Segja að ekki hafi verið hægt að virkja forkaupsrétt ríkisins á Arion banka

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið segir að það hafi ekki verið hægt að virkja for­kaups­rétt rík­is­ins á Arion banka og ganga inn í kaup vog­un­ar­sjóða á honum. Kjarninn birtir bréfa­skriftir milli Kaup­þings, ráðu­neyt­is­ins og Seðla­bank­ans.

Benedikt Jóhannesson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Benedikt Jóhann­es­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tilboð þriggja vog­un­ar­sjóða og banda­ríska fjár­fest­inga­bank­ans Goldman Sachs í stóran hlut í Arion banka var sam­þykkt á stjórn­ar­fundum Kaup­þings ehf. og Kaup­skila ehf. þann 12. febr­úar 2017. Tveimur dögum síðar, 14. febr­úar, barst fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu erindi um stað­fest­ingu á að salan myndi ekki valda nei­kvæðum áhrifum á fjár­mála­stöð­ug­leika eða stöð­ug­leika í gengis- og pen­inga­málum. Ráðu­neytið svar­aði erind­inu 27. febr­úar og veitti þar umbeðna stað­fest­ingu. Það er mat fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins að kauptil­boðið upp­fyllti ekki þau skil­yrði sem kveðið var á um í samn­ingum um virkjun for­kaups­réttar rík­is­ins. Því gæti ríkið ekki gengið inn í kaupin.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í minn­is­blaði frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu til efna­hags- og við­skipta­nefndar þar sem fyr­ir­spurn nefnd­ar­innar frá því í mars um nýt­ingu for­kaups­réttar rík­is­ins í tengslum við söl­una er svarað.

Ekki var til­kynnt um söl­una opin­ber­lega fyrr en 19. mars 2017, en alls keypti vog­un­ar­sjóð­irnir og Goldman Sachs 29,18 pró­sent hlut í Arion banka auk þess sem þeir eiga kaup­rétt á 21,9 pró­sent hlut.

Kjarninn hefur fengið aðgang að bréfa­skriftum og gögnum vegna söl­unnar. Þau bréf og gögn sem um ræðir eru:

Bréf frá Kaup­þingi til Seðla­banka Íslands og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins 24. nóv­em­ber 2016.

Bréf frá Kaup­þingi til Seðla­banka Íslands og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins 14. febr­úar 2017.

Bréf fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins til Kaup­þings 27. febr­úar 2017.

Minn­is­blað frá skrif­stofu stjórn­unar og umbóta í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu vegna sölu Kaup­þings á hlutum í Arion banka 26. mars 2017.

Minn­is­blað fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins þar sem fyr­ir­spurn efna­hags- og við­skipta­nefndar í tengslum við sölu á hlut í Arion banka 20. júní 2017.

Seldu sjálfum sér Arion banka

Í mars var til­kynnt að fjórir aðil­ar, vog­un­ar­sjóð­irnir Taconic Capital, Och-Ziff Capital Mana­gement, Attestor Capital og fjár­fest­inga­bank­inn Goldman Sachs hefðu keypt sam­tals 29,18 pró­­sent hlut í Arion banka af Kaup­­þingi á 48,8 millj­­arða króna. Verðið sem greitt var fyrir er um 0,8 krónur á hverja krónu af bók­­færðu eigin fé Arion banka.

Þegar samið var um stöð­u­­leika­fram­lög setti íslenska ríkið inn ákvæði þess efnis að það gæti gengið inn í við­­skipti með hluti í Arion banka ef gengið yrði lægra en 0,8 af bók­­færðu eigin fé bank­ans. Í því sam­komu­lagi var líka samið um að Kaup­­­­þing þurfi að selja hlut sinn í Arion banka fyrir árs­­­­lok 2018. Ef það myndi ekki tak­­­ast myndi rík­­­­is­­­­sjóður leysa bank­ann til sín.

Þeir aðilar sem keyptu hlut­inn í Arion banka eru líka stærstu eig­endur selj­and­ans, Kaup­þings. Samtals eiga þeir 66,31 pró­sent í félag­inu. Þeir voru því að selja sjálfum sér hlut­inn í Arion banka.

Minnihluti nefndar gagnrýndi málið harðlega

Kaupin hafa verið tor­tryggð víða, meðal ann­ars af efna­hags- og við­skipta­nefnd. Hún hefur verið að kalla eftir svörum um ýmsa þætti máls­ins. Kjarn­inn greindi frá því í síð­ustu viku að minni­hluti nefnd­ar­innar telji að Fjár­mála­eft­ir­litið þurfi að skýra betur rök­stuðn­ing sinn fyrir því að eng­inn nýrra hlut­hafa Arion banka fari með virkan eign­ar­hlut í bank­an­um. Minni­hlut­inn gagn­rýndi einnig í bókun sinni að Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hafi fagnað því opin­ber­lega að seldir hefðu verið hlutir í Arion banka til ofan­greindra aðila. Í bók­un­inni segir að það hafi þeir gert án þess að gera sér „grein fyrir því hverjir hinir nýju eig­endur væru eða hvort það kæmi betur út fyrir rík­is­sjóð að ganga inn í kaupin eða ekki. Það er afar gagn­rýn­is­vert að mati minni hluta nefnd­ar­inn­ar, einkum nú þegar mjög brýnt er að gagn­sæi ríki í tengslum við sölu­ferlið á Arion banka hf. til að auka traust og til­trú á íslensku fjár­mála­kerfi og fjár­mála­mark­aði.

Minni hlut­inn gagn­rýndi enn fremur að hafa ekki fengið full­nægj­andi gögn varð­andi stað­fest mat fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á því hvort kaup­verðið á hlutum í Arion banka hf. væri undir eða yfir því marki sem þyrfti til að virkja for­kaups­rétt íslenska rík­is­ins.“

Gerðu tilboð daginn fyrir birtingu ársreiknings

Í minn­is­blaði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem er dag­sett 20. júní og var sent til nefnd­ar­innar segir að ráðu­neytið hafi metið sem svo að það gæti ekki gengið inn í til­boðið.

Þar segir að til­boð sjóð­anna þriggja og Goldman Sachs hafi verið sam­þykkt á stjórn­ar­fundum Kaup­þings ehf. og Kaup­skila ehf. 12. febr­úar 2017. Tilboðið hljóð­aði upp á 83,811 krónur á hlut miðað við síð­asta end­ur­skoð­aða árs­upp­gjör, sem var fyrir árið 2015. Óend­ur­skoðað upp­gjör Arion banka vegna fyrstu níu mán­aða árs­ins 2016 var haft til hlið­sjónar líka. Þar er bók­fært eigið fé 206,9 millj­arðar króna eða 103,5 krónur á hlut. Kaup­verðið var því 81 pró­sent af virði hvers hluta miðað við bók­fært eigið fé, eða 83,811 krónur á hlut.

Kaup­rétt­ur­inn (sem virk­að­ist ef virðið væri 80 pró­sent eða minna af bók­færðu eigin fé) hefði virkj­ast ef til­boðið hefði verið 77,1 krónur eða lægra. Tilboðið var því rétt yfir því sem til þurfti til að kaup­réttur rík­is­ins myndi virkj­ast.

Það sem hefur þótt athug­un­ar­vert við þetta er að til­boð sjóð­anna var sam­þykkt dag­inn áður en að end­ur­skoð­aður árs­reikn­ingur fyrir árið 2016 var birtur, en það gerð­ist 13. febr­úar 2017. Ef það hefði verið gert degi síðar hefði kaup­réttur rík­is­ins virkj­ast, því verðið hefði þá verið undir 80 pró­sent af bók­færðu fé Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár