Fimm andlát vegna COVID-19 á Íslandi

Karl­maður á sjö­tugs­aldri lést í gær úr COVID-19 sjúk­dómnum á Land­spít­al­anum.

Fimm stað­fest and­lát eru nú hér á landi vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins eftir að karl­maður á sjö­tugs­aldri lést af völdum hans í gær­kvöldi.

Þetta hefur Kjarninn fengið stað­fest hjá Lands­spít­al­anum.

Sá sem lést hét Sigurður H. Sverr­is­son og var fæddur árið 1953. Hann var því 67 ára þegar hann lést. Eig­in­kona hans hafði lát­ist í mars síð­ast­liðnum.

Bróðir manns­ins birti til til­kynn­ingu um and­lát hans á Facebook í gær. Þar skrif­aði hann: „Það er með mik­illi sorg í hjarta sem við í dag kveðjum ást­kæran bróður. Það ger­ist núna svo skömmu eftir að við kvöddum okkar elsku mág­konu. Betri vini og félaga hef ég ekki getað hugsað mér. Megið þið hvíla í friði elsku Siggi bróðir og Mary Pat. Ykkar verður sárt saknað.“

[adspot]Sá fyrsti sem lést úr COVID-19 hér­lendis var ástr­alskur ferða­maður, sem lést á heil­brigð­is­stofnun Norð­ur­lands á Húsa­vík um miðj­an mars. Íslensk kona lést svo á Land­spít­al­anum í lok mars og tvö and­lát urðu í síð­ustu viku.

Sam­kvæmt ­upp­lýs­ingum frá Land­spít­al­anum er fjöldi inniliggj­andi sjúk­linga með stað­fest COVID-19 smit núna 36. Frá upp­hafi far­ald­urs­ins hafa 80 þurft á inn­lögn að halda. Á gjör­gæslu eru ell­efu sjúk­lingar með sjúk­dóm­inn, þar af átta í önd­un­ar­vél.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár