Isavia segir upp rúmlega hundrað manns

Isavia sagði í dag upp 101 starfs­manni og bauð 37 starfs­mönnum sínum áfram­hald­andi starf í minnk­uðu starfs­hlut­falli. Aðgerð­irnar ná til rúm­lega 10 pró­sent starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins og bitna helst á fram­línu­starfs­fólki á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Isavia sagði í dag upp 101 starfs­manni og bauð 37 starfs­mönnum sínum áfram­hald­andi starf í minnk­uðu starfs­hlut­falli til fram­tíðar. Samkvæmt til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu verða flestar upp­sagn­irnar á Kefla­vík­ur­flug­velli, þar sem ljóst er að verk­efnum muni fækka um óákveð­inn tíma.

Hag­ræð­ing­ar­að­gerðir fyr­ir­tæk­is­ins í dag ná til rúm­lega 10 pró­sent starfs­manna, en sam­kvæmt því sem fram kemur á vef Isavia störf­uðu 1.255 manns hjá rík­is­fyr­ir­tæk­inu í lok árs 2018.

„Við komumst því miður ekki hjá því að grípa til upp­sagna, en þær ná ein­göngu til starfa á sviðum þar sem verk­efnum fækkar í óákveð­inn tíma,“ er haft eftir Svein­birni Ind­riða­syni for­stjóra Isavia í frétta­til­kynn­ingu, en hann segir fyr­ir­tækið telja mik­il­vægt að „svara ákalli stjórn­valda um að þau fyr­ir­tæki, sem það geti, standi vörð um störfin í land­inu.“

„Við erum í þeirri stöðu að lausa­fjár­staðan okkar er betri en hún hefur nokkru sinni verið þannig að okkar fyrstu við­brögð taka mið af því,“ segir Svein­björn. Hann segir áhrifin af sam­drætt­inum vegna heims­far­ald­urs­ins hafa mest áhrif á fram­línu­störf á Kefla­vík­ur­flug­velli, meðal ann­ars í flug­vernd, far­þega­þjón­ustu og bíla­stæða­þjón­ustu, en að Isavia bíði mörg verk­efni sem snúi meðal ann­ars að því að byggja upp inn­viði félags­ins.

„Við þurfum þó að vera með­vituð um það að óvissan næstu mán­uði er veru­leg og við munum end­ur­skoða stöð­una með reglu­bundnum hætti. Við þurfum með öllum ráðum að tryggja að aðgangur félags­ins að lausu fé dugi þar til hjólin fara að snú­ast á ný. Við þökkum öllu því góða fólki sem nú er að hverfa frá fyr­ir­tæk­inu fyrir þeirra störf og óskum þeim jafn­framt vel­farn­aðar,“ segir Svein­björn.

Nýta sér ekki hlutabótaúrræði stjórnvalda

Fram kemur í til­kynn­ingu Isavia að hvorki móð­ur­fé­lagið né dótt­ur­fé­lög þess muni nýta sér hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda vegna tíma­bund­ins sam­dráttar.

„Þær upp­sagnir sem ráð­ist er í núna eru til að bregð­ast við minnk­andi umsvifum til langs tíma en úrræði stjórn­valda eru fyrst og fremst til að bregð­ast við skamm­tíma­á­hrifum far­ald­urs­ins. Frí­höfnin mun nýta úrræði stjórn­valda sem gerir félag­inu kleift að ráð­ast ekki í upp­sagnir á fast­ráðnum starfs­mönnum sínum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár