Ríkisstjórn með kynjasjónarmið að leiðarljósi hefði metið aðgerðir sínar út frá jafnrétti

Andrés Ingi Jónsson segir að ef rík­is­stjórn­inni væri alvara með að hafa kynja­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi þá hefði hún metið allar aðgerðir sínar vegna COVID-19 far­ald­urs­ins út frá áhrifum á jafn­rétti.

Andrés Ingi Jónsson
Andrés Ingi Jónsson Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Er jafn­réttið afgangs­stærð?“ spyr Andrés Ingi Jónsson, þing­maður utan flokka, í hug­leið­ingum í frétta­bréfi sínu sem hann sendi út í dag.

Hann segir að það skíni oft í gegn hversu mikið vanti upp á þær djúpu grein­ingar sem þyrftu að liggja fyrir áður en póli­tíkin taki ákvarð­anir. Þetta hafi komið óvenju vel í ljós varð­andi jafn­rétt­is­mat á áhrifum aðgerða­pakka rík­is­stjórn­ar­innar.

Andrés Ingi bendir á að sama dag og for­sæt­is­ráð­herra sagði að það skipti „miklu máli að við séum með kynja­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi í við­brögðum okkar við Covid 19-far­aldr­inum“ hafi kveðið við annan tón í grein­ar­gerð Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra. Þar stendur: „Fram­an­greindar félags­legar aðgerðir voru metnar út frá áhrifum á jafn­rétti kynj­anna með aðferðum kynj­aðrar fjár­laga­gerðar. Æskilegt hefði verið að meta aðrar aðgerðir með sam­bæri­legum hætti en ekki vannst tími til þess fyrir fram­lagn­ingu frum­varps­ins.“

Þing­mað­ur­inn segir að ef rík­is­stjórn­inni væri alvara með að hafa kynja­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi þá hefði hún metið allar aðgerðir sínar út frá áhrifum á jafn­rétti. Mat á áhrifum laga­setn­ingar þurfi alltaf að liggja fyrir, ekki bara þegar það henti vel. „Þess vegna lagði ég fyrr í vetur fram frum­varp sem myndi skylda ráð­herra til að líta til áhrifa á jafn­rétti kynj­anna – og reyndar líka lofts­lags­á­hrifa laga­setn­ingar – en í dag eru fjár­hags­leg áhrif þau einu sem er skylt að gera grein fyrir.“

Stórundarlegar tillögur inn á milli

Andrés Ingi telur enn fremur að það hafi komið á óvart þegar pakki tvö birt­ist í þess­ari viku að hann hafi ekki verið nema þriðj­ungur af stærð fyrsta pakk­ans. „Á móti kemur að núna eru aðgerð­irnar von­andi hnit­mið­aðri og það eru ýmsar góðar félags­legar áherslur í stuðn­ingi við fólk. Inn á milli eru samt stór­und­ar­legar til­lögur eins og að láta neyt­endur lána ferða­skrif­stof­um fé, frekar en að finna ein­hverja sam­fé­lags­lega lausn á vanda ferða­skrif­stof­anna,“ skrifar hann.

Þá von­ast hann til að þingið nái að bæta aðgerða­pakk­ann á næstu dögum, til að mynda með því að meta hags­muni litlu rekstr­ar­að­il­ana í ferða­þjón­ustu „sem virð­ist lítið hafa verið rætt við á fyrri stigum. Og von­andi fást stjórn­ar­liðar til að taka góðar hug­myndir stjórn­ar­and­stöðu inn í þess­ari umferð, frekar en að fella þær núna og end­ur­vinna þær inn í næsta aðgerða­pakka rík­is­stjórn­ar­innar – eins og gerð­ist síð­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár