Malt og appelsín á krana á ameríska vísu

Hillary Clinton er lík­leg­ust til að verða for­seti Banda­ríkj­anna núna áður en for­vali stóru flokk­anna er lokið. Bryndís Ísfold, útsend­ari Kjarnans í Banda­ríkj­unum, var við­stödd fram­boðs­fund Clinton í New York þar sem þakið ætl­aði að rifna af hús­inu.

Hillary Clinton á framboðsfundi í New York í síðustu viku. Stemmningin var gríðarlega góð á fundinum eins og útsendari Kjarnans komst að raun um.
Hillary Clinton á fram­boðs­fundi í New York í síð­ustu viku. Stemmn­ingin var gríð­ar­lega góð á fund­inum eins og útsend­ari Kjarnans komst að raun um.

„Secret service“ stóð feit­letrað framan á skot­helda vesti örygg­is­gæslu­manna í Jacob Javits-ráð­stefnu­höll­inni, þar sem Hillary Clinton hélt fund með stuðn­ings­mönnum. Það var mið­viku­dagur eftir súper-þriðju­dag og hún var mætt í sitt heima­ríki til að ávarpa stuðn­ings­menn, sjö ríkjum rík­ari eftir góðan sigur á þriðju­dag. Á meðan verið var að róta í tösk­unni minni með vasa­ljósi, gekk ég and­spænis fleiri aðilum leyni­þjón­ust­unnar. Þessir voru klæddir í ódýr jakka­föt og úr hálskrag­anum lág hvít hring­laga snúra upp eftir háls­inum og bak við eyrað. Þeir voru þrír og stóðu þarna eins og varn­ar­menn í fót­bolta, til­búnir að verja sig um miðj­una ef bolt­inn skyldi óvart rata þangað. Skimandi í allar áttir.

Þegar ég gekk fram­hjá reyndi ég að gera upp við mig hvort grun­sam­legra væri að forð­ast augn­sam­band eða horfa þráð­beint í augun á þeim. Ekki hafði ég nokkuð að fela, nema kannski þá stað­reynd að ég var þarna á fölskum for­sendum, ég hafði ekki einu sinni kosn­inga­rétt í land­inu, sem lík­lega fór fram­hjá fram­boð­inu þegar þau buðu mér sér­stak­lega á þennan við­burð.

Eftir kjör­fundi í tólf ríkjum á súper-þriðju­degi og fimm ríkjum síð­ast­lið­inn laug­ar­dag er Hillary Clinton, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, með tölu­verða yfir­burði fram yfir Bernie Sanders öld­unga­deild­ar­þing­mann­inn frá Vermont. Ef talin eru með þau atkvæði sem elíta flokks­ins mun greiða og hefur lofað öðrum hvorum fram­bjóð­and­anum á flokks­þing­inu í júní þá hefur hún 1121 atkvæði en Sanders 481. Án atkvæða elít­unnar er Hillary með 663 atkvæði og Sanders 459 atkvæði. Það er því ljóst að það er á bratt­ann að sækja fyrir Sanders ef hann ætlar að sigra Hillary, en alls ekki úti­lokað.

Hjá repúblikön­unum hefur Cruz náð að minnka for­ystu Trumps sem hefur nú 382 atkvæði eða kjör­menn en Cruz 300. Lestina reka svo þeir Rubio með 128 og Kasich með 35. Sigur Cruz í Texas á þriðju­dag, þar sem hann fékk 102 kjör­menn og sigur hans á tveimur ríkjum á laug­ar­dag hefur styrkt stöðu hans til muna. Eftir þessa hrinu for­vala er ljóst að Rubio á litla sem enga mögu­leika á útnefn­ing­unni en hann hefur, bæði leynt og ljóst, verið vona­stjarna for­ystu flokks­ins. Þó erfitt sé að segja að hann sé hóf­samur í skoð­unum hefur hann þó verið tal­inn lík­legri til að ná til miðj­unnar. Sem dæmi má nefna að Rubio er, líkt og Cruz og Trump, á móti öllum frek­ari tak­mörk­unum á byssu­eign, hefur efa­semdir um að hlýnun jarðar sé af manna­völdum, vill ekki hleypa sýr­lenskum flótta­mönnum inn í landið og vilja leggja niður Obamacare, sem veitti millj­ónum banda­ríkja­manna heil­brigð­is­trygg­ingu á síð­asta ári.

Cruz er nátengdur svo­kall­aðri teboðs­hreyf­ingu og talar mikið um Guð og trú sína í ræðum. Stundum hljómar hann meira eins og predik­ari í kirkju en fram­bjóð­andi. En Cruz á ekki langt að sækja þessa takta því Rafael Cruz faðir hans, sem einnig er inn­flytj­andi frá Kúbu, er einmitt prestur í kirkju í Dallas, Texas.

Heyra mátti í kapp­ræðum repúblik­ana að allir fram­bjóð­endur ákalla Guð sér til hjálpar til að fá til liðs við sig fleiri kjós­endur. Eini fram­bjóð­and­inn sem er lík­legur til að tala um allt annað líka er svo Trump, sem lét þau ummæli falla að menn ættu að spá í stærð­ina á hönd­unum á sér og gætu þar af leið­andi verið full­vissir um að aðrir lík­ams­partar væru í stærra lagi líka...

Þrátt fyrir að Trump hafi haldið athygli fjöl­miðla með gríni og glensi héldu þeir Rubio og Cruz áfram að sækja að Trump með bæri­legum árangri.

Þegar búið var að skanna mig fram og til baka var mér hleypt inn í sal­inn þar sem smærra svæði innan hans var afmarkað með him­in­háum fánum, sem teygðu sig úr lofti niður á gólf. Fyrir miðju sal­ar­ins var lítið svið með púlti á. Á móti púlt­inu og til hliðar við það voru svo raðir sjón­varps­mynda­véla og ljós­mynd­arar sátu þétt í neðri röðum bekkj­anna og mund­uðu löngu linsurnar sínar. Fyrir aftan sviðið röð­uðu verka­lýðs­hreyf­ing­arnar sér upp í hópum, undir borða sem á stóð „Smiðir fyrir Hillary“ og álíka. Þar voru sterk­lega vaxnir menn á öllum aldri í rykugum þykkum úlpum, í Caterpillar skóm, með örygg­is­hálma á höfð­inu. Hér var engin eins­leitni. Hægra megin í salnum var við­skipta­fólkið mætt í Armani-jakk­fötum og drögtum, fólk af öllum mögu­legum upp­runa. Eina sem hefði mátt vera meira af var ungt fólk. Það var því lík­lega sökum „æsku minnar“, sem slær fjóra tugi að ári, að fékk ég úthlutað sæti á besta stað í salnum, sem einnig var þráð­beint fyrir framan mynda­vél­arnar.

Risastórir bandarískir fánar mættu þeim sem gengu í ráðstefnuhöllina í New York.
Risa­stórir banda­rískir fánar mættu þeim sem gengu í ráð­stefnu­höll­ina í New York.

Þeldökk kona á níræð­is­aldri með fal­legan fjöð­ur­nældan hatt sat fyrir framan mig og hróp­aði reglu­lega fal­lega und­ir­tóna með suð­ur­ríkja­hreim þegar leið á dag­skránna: „Aha“, „I say“, “Let them hear it!“.

Það er ekki ofsögum sagt að Hillary nýtur mik­ils stuðn­ings meðal svartra kjós­enda um allt landið. Á þriðju­dag­inn síð­asta fékk hún mik­inn meiri­hluta atkvæða svartra kjós­enda. Stuðn­ingur um 90 pró­sent stuðn­ingur svartra er mik­il­vægur á stöðum eins og í Suður-Karólínu þar sem um 55 pró­sent kjós­enda eru svartir. Í þeim ríkjum sem kosið hefur verið nú þegar nýtur hún í flestum til­fellum um 70-95 pró­sent stuðn­ings svartra kjós­enda, en þeir eru í heild­ina 12,4 pró­sent þeirra sem mega kjósa.

Fólk af rómansk-amer­ískum upp­runa með kosn­inga­rétt hefur aldrei verið fleira en nú, eða um 27 millj­ónir eða 11,9 pró­sent. Það sem er sér­stak­lega áhuga­vert við þennan hóp er að 44 pró­sent þeirra eru fædd eftir 1980. Þessi ungi hópur er síður lík­legur til að skrá sig til að kjósa en þeir sem eldri eru. Engu að síður eru áhrif þeirra mikil; Demókratar njóta frekar stuðn­ings kjós­enda af rómansk-amer­ískum upp­runa. Hins vegar, ef Cruz verður fram­bjóð­andi repúblik­ana, gæti það haft áhrif því hann er sonur inn­flytj­anda frá Kúbu. Fái Trump útnefn­ing­una er ólík­legt að þetta fylgi rati til repúblik­ana en Trump hefur skapað sér mikla óvild í þessum hóp í kjöl­far árása hans á ólög­lega inn­flytj­endur og tali um að vísa þeim öllum úr landi.

Allt þetta tal um kjós­endur sem hafa rétt til að kjósa en ekki ein­fald­lega að tala um kjós­endur eins og gert er þegar fjallað er um sam­bæri­leg mál á Íslandi er vegna tveggja þátta. Annars vegar þarf í flestum ríkjum Banda­ríkj­anna að skrá sig til að kjósa. Það er æði mis­mun­andi hvenær það þarf að vera búið að skrá sig og hvaða skil­ríki þarf að sýna til að sanna til­vist sína. Flækju­stigið dregur veru­lega úr því að fólk skráir sig. Eru það sér­tak­lega ómennt­aðir, fátæktir og inn­flytj­endur sem hverfa úr skrán­ing­ar­ferl­inu. Kjörsókn er hins vegar almennt mjög léleg í Banda­ríkj­unum; aðeins um fjórð­ungur kýs í kosn­ingum til þings og þegar for­seta­kosn­ingar eru mjög spenn­andi kýs um það bil helm­ingur kjós­enda.

Þegar upp­runi kjós­enda er skoð­aður og hlut­fall þeirra sem mögu­legir kjós­endur kemur í ljós að svartir kjós­endur mæta best á kjör­stað eða 66,6 pró­sent þeirra. Næst eru kjós­endur með hvítan hör­und­s­lit, sem mæta í 64,1 pró­sent til­fella, en fólk af rómansk-amer­ískum og asískum upp­runa mæta í 48 pró­sent til­fella.

Upp­takt­ur­inn fyrir stjörnu dags­ins var magn­aður og það má með sanni segja að það er ekki til sá lands­fundur á Íslandi fyrr né síðar sem nær með tærnar þar sem kan­inn hefur hæl­ana í að halda uppi stemm­ingu á svona kosn­inga­fundum. Til­finn­ingin var dáítið eins og Björk, Helga Möller, Bubbi og Pálmi Gunnars stæðu og öskr­uðu öll í einu „eru ekki allir í stuði“ þús­und sinnum á meðan íslenska hand­boltaliðið stýrði veifum á Laug­ar­dal­vell­inum, Laxness læsi Sjálf­stætt fólk yfir hópnum og þjóð­söngnum væri bla­stað í bak­grunni. Stórir skjáir með myndum af smá­börnum og Gullfoss til skiptis. Kandíflos og SS pylsur, malt og app­el­sín á krana, fána­borðar í ljós flétt­uðu hár­inu. Hver myndi ekki dilla sér með í þannig fjöri?

Svona við­burðir eru nán­ast dag­legt brauð hjá öllum for­es­eta­fram­bjóð­end­unum og því lík­legt að þau sé orðin ansi vön að skapa ógleym­an­lega stemm­ingu. En eitt­hvað kostar að halda svona við­burði, þó mest allur pen­ingur fram­bjóð­end­anna fari að jafn­aði í aug­lýs­ingar, þarf mikla fjár­muni til að keyra svona kosn­inga­bar­áttu, dag eftir dag.

Vefurinn Open Secrets heldur úti yfir­liti yfir fjár­söfnun fram­bjóð­end­anna með mik­illi nákvæmni. Á vefnum má sjá að Hillary Clinton er búin að brjóta enn eitt gler­þakið því hún hefur safnað mest allra fram­bjóð­enda, eða því sem nemur um 17 millj­örðum íslenskra króna sem sam­svarar 130 milljón doll­urum. Næstur á eftir kemur Sanders með um 96 millj­ónir doll­ara, Ted Cruz hefur safnað um 54 millj­ónum doll­ara, Rubio 34 millj­ónum, Trump 25 millj­ónum (sem hann hefur að mestu tekið úr eigin vasa) og Kasich rekur lest­ina með átta og hálfa milljón doll­ara. Eru þá ekki með taldar þær 147 millj­ónir doll­ara sem safnað hefur verið fyrir fram­bjóð­end­urna í gegnum svokölluð stuðn­ings­fé­lög eða PACs.

Þar hefur Hillary einnig vinn­ing­inn með 57 milljón doll­ara en Sanders er aðeins með 45 þús­und doll­ara. Repúblik­ana megin njóta bæði Cruz og Rubio veg­legs stuðn­ings en Trump fær þar aðeins tæp­lega tvær millj­ónir doll­ara.

Hjá Sanders er mest um smáa styrki að ræða og þar sker hann sig úr hópnum því lang­flestir sem styðja hann eru ein­stak­lingar með smáar upp­hæðir. Þannig fékk hann 70 pró­sent af styrkjum sínum. Hillary sækir aðeins 28 pró­sent styrkja til smárra upp­hæða. Hún er einnig eini fram­bjóð­and­inn sem nýtur jafns fjár­hags­stuðn­ings frá konum og körlum, allir hinir fram­bjóð­end­urnir eru studdir fjár­hags­lega að mestu af körlum.

Sá hópur sem er svo lík­leg­astur til að gefa pen­inga til fram­bjóð­enda eru þeir sem eru hættir að vinna og komnir á eft­ir­laun, fjár­festar og svo fast­eigna­salar en þaðan koma flestir stuðn­ings­menn Cruz.

Þegar leik­ar­inn John Leguizamo, sem sumir þekkja sem rödd Sid úr Ísöld­inni og Benny Blanco úr Carlito´s Way, var búinn að halda sína ræðu rak hver verka­lýðs­hetjan aðra. Vin­sæl­asti borg­ar­full­trú­inn hélt ræðu, kynnti svo borg­ar­stjór­ann sem hélt ræðu og kynnti svo tals­mann rétt­inda borg­ar­búa sem kynnti svo rík­is­stjór­ann sem hélt ræðu og kynnti svo unga konu úr Bronx hverfi sem hafði verið hálf-ætt­leidd af Hillary fyrir ríf­lega ára­tug þegar móðir hennar sem þá var ein­stæði kynnt­ist Hillary. Þannig lauk tveggja tíma upp­hitun fyrir „næsta for­seta hins frjálsa heims“ eins og unga fóst­ur­dóttirin orð­aði það. Allt með und­ir­leik mestu stuð­tón­listar fyrr og síðar.

Þið skiljið hvers vegna ég var allt í einu farin að klappa og syngja og hrópa eins og inn­fædd áður en ég vissi af. Ég lét fán­ann sem mér var réttur reyndar hverfa ofan í tösku. Þegar þjóð­söng­ur­inn var svo sung­inn létu allir hend­ina yfir hjartað á sér, réttu úr bak­inu og horfðu opin­minntir þráð­beint fram eins og vél­menni. Ég stóð eins og álka, hend­urnar á mér virt­ust allt í einu eins og illa gerðir hlutir og ég var sann­færð um að nú kæm­ist upp um leynd­ar­málið mitt. Eins og ofdekraður ung­lingur í upp­reisn stakk ég hönd­unum í vas­ann og starði þráð­beint á mynda­véla­hafið and­spænis mér. Nú var ég viss um að ég yrði dregin út af leyni­þjón­ust­unni. Það var bara þarna sem ég gat ekki leikið hlut­verkið til full­ustu, ekki vildi ég eiga hættu á að bera ábyrgð á því að Jón Sig­urðs­son myndi snúa sér í gröf­inni.

Stemmningin í ráðstefnuhöllinni var gríðarlega góð þegar Clinton steig loks á svið og flutti ræðu sína. Sjá má höfund greinarinnar á myndinni, beint fyrir ofan hausinn á Hillary Clinton.
Stemmn­ingin í ráð­stefnu­höll­inni var gríð­ar­lega góð þegar Clinton steig loks á svið og flutti ræðu sína. Sjá má höf­und grein­ar­innar á mynd­inni, beint fyrir ofan haus­inn á Hillary Clinton.

Svo var hún mætt, for­seta­frúin fyrr­ver­andi, öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn og utan­rík­is­ráð­herr­ann, 68 ára og mögu­lega bara rétt að byrja. Þakið ætl­aði bók­staf­lega af hús­inu og hljóð­himnan á mér ýlfraði yfir lát­unum. Veifandi gekk hún upp á sviðið og faðm­aði að sér fóst­ur­dótt­ur­ina frá Bronx og hóf ræðu sína. Það verður að segj­ast eins og er að þessi ræða var bæði efn­is­mikil og ein af þeim betri sem und­ir­rituð hefur séð, en vel má vera að áhrif upp­hit­un­ar­innar hafi haft áhrif á dóm­greind­ina. 

Mark­verð­ast í ræð­unni var áherslan á lág­marks­laun, að það yrði tryggt að allir í land­inu fengju að lág­marki 15 doll­ara á tím­ann, að allir sem ynnu fulla vinnu gætu lifað sóma­sam­legu lífi, en í dag býr stór hluti þjóð­ar­innar við mik­inn efna­hags­legan skort. Áhersla á að halda áfram að byggja ofan á heil­bryggð­is­tryggja­kerfið sem Obama setti á, tekið yrði á lög­reglu­of­beldi gegn svörtum íbúum, launa­munur kynj­anna tækl­aður og stuðn­ingur við ríkin sem vilja tryggja leik­skóla­pláss fyrir öll börn 4 ára og eldri og fleira. Hún eyddi dálítum tíma í að gagn­rýna and­stæð­inga sína en sagði ekki styggð­ar­yrði um með­fram­bjóð­and­ann sinn, Bernie Sanders. Það var alveg ljóst að það fór ekki ein mann­eskja út úr þessum sal án þess að vera full­viss um að þetta væri næsti for­seti Banda­ríkj­anna.

Eins og kann­anir líta út í dag er það einmitt lík­leg­ast að Hillary Clinton verði næsti for­seti Banda­ríkj­anna en þó er alls ekki útséð með það. Nokkrir þættir eru taldir geta breytt þessu. Í fyrsta lagi er það kjör­sókn í for­völum repúblik­ana sem hefur verið sögu­lega há í mörgum fylkjum á meðan kjör­sókn hefur verið í lak­ara lagi hjá demókrötum. Þetta er rakið til þess að Trump virð­ist ná til fólks sem að jafn­aði tekur ekki mik­inn þátt í kosn­ingum, í það minnsta ekki í for­völum flokk­anna. Fylgi þessi ákafi stuðn­ingur Trump í kosn­ing­arnar sjálfar, fái Trump útnefn­ingu flokks­ins, er erfitt að spá fyrir um nið­ur­stöð­una. En eins og áður kom fram kýs ein­ungis um helm­ingur þeirra sem hafa rétt til að kjósa. En það gæti verið skekkja í könn­unum sem mæla afstöðu fólks því skoð­ana­kann­an­irnar eru flestar gerðar meðal fólks sem hefur lagt í vana sinn að kjósa.

Enn aðrir benda á að sá mikli stuðn­ingur sem Sanders nýtur sé svo mik­ill meðal yngri kjós­enda en þeir skila sér síður á kjör­stað. Á sama tíma er stuðn­ingur Hillary meiri meðal kvenna og eldri kjós­enda sem skila sér betur á kjör­stað en aðrir. Þyngst vegur að Hillary hefur ríkan stuðn­ing meðal svartra og rómansk-amer­ísk ætt­aðra auk hvítra, sem aðrir fram­bjóð­endur hafa ekki náð að krækja í. Þá benda stjórn­mála­skýrendur ítrekað á að Hillary sé sá fram­bjóð­andi sem hefur mátt þola mest mót­læti í þau ríf­lega 20 ár sem hún hefur verið í deigl­unni. Þrátt fyrir það nýtur hún mik­illa vin­sælda og því sé hún lík­leg til að geta þolað vel hvað sem verður dregið upp gegn henni í kos­ing­unum sjálfum.

Clinton eyddi rúmri klukkustund með kjósendum og ræddi við þau um heima og geima.
Clinton eyddi rúmri klukku­stund með kjós­endum og ræddi við þau um heima og geima.

Þegar búið var að klappa og stappa yfir ræðu Hillary í dágóðan hálf­tíma var stjórn­mála­el­íta New York-ríkis komin upp á svið. Þegar loks var búið að hylla þau öll með við­eig­andi hrópum, sem sessu­nautur minn tók virkan þátt í þó hún væri orðin of þreytt til að standa, var þessu lokið. Mynda­vél­unum var pakkað ofan í tösku og farið var að brjóta saman stól­ana og rífa niður borð­ana.

En sumir sýndu ekk­ert á sér fara­snið og stóðu með­fram girð­ingu sem afmark­aði sviðið. Ég tók mér stöðu og ákvað að fylgj­ast með. Flestum að óvörum gekk fram­bjóð­and­inn hægum skrefum með­fram hópnum, tók allar þær „sel­fies“ sem óskað var eftir, spjall­aði og var hin allra róleg­asta. Fyrir framan hana þræddi leyni­þjón­ustan hóp­inn með rann­sak­andi augum, Robin Mook, 37 ára kosn­inga­stjóri fram­boðs­ins, gekk um gólf í krump­uðum fötum og dálítið úfinn. Djúpt sokk­inn ofan í sím­tal á milli þess sem hann leit upp rann­sak­andi í kringum sig og gróf sig svo ofaní sam­talið á ný. Huma Abedin, sér­leg hægri hönd Hillary til margra ára, gekk um og heils­aði fólki poll­ró­leg og skæl­bros­andi með eldrauðan vara­lit og í pinn­háum hælum. Það var áhuga­vert að hlusta á fram­bjóð­and­ann ræða málin í róleg­heit­unum og gefa sér tíma til að kyssa smá­börn og árita bækur eins og hún hefði allan tím­ann í heim­inum.

Þegar hálf­tími var lið­inn og mér farið að leið­ast, hélt ég að þessu færi nú að ljúka, en þá átti hún eftir að þræða helm­ing­inn af hópnum og það var ekki fyrr en því var lokið, rúmum klukku­tíma síðar, sem hún fór loks bak­sviðs. Á útleið blasti svo við löng röð þar sem fyr­ir­menni borg­ar­innar biðu eftir því að kom­ast bak­sviðs til að heilsa líka upp á Hillary. Þegar frostið mætti mér úti í myrkr­inu hugg­aði ég mig við það að í þetta sinn var það þó sauð­svartur almúg­inn fékk að hitta fram­bjóð­and­ann fyrst. Það var þó ljóst að allir sem gengu út eftir þennan fund, jafn­vel þeir sem engan kosn­inga­rétt­inn hafa, voru orðnir harðir stuðn­ings­menn Hillary Clinton.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár