Áhætta á fasteignamarkaði

Nýjasta spá Hagstofu Íslands um þróun mála í efna­hags­líf­inu bendir til þess að fast­eigna­mark­að­ur­inn gæti átt erfitt upp­dráttar á næstu miss­erum.

Hagstofa Íslands spáir því að sam­dráttur verði í lands­fram­leiðslu um 0,2 pró­sent á þessu ári, en sam­kvæmt bráða­birgða­tölum mæld­ist hag­vöxtur í fyrra 4,6 pró­sent.

Hag­vaxt­ar­spá Seðla­banka Íslands, sem birt­ist í Pen­inga­málum í febr­úar, gerði ráð yfir 1,8 pró­sent hag­vexti á þessu ári.

En allt er nú breytt eftir dramat­íska atburði í ferð­þjón­ustu, með falli WOW air og kyrr­setn­ingu á 737 Max vélum Boeing eftir flug­slys þar sem 346 létust, í seinni hluta mars mán­aðar. Íslenska flug­brúin hefur laskast við þetta og ekki aug­ljóst hvernig mun ganga að byggja hana aftur upp, með aukn­ingu í flug­ferðum.

Sam­drátt­ur­inn í brott­förum frá Kefla­vík­ur­flug­velli í apríl var 18 pró­sent miðað við sama mánuð í fyrra, og allt bendir til að það muni taka nokkurn tíma að fylla upp í skarðið sem WOW air skildi eftir.

Ferða­þjón­usta er orðin að hryggjar­stykki í hag­kerf­inu en hún stóð undir um 43 pró­sent gjald­eyr­is­tekna þjóð­ar­búss­ins und­an­farin tvö ár. Það munar því mikið um það, þegar svo snögg­lega dregur úr umsvifum í ferða­þjón­ustu.

Kemur færra fólk?

Kólnunin í hag­kerf­inu hefur sést glögg­lega með ýmsum hætti, und­an­farin miss­eri. Meðal ann­ars hefur veru­lega dregið úr hækk­unum á fast­eigna­mark­aði. Vorið 2017 mæld­ist árs­hækkun á fast­eigna­mark­aði í höf­uð­borg­ar­svæð­inu 23,5 pró­sent, og var þá með allra hæsta móti í heim­inum.

Að und­an­förnu hefur fast­eigna­verð lítið sem ekk­ert hækkað. Að teknu til­liti til verð­bólgu nemur hækk­unin á fast­eigna­mark­aði 1 til 2 pró­sent.

Það ætti ekki að koma á óvart, eftir þær miklu hækk­anir sem verið hafa á fast­eigna­mark­aði, allt frá árinu 2011, en mestu hækk­an­irnar voru þó á árunum 2015 til og með 2017.

Ferða­þjón­ustan hafði mikil áhrif á fast­eigna­mark­að­inn, end­aði fjölg­aði ferða­mönnum sem heim­sóttu landið úr 450 þús­und árið 2010 í 2,3 millj­ónir í fyrra. Áhrifin á fast­eigna­mark­að­inn komu ekki síst fram í fjölda íbúða sem fóru af hefð­bundnum mark­aði í skamm­tíma­leigu fyrir ferða­menn, einkum mið­svæðis. Þá hafði fjölgun starfa í hag­kerf­inu, sem flest urðu til í ferða­þjón­ust­unni, mikil áhrif á fast­eigna­mark­að­inn sömu­leiðis.

Í fyrra flutt­ust 6.500 fleiri til lands­ins heldur en fluttu frá land­inu, en árið á undan var sú tala 8.000. Líklegt verður að telj­ast að veru­lega muni draga úr því að fólk flytji til Íslands, einkum erlendir rík­is­borg­arar, á þessu ári, þar sem farið er að hægja á hag­kerf­inu.

Í fyrra fjölg­aði störfum í hag­kerf­inu úr rúm­lega 201 þús­und í 207 þús­und og sex hund­ruð.

Hag­vaxt­ar­skeiðið und­an­farin ár hefur ekki síst byggst á mik­illi fjölgun starfa í ferða­þjón­ustu, en um 75 pró­sent nýrra skatt­greið­enda í hag­kerf­inu á und­an­förnum árum hafa verið erlendis rík­is­borg­arar.

Fari svo að það hægji veru­lega á þess­ari sköpun starfa, þá gæti það dregið úr eft­ir­spurn eftir hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á sama tíma og fram­boð er að aukast nokkuð hratt þessi miss­erin, en talið er að um 5 þús­und nýjar íbúðir komi út á markað á næstu 18 til 24 mán­uðum.

Í mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs, um horfur á fast­eigna­mark­aði, segir að meira sé um það þessi miss­erin að nýjar íbúðir selj­ist undir ásettu verði. „Í jan­úar til mars í fyrra seld­ust að með­al­tali 33% nýrra íbúða undir ásettu verði en fyrstu þrjá mán­uði þessa árs var það hlut­fall 48%. Aðrar íbúðir en nýbygg­ingar hafa í gegnum tíð­ina verið tals­vert lík­legri til að selj­ast undir ásettu verði og það sem af er ári mælist það hlut­fall að með­al­tali 81%. Á sama tíma­bili í fyrra var það hins vegar um 79%,“ segir meðal ann­ars í skýrsl­unni.

Launaskriðið stöðvast

Það sem einnig hefur haft veru­leg áhrif á fast­eigna­mark­að­inn á und­an­förnum árum, er veru­legar launa­hækk­anir og kaup­mátt­ar­aukn­ing hjá flestum hópum. Í sögu­legu til­liti hefur verið fylgni á milli launa­hækk­ana og fast­eigna­verð­þró­unar.

Í nýaf­stöðnum kjara­samn­ingum var ein­blínt á tekju­lægstu hópana, þegar kom að krónu­tölu­hækk­unum. Þeir sem hafa 400 þús­und á mán­uði og yfir það, munu hins vegar litar sem engar hækk­anir fá á þessu ári, sé tekið til­lit til verð­bólgu eins og hún er nú, en hún mælist 3,3 pró­sent á meðan verð­bólgu­mark­miðið er 2,5 pró­sent.

Vaxtalækkun getur hjálpað til

Vænt­ingar eru um að meg­in­vextir Seðla­banka Íslands geti lækkað á næst­unni en þeir eru nú 4,5 pró­sent. Það gæti haft jákvæð áhrif á fast­eigna­mark­að­inn þar sem fjár­mögnun yrði auð­veld­ari, með lægri greiðslu­byrði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár