#Metoo áskorun kvenna af erlendum uppruna á íslensku og ensku

660 konur eru í Facebook-hópi þar sem reynslu­sögum og und­ir­skriftum kvenna af erlendum upp­runa er safnað saman. 97 þeirra skrifa undir áskorun til íslensks sam­fé­lags vegna stöðu þeirra.

Yfirlýsing kvenna af erlendum uppruna sem búa á Íslandi:

#Metoo bylt­ingin á Íslandi hefur leitt til þess að fólk hefur opnað augun fyrir kyn­ferð­is­of­beldi, mis­munun og áreiti gagn­vart konum. Konur úr ýmsum starfs­stéttum hafa stigið fram og deilt frá­sögnum úr sínu vinnu­um­hverfi þar sem þær hafa orðið fyrir mark­vissu nið­ur­broti og kerf­is­bund­inni mis­beit­ingu valds af hálfu karl­manna. Konur hafa und­an­farið staðið upp og kraf­ist þess að sam­fé­lagið í heild sinni opni blinda augað sem snúið hefur að þess­ari stöðu. Kyn­bundin mis­munun leiðir til mis­notk­unar og áreitis og því þurfa vinnu­veit­endur að setja sér áætl­anir og hrinda í fram­kvæmd verk­ferlum sem tryggja jafn­ræði kynj­anna.

Við konur af erlendum upp­runa sem búum hér á landi höfum átt erfitt með að finna okkur stað innan #Metoo bylt­ing­ar­innar. Fáar af þeim konum sem stigið hafa fram með sínar frá­sagnir hingað til, til­heyra þeim hópi. En er það vegna þess að við erum hafðar útundan eða kjósum við að standa hjá? Það er mik­il­vægt að við leitum svara við þeim spurn­ingum og að við þorum að finna svörin við þeim. Það er ekki síður mik­il­vægt að skilja hvers vegna við þurfum að svara þessum spurn­ingum, nú þegar konur hafa kosið að rjúfa þögn­ina, standa saman og treysta því að sam­fé­lagið leggi við hlustir og bregð­ist við hinni háværu umræðu með þungu undir­öld­unni.

[adspot]Frá­sagnir kvenna af erlendum upp­runa eru ofnar úr for­dómum, mis­munun, mark­vissu nið­ur­broti, van­rækslu, úti­lokun og mis­notkun. Margar okkar hafa upp­lifað það að hafa verið yfir­gefnar og ein­angr­aðar af hálfu þeirra sem þær treystu. Með því að sam­ein­ast um frá­sagnir hafa augu okkar hins vegar opn­ast fyrir því að sam­fé­lagið hefur um langa hríð snúið blinda aug­anu að ýmsu mis­jöfnu sem átt hefur sér stað gagn­vart konum af erlendum upp­runa. Framkomu sem hefur leitt til þess að margar okkar upp­lifa sig ekki öruggar og að mörgum okkar finnst við ekki eiga sama rétt til verndar, aðstöðu og rétt­inda í íslensku sam­fé­lagi.

Hér á eftir fara frá­sagnir hug­rakkra kvenna sem deila með okkur sínum veru­leika. Við óskum einskis ann­ars en að þær séu lesnar með virð­ingu fyrir því sem systur okkar, mæður, dætur og bestu vin­konur hafa upp­lifað og að hver og einn les­andi spyrji sig hvort hann/hún hefði getað brugð­ist öðru­vísi við. Við óskum þess að við leitum leiða til þess að við sem sam­fé­lag getum stutt og styrkt konur af erlendum upp­runa. Við óskum þess að hver og einn finni leiðir til að brjóta niður múra þagnar og hræðslu í þeim til­gangi að leggja sitt af mörkum við að skapa öruggan stað í sam­fé­lag­inu fyrir konur sem þurfa á vernd og styrk að halda.

Það er mik­il­vægt að setja á dag­skrá ástæður for­dóma, mis­mun­unar og nið­ur­brots sem konur af erlendum upp­runa upp­lifa á Íslandi. Sumum okkar, sem hafa orðið fórn­ar­lömb heim­il­is­of­beldis, kyn­ferð­is­of­beldis og jafn­vel mansals, er mark­visst haldið í við­kvæmri stöðu sem jafn­vel er notuð gegn þeim. Gáfaðar, mennt­aðar, sterkar og fal­legar konur flytja hingað til lands ala með sér sömu drauma og vonir og íslenskar konur um bjarta fram­tíð og vel­gengni. Þegar þessar konur sjá drauma og vonir verða að engu vegna kerf­is­bund­inna for­dóma, van­rækslu og mis­mun­unar, er þeim þröngvað í hlut­verk fórn­ar­lambs sem oftar en ekki er upp á kval­ara sinn komið.

Konur af erlendum upp­runa krefj­ast nú sömu athygli og íslenskar kyn­systur þeirra og að sam­fé­lagið bregð­ist við þeirra frá­sögnum með sama hætti og frá­sögnum íslenskra kvenna. Fyr­ir­tæki, sam­tök, íþrótta­fé­lög og sveit­ar­fé­lög setja nú saman aðgerða­á­ætl­anir og verk­ferla sem útrýma eiga kyn­ferð­is­legri mis­munun, mis­notkun og áreiti. Innan þess­ara áætl­ana og ferla þarf að vera pláss fyrir konur af erlendum upp­runa. Þar þarf að horfa sér­stak­lega til vald­efl­ingar þessa við­kvæma hóps, sem þarf ekki bara að eiga sína rödd. Sú rödd þarf líka að njóta skiln­ings og virð­ingar. Við viljum að vinnu­veit­endur tryggi það að við séum upp­lýstar um rétt­indi okkar og að verk­ferlar séu skýrir og boð­leiðir greiðar þegar við þurfum að vernda rétt­indi okkar sjálfra.

[links]Innan heil­brigð­is­kerf­is­ins, vel­ferð­ar­kerf­is­ins og dóms­kerf­is­ins þurfa íslensk stjórn­völd, bæði ríki og sveit­ar­fé­lög, að tryggja það að konur af erlendum upp­runa eigi greiða leið að úrræðum til að vernda við­kvæma stöðu sína. Margar okkar hafa þjáðst í þögn þegar við höfum hvorki haft þekk­ingu á eða borið traust til þess­ara þriggja kerfa sem eru uppi­staða örygg­is­nets­ins sem hvert heil­brigt sam­fé­lag passar að séu aðgengi­leg fyrir alla þá sem á þurfa að halda. Til að grípa þá sem minnst mega sín. Og til að tryggja að grund­vallar mann­rétt­indi séu virt þannig að eng­inn þurfi að líða fyrir upp­runa sinn eða lit­ar­hátt, trú sína eða kyn­hneigð.

Við ætlum ekki lengur að standa hjá í þögn. Við höfum fundið okkur vett­vang til að standa saman og teygjum okkur nú til sam­fé­lags­ins sem við búum í, elskum og vinnum í, til að standa með okkur. #Metoo er #VIÐlíka hreyf­ing þar sem við stöndum stoltar til að bjóða mis­munun og mis­notkun byrg­inn. Konur af erlendum upp­runa geta líka látið í sér heyra.

Þær frá­sagnir sem koma hér á eftir þarf að lesa með gler­augum virð­ingar, skiln­ings og var­færni. Þessar hug­rökku konur hafa valið að deila þessum sárs­auka­fullu frá­sögnum undir nafn­leysi. Við biðjum um að les­endur nýti þær til­finn­ingar sem kunna að vakna við lest­ur­inn til að finna leiðir til að bæta stöðu okkar og brúa það bil sem mynd­ast hefur á milli okkar og ann­arra í sam­fé­lag­inu.

Hægt er að lesa frá­sagnir kvenn­anna hér.

Áskorun til samfélagsins:

  • Við skorum á sam­fé­lagið að við­ur­kenna að konur af erlendum upp­runa hafa mis­mun­andi þarfir sem þarf að mæta á vinnu­stöðum þeirra, í sam­fé­lag­inu og af hálfu þeirra sem veita sam­fé­lags­lega þjón­ustu.
  • Við skorum á sam­fé­lagið að við­ur­kenna að konur af erlendum upp­runa eru við­kvæmur hópur sem er útsettur fyrir kerf­is­bund­inni mis­munun, ofbeldi og nið­ur­broti.
  • Við skorum á sam­fé­lagið að innan allra áætl­ana og ferla sem snú­ast um að útrýma kyn­bund­inni mis­munun, áreiti og ofbeldi sé gert ráð fyrir vald­efl­ingu kvenna af erlendum upp­runa.
  • Við skorum á stjórn­völd, bæði ríki og sveit­ar­fé­lög að tryggja eft­ir­lit og vernd kvenna af erlendum upp­runa.
  • Við skorum á stjórn­völd, bæði ríki og sveit­ar­fé­lög að tryggja öruggar boð­leiðir og far­vegi til að rétt­indi kvenna af erlendum upp­runa séu virt.
  • Við und­ir­ritum þessa beiðni í þeirri von að þátt­taka okkar í #Metoo bylt­ing­unni styrki bönd milli allra þegna sam­fé­lags­ins og styrki bar­átt­una gegn kyn­bund­inni mis­munun, áreiti og ofbeldi í sam­fé­lag­inu. Með því leggjum við okkar lóð á vog­ar­skálar þess að búa til betra og örugg­ara sam­fé­lag fyrir okkur öll.

Statement in English:

The #Metoo movem­ent here in Iceland has opened many an eye to sexual abuse, discrimination and harass­ment aga­inst women. Women from various career fields have stepped up and shared stor­ies from within their places of work. Stories which are laced with degradation and the systematic abuse of male power. Women have stood up and dem­anded that society no lon­ger turn a blind eye, work places need to put into action plans and systems to promote genuine equality and eradicate the very root of the problem that is sexual discrimination lea­d­ing to abuse and harass­ment.

We women of for­eign origin res­i­ding in Iceland have had a difficult time find­ing our place within the #Metoo movem­ent. It must be noticed that in previously rel­e­a­sed stor­ies and petitions there is a lack of women of for­eign origin. Were we left behind or did we choose not to partake? Both questions are very valid and import­ant for us to dare and ask ourselves. More import­antly the fact that we should have to ask these questions need be understood. We have decided to break our silence, stand together in solida­rity and trust that the society within which we res­ide will take notice and take action on our behalf.

Our stor­ies are laced with prejudice, discrimination, systematic degradation, seclusion, manipulation and abuse of the worst kind. Many of us have experienced extreme abandon­ment and isolation at the hands of the very people who are responsi­ble for protecting and empowering us. Through shar­ing our stor­ies we have lear­ned that society has looked the other way far too long, and in doing so has created a space where far too many of us do not feel safe or even that we have rights to the same protections and amenities as our Icelandic sisters.

[adspot]In the following pages some very brave women have shared with us their stor­ies. We ask only that you read these stor­ies with respect for that which our sisters, mothers, daughters and best fri­ends have sur­vi­ved. We ask that anyone rea­d­ing this look within and ask yourself what could I have done differ­ently? How can I supp­ort and empower women of for­eign origin in my place of work? What can I, from my position of power do to help break down the walls of silence and fear in order to help create a safe place for every woman in need within my community?

It is very import­ant that we address fir­stly the very root of prejudice, neglect, discrimination and degradation which women of for­eign origin experience in Iceland. Women whom have become victims of domestic violence, sexual abuse and even human trafficking are held in a certain position in society where their vulnera­ble status is man­ipulated and used aga­inst them. Women who are intelli­g­ent, well educated, beauti­ful and strong move here with the same dreams and hopes as any woman born of Icelandic blood. When those dreams are shatt­ered through systematic prejudice, degradation and discrimination many women are forced into a space where they become victims dependent upon their abusers.

We dem­and that action be taken on our behalf. Many businesses, unions, athletic clubs and even municipalities are putt­ing forth plans of action in order to wipe out sexual discrimination, abuse and harass­ment. We dem­and that within these plans of action there be specific allowances for women of for­eign origin. The allowances must include empowerment schemes where we too have a voice which is not only heard but respected. We dem­and that within workplaces we are taught our rights and proper resources are provided in order for us to app­eal and report when we und­er­stand our rights have been abused or bro­ken.

We also dem­and that within the healthcare, welfare and justice systems the Icelandic govern­ment and all local municipalities also design plans of action and develop an app­eal system accessible to us, with respect to our vulnera­ble status. Many women have suffered in silence simply due to the fact that they either have no knowledge or trust for these three very import­ant social systems designed to serve and protect every per­son reg­ar­dless of nationality, skin color, religion or sexual preference.

We will no lon­ger remain silent, we have found our plat­form of solida­rity and look now to the very society in which we live, love and work to stand with us. #Metoo is now a movem­ent where #Wetoo stand loudly and proudly to say no more discrimination and abuse. We are women of for­eign origin res­i­ding in Iceland hear us roar…..

The following stor­ies must be read with caution, respect and und­er­stand­ing. Remember these brave women who have chosen to share with you their pain and degradation have asked to be left anonymous. Please learn from what you read and use the feelings you experience to help improve our situations and bridge that gap which exists in our society.

This is our proclamation to our fellow countrymen here in our home away from home, Iceland. We sign this proclamation in hope that our participation in the #Metoo movem­ent will only strengt­hen bonds between all citizens and strengt­hen the fight to eradicate sexual discrimination, harass­ment and violence within our society. Help us to create a safe place in every community….

Challenge to society:

  • Admission that women of for­eign origin have diverse needs which must be met in the work place, society and by social service providers.
  • Admission that women of for­eign origin are vulnera­ble and susceptible to systematic degradation, sexual harass­ment and violence.
  • Every plan of action to eradicate gender based discrimination, harass­ment, and abuse must have distinct empowerment and app­eal schemes for women of for­eign origin.
  • Govern­ment organizations at federal and local levels must find a way to ensure over­sight and protection in eradicating discrimination aga­inst women of for­eign origin.
  • Govern­ment organizations at federal and local levels must insure that women of for­eign origin have ready access their rights and to mea­sures to both charge and app­eal if their rights have been bro­ken.
  • We strive together to create an inclusive “safe place” for victims in every community.

Í Facebook hópi þar sem reynslusögum og undirskriftum kvenna af erlendum uppruna er safnað eru 660 konur sem eru annað hvort af fyrstu eða annarri kynslóð innflytjenda. Hér eru undirskriftir 97 þeirra kvenna:

  1. Nichole Leigh Mosty, banda­rísk/íslensk, Kennari og verk­efna­stjóri
  2. Barbara Bruns Krist­vins­son, banda­rísk/íslensk, Verk­efna­stjóri
  3. Edythe L. Mang­indin, banda­rísk/íslensk, Hjúkr­un­ar­fræð­ingur/ljós­móð­ur­nemi, verk­efna­stjóri, stjórn­ar­kona í Samtökum kvenna af erlendum upp­runa á Íslandi
  4. Jasmina Crnac, bosn­ísk/íslensk, Stjórn­mála­fræði­nemi, full­trúi i vel­ferða­ráði Reykja­nes­bæjar
  5. Angelique Kelley, banda­rísk, Formaður Samtaka kvenna af erlendum upp­runa á Íslandi
  6. Leana Clothier, banda­rísk, Nemi í íslensku sem annað mál
  7. Branka Aleksand­ars­dóttir, serbnesk/íslensk, Hag­fræð­ingur, sjúkra­liði, félags­liði, öryrki
  8. Achie Afrikana, kenísk/íslensk, Nemi í alþjóða­sam­skiptum
  9. Jos­ephine Wanjiru Wawira, kenísk/íslensk, Kokkur
  10. Jelena Ciric, serbnesk/kana­disk, Ton­listar- og blaða­kona
  11. Azra Crnac, bosn­ísk/íslensk, Nemi
  12. Ania Wozniczka, pólsk/íslensk, Dokt­or­snemi
  13. Jenna Gottlieb, banda­rísk, Blaða­kona
  14. Katrín Níels­dóttir, kanadísk, Skjala­vörður
  15. Tatjana Latinovic, Formaður inn­flytj­enda­ráðs, deild­ar­stjóri, þýð­andi
  16. Fida Abu Libdeh, palest­ínsk/íslensk, Tækni­fræð­ingur, MBA, frum­kvöð­ull
  17. Lily Fisher, banda­rísk, Verk­efna­stjóri
  18. Sarah Dearne, áströlsk, Texta­höf­undur og nemi
  19. Vita, indo­nesísk, Móðir
  20. Laura Cervera, mex­ikósk/íslensk, Kennari og túlkur, stjórn­ar­kona í Samtökum kvenna af erlendum upp­runa á Íslandi
  21. Natalie Colceriu, banda­rísk/íslensk, Bóka­safns­fræð­ingur
  22. Ruth Adjaho Sam­ú­els­son, ganísk, Starfs­kona Land­spít­al­ans
  23. Nilmini T. Salgado, srílankísk, ,Starfs­kona Land­spít­al­ans
  24. Patience Afrah Antwi, Ritari, Teva
  25. Karoline Boguslawska, pólsk/íslensk, List­fræð­ingur/far­ar­stjóri
  26. Virginia Gillard, bresk/áströlsk, Leikkona, leik­list­ar­kenn­ari, trúður og rit­höf­undur
  27. Dagmar Trodler, þýsk, Rit­höf­undur,hjúkr­un­ar­fræð­ingu,umönnun fatl­aðra
  28. Alex­andra Martini, Venezuelan/Italian, Lista­kona, hönn­uður
  29. Maureen McLaughlin, írsk Skola­liði
  30. Patricia Albuquerque, bra­sílisk/íslensk, Kennari og hótel stjórn­andi
  31. Lydia Holt, banda­rísk, Rit­höf­undur
  32. Katia Arena, áströlsk/ítölsk, Klíniskur sál­fræð­ingur, rit­höf­undur/rit­stjóri
  33. Shruthi Basappa, ind­versk, Arkitekt
  34. Paula Gould, banda­rísk, Markaðs- og fjár­fest­inga­stjóri
  35. Ah Leum Kwon, suð­ur­kóresk, Nemi
  36. Nina Kaggwa, úgandísk/íslensk, Mark­þjálfi
  37. Kathrin Lisa van der Linde, hol­lensk/þýsk, Dokt­or­snemi
  38. Elizabeth Lay, banda­rísk/íslensk, Upp­eld­is­fræð­ingur
  39. Susan Gollifer, ensk/gvæj­önsk, Mann­rétt­inda­kenn­ara
  40. Sante Feaster, banda­rísk, Sam­skipti og rann­sóknir
  41. Randi W. Stebbins, banda­rísk, Kennari
  42. Krist­björg Eva Andersen Ramos, ekvadorsk, Stjórn­mála­fræði­nemi
  43. Amal Tamimi, palest­ínsk/íslensk, Félags­fræð­ingur
  44. Feriane Amrouni, alsírsk, Kennari
  45. Naila Zahin Ana, Bangla­desh, Rit­höf­undur
  46. Louise Harris, bresk, Lista­kona, kenn­ari
  47. Wiola Anna Ujazdowska, pólsk, Lista­kona
  48. Maricris Castillo de Luna, fil­i­peysk, Kennari
  49. Yara Polana, mósam­bisk, Hönnuður/for­rit­ari
  50. Grace Achieng, kenísk, Kennari
  51. Juliet Newson, nýsjá­lensk, Jarð­fræð­ingur og jarð­varma­verk­fræð­ingur
  52. Marika Sochorová, slóvakísk/íslensk, Skurð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur
  53. Syanam Syanam Syanam, Sölu­full­trúi
  54. Candice Michelle Goddard, suð­ur­a­frísk, Þjón­ustu­full­trúi
  55. Martina William, jama­ísk, Leik­skóla­liði
  56. Emily Ward, banda­rísk/íslensk, Nemi
  57. Morna Manekeller, skosk, Móðir, blóma­hönn­uður
  58. Jo Van Schalkwyk, suð­ur­a­frísk, Texta­höf­undur og verk­efna­stjóri
  59. June Scholtz, suður-afrísk/íslensk, Fisk­verka­kona
  60. Fanný Goupil-Thiercelin, frönsk/íslensk, Þjón­ustu­starf
  61. Amy Lee, ensk/áströlsk, Leik­skóla­kenn­ari
  62. Joanne Kearney, írsk, Tón­list­ar­kona/nemi/kokkur
  63. Dorota Joanna Kapanke, pólsk/íslensk, Sölukona
  64. Patience A. Karlsson, ganísk, entrepenure, education and healthcare
  65. Joanna Ewa Dominiczak, pólsk, kenn­ari
  66. Laura Val­entino, banda­rísk/íslensk, Lista­kona og við­móts­hönn­uður
  67. Andrea Ellen Jones, banda­rísk/íslensk, Silf­ur­smiður og fyr­ir­tækja­eig­andi
  68. Brynja Elisa­beth Hall­dórs­dóttir Guð­jóns­son, banda­rísk/íslensk, Lektor Háskóla Íslands
  69. Sabine Leskopf þýsk/íslensk Vara­borg­ar­full­trúi
  70. Verity Louise Sharp, bresk, Verk­efna­stjóri
  71. Saadet Özdemir Hilm­ars­son , tyrk­nesk/íslensk, Leik­skóla­kenn­ari, starfs­kona ATVR
  72. Joanna Marcinkowska, pólsk/íslensk, Verk­efna­stjóri
  73. Heather Millard, bresk, Kvik­mynda­fram­leið­andi
  74. Elena Vla­dimirovna Zaytseva, rús­nesk/íslensk, Grunn­skóla­kenn­ari starfar í dag á leik­skól­anum
  75. Shelag Smith, suður-afrísk, hof­uð­beina-og spjald­hryggs­jafn­ari/nudd­ari/texta­smiður
  76. Ellen Hong Van Truong, víetnömsk/Íslensk, MA-nemi í félags­ráð­gjöf
  77. Telma Velez, pórtugalsk/íslensk, Leik­skóla­kenn­ari/MA. nemi alþjóð­leg­sam­skipti
  78. Sara Elísabet Hösk­ulds­dóttir, banda­rísk/íslensk, kenn­ara­nemi
  79. Jessica Vill­ar­r­eal Karren, mex­ikósk, Við­skipta­fræð­ingur
  80. Silvia Zingara, pórtugalsk,"small business owner-keep it clean"
  81. Gloria Zarela Castro Conde, per­úsk/íslensk, Háskóla­nemi HÍ
  82. Claudia Ashonie Wilson, jama­ísk/íslensk, lög­maður
  83. Marion Poilvez ,frönsk, dokt­or­snemi HÍ
  84. Ana Isorena Atlason, fil­i­peysk/íslenskt, leik­sóla­kenn­ari
  85. Zitha Ngulube, zimbwean/icelandic, Stundent HÍ & Head of houskeeping
  86. Katla Einars, banda­rísk/íslensk, förð­un­ar­fræð­ingur og stílisti
  87. Sangeet Kaur, Singa­pore, Asst. nurse Land­spít­ali
  88. Anna María Milosz, pólsk/íslensk, túlkur/þýð­andi/bók­ari
  89. Amanda Jo Wood, banda­rísk, tourist shop
  90. Marvi Ablaza Gil, filli­peysk, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
  91. Olivia Dawson, bresk, Verk­efna­stjóri
  92. Yerzhana Akhmetzhanova, íslensk rík­is­borg­ari, skrif­stofu­stjóri
  93. Deepa Iyengar, banda­rísk, B.A. stu­dent linguistics, HÍ
  94. Lingdi Shao, kín­versk, Freelance translator and proofreader
  95. Kriselle Lou Suson Jóns­dóttir, filli­peysk/íslensk, mennt­un­ar­fræð­ingur
  96. Anamaria de Holt, úng­versk, Lista­kona
  97. Meike Witte, Ferð­ar­ráð­gjafi og leið­sögu­maður
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár