta hafi verið gert með því að dylja hversu stóran hlut Björgólfur Thor hafi raun­veru­lega átt í bank­anum.

Í stefn­unni í mál­inu kemur fram að lán Lands­bank­ans til Björg­ólfs Thor hafi verið langt umfram heim­ildir á árinu 2005 og að á árinu 2006 hafi eign­ar­hald Lands­bank­ans þjapp­ast það mikið saman að það hafi mynd­ast yfir­töku­skylda á Björgólf Thor, sem hann hafi hunsað. Með því hafi hann brugð­ist þeirri skyldu sinni að vernda lög­bundin rétt­indi minni hlut­hafa í bank­anum.

Viðbót klukkan 21:02


Yfir­lýs­ing frá Ragn­hildi Sverr­is­dóttur, tals­manni Björg­ólfs Thors:

"Vil­hjálmur Bjarna­son og félagar hafa byggt álykt­anir sínar um meintar blekk­ingar á þeirri stað­reynd, að sam­starfs­menn Björg­ólfs Thors áttu lít­inn hlut í félagi, sem aftur átti hlut í Lands­bank­anum. Slíkt eign­ar­hald var og er full­kom­lega eðli­legt og allar upp­lýs­ingar um það lágu fyrir á hverjum tíma hjá Lands­bank­anum og Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Að sama skapi lágu fyrir tæm­andi upp­lýs­ingar um skuld­bind­ingar Björg­ólfs Thors gagn­vart Lands­bank­anum. Umræddur eign­ar­hlutur hefur ekk­ert með þær skuld­bind­ingar að gera. Þá er rétt að benda á, að í skulda­upp­gjöri Björg­ólfs Thors fólst að hann gerði upp allar skuldir sínar við Lands­banka Íslands. Lán bank­ans til hans og fyr­ir­tækja tengdum honum voru sann­ar­lega mikil, en að sama skapi voru inn­eignir miklar og trygg­ingar öruggar, sem sést best á skulda­upp­gjör­inu.

---

Tæp fimm ár eru frá fyrstu fréttum um að Ólafur Krist­ins­son lög­maður ætl­aði að efna til hóp­mál­sóknar gegn Björgólfi Thor. Ári síðar sagð­ist hann hafa nokkur hund­ruð fyrr­ver­andi hlut­hafa í Lands­bank­anum með sér í liði, hefði fengið stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu frá líf­eyr­is­sjóðum og fleiri sjóðir ætl­uðu að taka afstöðu þá um helg­ina, þ.e. í sept­em­ber 2011. Afstaða líf­eyr­is­sjóð­anna er ljós. Þeir halda sig fjarri, að Stapa einum und­an­skildum.

Vil­hjálmur Bjarna­son gekk til liðs við Ólaf árið 2012 og höfð­aði vitna­mál til að afla gagna. Ekkert kom fram í því máli, sem studdi við til­gátur þeirra um skaða­bóta­skyldu. Björgólfur Thor hefur ávallt verið þeirrar skoð­unar að eðli­legra sé að reka dóms­mál í rétt­ar­sal, en ekki í fjöl­miðlum. Af hans hálfu verður mál­inu svarað ítar­lega á þeim vett­vangi."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár