Tvö ný smit eftir þrjá smitlausa daga í röð

Hvorugur þeirra tveggja ein­stak­linga sem greindust með COVID-19 smit í gær voru í sótt­kví. Alls eru stað­fest smit á Íslandi nú komin yfir 1.800 frá því að far­ald­ur­inn hófst, en ein­ungis er vitað um 36 manns með virkan sjúk­dóm.

Tvö ný COVID-19 smit greindust á Íslandi í gær, eitt hjá Íslenskri erfða­grein­ingu og eitt á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala. Þar með lauk þriggja daga smit­lausri hrinu, en síð­ast greind­ist smit hér á landi 2. maí.

Alls voru á sjö­unda hund­rað sýni tekin í gær, 368 hjá Íslenskri erfða­grein­ingu og 252 á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala.

[adspot]

Hvorugur þeirra ein­stak­linga sem greindust í gær voru í sótt­kví áður en sýni úr þeim var tekið, en 729 manns eru enn í sótt­kví.

Staðfest smit á Íslandi eru nú orðin 1.801 tals­ins frá þvi að fyrsta smitið greind­ist þann 28. febr­úar, en virku smitin sem vitað er um eru ein­ungis þrjá­tíu og sex. Er fjöldi virkra smita var mestur, 24. mars, voru þau 1.096 tals­ins.

Þrír eru inniliggj­andi á sjúkra­húsi vegna veirunnar, sam­kvæmt vef­síð­unni covid.is, en eng­inn þeirra á gjör­gæslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár