Dagur ákveðinn í að bjóða sig aftur fram

Dagur B. Egg­erts­son ætlar að bjóða sig aftur fram í kosn­ing­unum á næsta ári og seg­ist óhræddur við að leggja störf sín í dóm kjós­enda.

Dagur B. Eggertsson tók við borgarstjórastólnum af Jóni Gnarr sumarið 2014.
Dagur B. Egg­erts­son tók við borg­ar­stjóra­stólnum af Jóni Gnarr sum­arið 2014. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, seg­ist ákveð­inn í að bjóða sig fram aftur í kosn­ing­unum á næsta ári og að hann leggi óhræddur störf sín í dóm kjós­enda. „Starfið er áhuga­vert og fjöl­breytt og maður fær tæki­færi til að hafa áhrif á mótun sam­fé­lags­ins. Ég horfi til þess að við höldum áfram að búa til græna borg sem leggur áherslu á lífs­gæði, mann­líf og fjöl­breytt atvinnu­tæki­færi.“ Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Hann segir geysi­legan metnað og fram­þróun í atvinnu­lífi Reyk­vík­inga, skólum, vel­ferð­ar­þjón­ust­unni og hvert sem litið sé. Það séu for­rétt­indi að fá inn­sýn í það og taka þátt í því. „Umræðan getur verið nei­kvæð á net­inu en veru­leik­inn tekur henni langt fram og fram­úr­skar­andi mót­tökur sem ég fæ um alla borg hjá Reyk­vík­ingum hvetja mig áfram á hverjum degi.“

Í við­tal­inu segir Dagur frá því að fyr­ir­mynd hans í emb­ætti sé Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir. Hún hafi orðið þess vald­andi að hann fór í póli­tík. „Eitt af því sem hún og Reykja­vík­ur­list­inn gerðu að lyk­il­máli í póli­tík, og sem íhaldskar­lar hlógu að árum saman, voru jafn­rétt­is­mál, leik­skóla­mál og bar­átta gegn ofbeldi. Það þurfti konur til að breyta þeim málum fyrir alvöru og það er arfur Kvenna­list­ans sem við búum ennþá að. Borg­ar­búar studdu við þessar áherslur og mér finnst mik­il­vægt að halda þeim á lofti.“ Hann segir þó að brúa þurfi bil á milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla. Dag­vist­un­ar­mál séu miklu meira jafn­rétt­is­mál en flestir átti sig á. „Það er okkar sveit­ar­fé­lag­anna að tryggja örugga og góða dag­vistun. Það sama á við um fæð­ing­ar­or­lofið sem þarf að lengja í tólf mán­uði á næstu árum og þarna á milli þarf að brúa bilið.“

Uppbygging íbúða stærsta kosningaloforðið síðast

Dagur var í við­tali í Kjarn­anum fyrir nákvæm­lega þremur árum síðan, þann 19. júní 2014. Hann var þá nýtek­inn við sem borg­ar­stjóri Reykja­víkur af Jón Gnarr. Dagur hafði reyndar náð að vera slíkur í 100 daga frá haustinu 2007 og fram í jan­úar 2008, á einu storma­samasta tíma­bili í sögu borg­ar­innar.

Meiri­hlut­inn sem Dagur leiðir er sam­an­settur af Sam­fylk­ingu, Bjartri fram­tíð, Vinstri grænum og Pírötum. Nýleg könnun Við­skipta­blaðs­ins sýndi að hann myndi ekki verða í neinum vand­ræðum með að halda ef kosið væri í dag. Saman mæl­ast flokk­arnir með 61,4 pró­sent fylgi en fengu 61,7 pró­sent í kosn­ing­unum 2014. Valda­hlut­föll innan meiri­hlut­ans myndu þó eitt­hvað breyt­ast. Sam­fylk­ingin, flokkur Dags, fara úr 31,9 pró­sent fylgi í 22,3 pró­sent fylgi.

Stærsta kosn­inga­lof­orð Sam­fylk­ing­ar­innar í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga var að byggja 2.500-3.000 leigu- og búsetu­réttar­í­búðir í höf­uð­borg­inni. Samkvæmt upp­lýs­ingum á vefnum Íbúða­upp­bygg­ing.is á að tryggja fram­gang slíkrar upp­bygg­ingar fyrir vorið 2019. Af þeim eru 1.300 fyr­ir­hug­aðar á næsta ári, á kosn­inga­ár­inu, og 1.400 á árinu 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár