Stefnt að því að verksmiðja United Silicon verði komin aftur af stað eftir 18-20 mánuði

End­ur­gang­setn­ing verk­smiðju United Silicon getur tekið allt að 20 mán­uði. Arion banki bók­færir virði hennar á 5,4 millj­arða króna en um 15 millj­arða króna kostar að byggja slíka verk­smiðju.

Stefnt er að því að kís­il­málm­verk­smiðja United Silicon verði end­ur­ræst í Helguvík í fram­tíð­inni. Arion banki, stærsti eig­anda United Silicon, telur verk­smiðj­una rekstr­ar­hæfa. Sjö til átta alþjóð­legir aðilar hafa áhuga á verk­smiðj­unni en eng­inn þeirra hefur hug á því að taka hana í sundur og flytja annað. Um aðila úr alþjóð­lega kís­il­málms­geir­anum er að ræða. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans hafa þeir sent teymi hingað til lands til að ræða við t.d. Lands­virkjun og Umhverf­is­stofnun um stöðu verk­smiðj­unnar.

[links]Það mun hins vegar taka 18-20 mán­uði að koma verk­smiðju United Silicon í Helguvík aftur af stað, sam­kvæmt því sem fram kemur í nýbirtum árs­reikn­ingi Arion banka, stærsta kröfu­hafa United Silicon.

Ljóst er að verk­smiðjan verður ekki ræst að nýju fyrr en að vinnu við gerð nýs umhverf­is­mats verði lokið og sú vinna er talin geta tekið þann tíma.

Í árs­reikn­ingi Arion banka er eign­ar­hlutur bank­ans í United Silicon flokk­aður sem eign sem haldið sé til sölu. Þar kemur einnig fram að bók­færð staða eigna United Silicon sé 5,4 millj­arðar króna. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans kostar um 15 millj­arða króna að reisa verk­smiðju eins og þá sem United Silicon hefur reist í Helguvík. Því er aug­ljóst af hverju áhugi erlendu aðil­anna sé til staðar, og líkur til þess að Arion banki telji sig geta fengið meira fyrir verk­smiðj­una en bók­fært virði hennar segir til um.

Bankinn hyggst selja verksmiðjuna

United Silicon var sett í gjald­þrot 22. jan­úar síð­ast­lið­inn. Félagið hafði þá verið í greiðslu­stöðvun frá því í ágúst 2017 og starf­semi verk­smiðj­unnar var end­an­lega stöðvuð 1. sept­em­ber í fyrra.

[adspot]Eignir félags­ins eru nú í höndum skipta­stjóra en í ljósi þess að Arion banki er líka langstærsti kröfu­hafi bús­ins, og telur sig njóta fyrsta veð­réttar í öllum rekstr­ar­eignum félags­ins, verður að telj­ast nær öruggt að bank­inn muni fái eign­irnar afhentar. Hann hefur þegar stofnað dótt­ur­fé­lagið Eign­ar­bjarg til að taka við United Silicon þegar af því verður. Í árs­skýrslu Arion banka segir að bank­inn „hyggst í kjöl­farið annað hvort finna kaup­endur að hinu nýja félagið í núver­andi formi, ellegar fram­kvæma sjálfur hinar nauð­syn­legu úrbætur og selja félagið að því loknu.“

Starf­semi verk­smiðj­unnar var stöðvuð 1. sept­em­ber 2017 eftir að Umhverf­is­stofnun tók ákvörðun þess efn­is. Óheim­ilt var að end­ur­ræsa ofn verk­smiðj­unnar nema með skrif­legri heim­ild frá stofn­un­inni að loknum full­nægj­andi end­ur­bótum og ítar­legu mati á þeim. Það mat mun, líkt og áður sagði, taka allt að 20 mán­uði.

Í bréfi sem Umhverf­is­stofnun sendi til for­svars­manna United Silicon föstu­dag­inn 19. jan­úar kom fram að ráð­ast þurfi í úrbætur sem kosta um þrjá millj­arða króna áður en að verk­smiðjan fær að fara í gang að nýju.

Hlut­hafar og kröfu­hafar tapað stórum fjár­hæðum

Hlut­hafar og kröf­u­hafar félags­­ins hafa þurft að afskrifa stórar upp­­hæðir vegna United Silicon það sem af er þessu ári. Arion banki hefur til að mynda þegar afskrifað 4,8 millj­­­arða króna vegna verk­efn­is­ins. Bank­inn tók yfir hlutafé í United Silicon og bók­færir virði eign­anna á 5,4 millj­arða króna. Auk þess eru útistand­andi lánslof­orð og ábyrgðir upp á um 900 millj­ónir króna.

Arion banki ábyrgð­ist rekstur United Silicon frá því að félagið var sett í greiðslu­stöðvun og fram að gjald­þroti og borg­aði um 200 millj­­­ónir króna á mán­uði vegna rekstur þess á því tíma­bili.

En fleiri hafa tapað stórum fjár­hæðum. Frjálsi líf­eyr­is­­­sjóð­­­ur­inn, sem fjár­­­­­festi 1.178 millj­­­ónum króna í United Silicon, hefur fært niður virði þeirra hluta­bréfa og skulda­bréfa sem sjóð­­­ur­inn á í félag­inu um 90 pró­­­sent. Um var­úð­­­ar­n­ið­­­ur­­­færslu er að ræða, og nemur hún rúmum millj­­­arði króna. Sömu sögu er að segja af Eft­ir­­­launa­­­sjóði félags íslenskra atvinn­u­flug­­­manna (EFÍA). Þar nemur nið­­­ur­­­færslan einnig 90 pró­­­sent­­­um. Líf­eyr­is­­­sjóð starfs­­­manna Bún­­­að­­­ar­­­banka Íslands (LSBÍ) fjár­­­festir einnig í verk­efn­inu. Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­­un­­­ar­­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­­stöðvum hans í Borg­­­ar­­­túni.

Þá setti líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn Festa 875 millj­­ónir króna í United Silicon. Hann hefur einnig fram­­kvæmt var­úð­­ar­n­ið­­ur­­færslu vegna verk­efn­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár