Tekist á um Trump-bannið – „Forsetinn er ekki hafinn yfir lögin“

Í ítar­legri grein­ar­gerð Washington rík­is­ins segir að komu­bann Banda­ríkja­for­seta á íbúa sjö múslima­ríkja sé stjórn­ar­skrár­brot og fari auk þess gegn hags­munum Banda­ríkj­anna.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Mál­flutn­ingi fyrir áfrýj­un­ar­dóm­stóli í San Francisco lauk í gær í máli Washington rík­iss­ins gegn Donald J. Trump, Banda­ríkja­for­seta, vegna komu­banns sem hann setti á borg­ara frá sjö ríkjum þar sem múslima­trú er í meiri­hluta. Ríkin eru Líbía, Sýrland, Súdan, Sómalía, Íran, Írak og Jemen. Á sama tíma kom hann í veg fyrir að tekið yrði á móti flótta­mönnum frá Sýrlandi.

Bannið varð strax afar umdeild og fóru fram mörg hund­ruð fjölda­mót­mæla­fundir víðs vegar um Banda­ríkin í kjöl­far þess að það var sett á. Þá olli það miklum titr­ingi og upp­lausn og flug­völlum, enda margir sem urðu fyrir því.

Rík­is­stjóri Washington ríkis, Robert Ferguson, höfð­aði mál fyrir alrík­is­dóm­stólnum og taldi bannið og til­skipun for­set­ans ekki stand­ast lög. Hinn 27. jan­úar dæmdi James L. Robart í mál­inu og féllst á rök Washington ríkis að stóru leyti. Bannið féll úr gildi í kjöl­farið, tíma­bundið.

Eftir máflutn­ing­inn í gær sagð­ist Ferguson viss um að áfrýj­un­ar­dóm­stóll­inn myndi kom­ast að sömu nið­ur­stöðu og alrík­is­dóm­stóll­inn. Banda­ríkja­for­seti væri sem betur fer ekki haf­inn yfir lög og stjórn­ar­skrá.

Trump brást hinn versti við nið­ur­stöð­unni og sagði „hinn svo­kall­aða“ dóm­ara hafa gert mikil mis­tök, og ef það yrðu framin hryðju­verk í Banda­ríkj­unum vegna þessa þá væri það á ábyrgð hans. En um hvað snýst málið í reynd? Hvers vegna var málið höfðað? Grein­ar­gerðir Washington ríkis og yfir­valda hafa verið birtar, og má þar sjá í smá­at­riðum á hverju er byggt.

Fjögur atriði má sér­stak­lega nefna til sög­unnar.

1. Rík­is­stjóri Washington rík­is­ins taldi bannið fara gegn stjórn­ar­skránni þar sem það beind­ist sér­tækt gegn fólki frá fyrr­nefndum ríkjum, og það fólki sem hefði heim­ild til þess að ferð­ast til og frá Banda­ríkj­unum. Ferguson sagði for­set­ann ekki hafa heim­ild til að setja fram til­skipun sem þessa (excetuvie order) sem væri ái skjön við stjórn­ar­skrár­var­inn rétt fólks­ins. Þetta er grunn­for­senda mál­sókn­ar­innar.

2. Þá telur Washington ríki að þó að landamæra­eft­ir­lit og inn­flytj­enda­mál, séu á könnu rík­is­ins og stjórn­valda í Washington D.C., þá séu tak­mörk á því hvað stjórn­völd geti gert þegar að því kemur. Fyrir því séu mörg dómafor­dæmi að leita þurfi bæði álits og sam­starfs við ríki Banda­ríkj­anna þegar að þessu kemur, og fram­hjá þeirri stöðu sé ekki hægt að fara.

3. Washington ríki leggur enn fremur áherslu á það í máflutn­ingi sínum að bannið sé það víð­tækt, að það hafi gríð­ar­lega mikil áhrif á dag­legt líf í Washington ríki og raunar um öll Banda­ríkin. Fram kemur í grein­arð­gerð rík­is­ins, sem er mun ítar­legri en grein­ar­gerð dóms­mála­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna, að fyr­ir­tæki eins og Amazon, Microsoft, Starbucks og Boeing séu háð erlendu vinnu­aflil og séu öll með mörg hund­ruð starfs­menn sem eru frá ríkj­unum sjö sem eru á bann­list­anum eða teng­ist fólki þaðan. Bannið hafi þegar haft mikil áhrif. Þá er einnig nefnt að ferða­þjón­usturis­inn Expedia, sem er með höf­uð­stöðvar í Belleveu í útjaðri Seattle, hafi fundið veru­lega fyrir bann­inu og víð­tækum áhrifum þess á bók­anir fólks. Þetta sé vís­bend­ing um að bannið hafi verið alltof víð­tækt.

4. Donald Trump og dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna nefna einkum það atriði, að fyr­ir­skipun Banda­ríkja­for­seta hafi byggt á þjóðar­ör­ygg­is­sjón­ar­miðum. Þá sé óum­deilt að landamæra­eft­ir­lit og inn­flytj­enda­mál séu á hendi yfir­valda og þar með for­set­ans. Þegar komi að þjóðar­ör­yggi þá þurfi yfir­völd að hafa til heild­ar­mynd­ar­innar, og bann við komu fólks frá ákveðnum löndum sé ein leið til að tryggja öryggi.

Dóm­ar­arnir þrír hjá áfrýj­un­ar­dóm­stólnum, sem dæma í mál­inu, munu taka sér ein­hverja daga til að fara yfir gögn og mál­flutn­ing. Talið er lík­legt að stjórn­völd vísi mál­inu til Hæsta­réttar Banda­ríkj­anna, falli dómur þeim í óhag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár