Akkeri gataði eldgamla olíuleiðslu

Kali­fornía var eitt sinn mikið olíu­ríki en nú eru aðeins leifar að þeirri vinnslu stund­aðar í haf­inu úti fyrir strönd­inni. Leiðsl­urnar eru ára­tuga gamlar og ítrekað verið bent á að þær séu tif­andi tíma­sprengjur. Og nú er ein þeirra sprungin.

Strandir við sunnanverða Kaliforníu eru lokaðar vegna olíumengunar.
Strandir við sunn­an­verða Kali­forníu eru lok­aðar vegna olíu­meng­unar. Mynd: EPA

Dauða fiska og fugla tók að reka á fjörur við Santa Barbara í Kali­forníu um helg­ina. Hreins­un­ar­starf hófst þegar í stað enda ljóst að leki hafði kom­ist að olíu­leiðslu úti fyrir strönd­inni og að hann var mik­ill. Nú er talið að í það minnsta 600 þús­und lítrar af hrá­olíu hafi farið í Kyrra­hafið og að áhrifin á hið við­kvæma líf­ríki þess og vot­lendi strand­ar­innar eigi eftir að verða mikil.

Lekinn hefur orðið til þess að vekja enn eitt ákallið um að olíu­vinnslu úti fyrir Kali­forníu verið hætt. Leiðslan sem um ræðir flytur hrá­olíu sem unnin er á bor­p­alli fyr­ir­tæk­is­ins Amplify Energy í Long Beach. Þrátt fyrir að olíu- og gasverð hafi hækkað síð­ustu miss­eri er fyr­ir­tækið í kröggum enda vinnsla á þessum slóðum ekki talin arð­bær til fram­tíðar. Hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu hrundu svo hratt við tíð­indin og lækk­uðu um 44 pró­sent í miklum við­skiptum í gær, mánu­dag.

Olíu­leiðslan er yfir fjöru­tíu ára gömul en sér­fræð­ingar benda á að end­ing­ar­tími þeirra sé yfir­leitt ekki lengri en 25 ár. Rannsókn á lek­anum mun því m.a. bein­ast að því hvort að Amplify Energy hafi sinnt nauð­syn­legu við­haldi á henni. Þekkt er að jarð­skorpu­hreyf­ingar sem eru tíðar á þessum slóðum geti valdið skemmdum á olíu­leiðslum. Þær geta a.m.k. veikt þær en þessi til­tekni leki er hins vegar rak­inn til mann­anna verka. Talið er, að minnsta kosti núna og áður en loka­nið­ur­staða rann­sóknar liggur fyrir, að akk­eri flutn­inga­skips hafi gert gat á leiðsl­una.

Vegna flösku­hálsa í flutn­ingum varn­ings um víða ver­öld hafa tugir gáma­flutn­inga­skipa þurft að bíða utan við hafnir Kali­forníu eftir að röðin komi að þeim. Þau hafa því varpað akk­erum og lík­lega hefur eitt þeirra hafnað í olíu­leiðsl­unni með fyrr­greindum afleið­ingum.

Íbúar segj­ast hafa fundið olíufnyk í lofti þegar á föstu­dag. Margir til­kynntu lykt­ina til yfir­valda en töldu lítið hafa verið aðhafst fyrr en olíu­brák fór að sjást í nokk­urra kíló­metra fjar­lægð frá strönd­inni á laug­ar­dag. For­stjóri Amplify Energy hafnar því að til­kynn­ingar um olíu­lykt hafi borist fyrir helgi en slökkvi­liðs­stjór­inn í Newport Beach segir hins vegar að margar til­kynn­ingar hafi streymt inn bæði á fimmtu­dag og föstu­dag. Hins vegar sagði hann slíkar til­kynn­ingar ekki óal­gengar og að form­leg til­kynn­ing um olíu­leka hafi ekki borist fyrr en um miðjan dag á laug­ar­dag.

Hvað var gert þegar til­kynn­ingar um olíu­lykt fóru að ber­ast yfir­völdum verður eitt þeirra atriða sem verða rann­sökuð að sögn lög­regl­unnar í Orange County. Samkvæmt til­kynn­ingu hennar höfðu sjó­far­endur einnig vakið athygli yfir­valda á olíu­brák aðfara­nótt laug­ar­dags­ins.

Enn eitt atriðið sem er gagn­rýnt er að um leið og stað­festar fréttir af olíu­leka bár­ust sendi Amplify Energy sjálft kaf­ara á vett­vang til að rann­saka hvaðan lek­inn væri að koma. Sak­sókn­ari í Orange County segir þetta ekki rétt vinnu­brögð og að slík rann­sókn ætti alltaf að fara fram í sam­ráði við strand­gæsl­una. „Fyr­ir­tækið á ekki að leiða eigin rann­sókn á [olíu­leka] sem mun kosta okkur millj­ónir doll­ara og eyði­legg­ingu á umhverf­inu,“ hefur Reuters frétta­stofan eftir sak­sókn­ar­anum Todd Spitzer.

Olían hefur þegar breiðst út, þrátt fyrir umfangs­mikið hreins­un­ar­starf, og sést í fjörum á stóru svæði, m.a. við bæinn Hunt­ington Beach, sem er einn vin­sæl­asti staður Banda­ríkj­anna til að fara á brim­bretti. „Allir eru að spyrja sig hvernig þetta gat eig­in­lega gerst?“ segir brim­bretta­kapp­inn Marty Kish í sam­tali við Reuters.

Eitt af því sem vekur mestan ugg er að olían gæti kom­ist inn í Magnolia-vot­lendið sem hefur notið verndar frá árinu 2008 eftir að fjár­sterkur einka­að­ili keypti það. Þar er að finna um 90 fugla­teg­undir, þar af um tíu sem eru í útrým­ing­ar­hættu.

Enn er borað eftir olíu og gasi á 23 stöðum úti fyrir ströndum Kali­forníu. Amplify Engery rekur þar þrjá bor­p­alla. Orku­fyr­ir­tækin hafa frá því á fimmta ára­tug síð­ustu aldar byggt um 64 þús­und kíló­metra af olíu- og gasleiðslum í haf­inu við Banda­ríkin. Margar þeirra eru komnar vel til ára sinna. Fyrr á þessu ári benti eft­ir­lits­stofnun (Goverment Accountability Office, GAO) á að reglu­verki í kringum þessa inn­viði væri ábóta­vant. „Eftir því sem leiðsl­urnar eld­ast eykst hætta á skemmdum á þeim vegna aur­skriða og rofs á sjáv­ar­botni.“

Draga verður úr notkun jarðefnaeldsneytis

Damon Nogami sem starfar hjá umhverf­is­sam­tök­unum Natural Resource Defense Council, segir að auð­veld­lega hefði hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta meng­un­ar­slys. „Þetta eru ham­farir. Ég held að allir ættu að verða brjál­aðir yfir þessu.“ Hann segir að nú verði ríki heims að gyrða sig í brók og koma í veg fyrir að þetta ger­ist aftur. Lang­tíma­lausnin felist í því að draga úr notkun jarð­efna­elds­neytis. Þangað til það ger­ist verði að styrkja eft­ir­lit, bæta reglu­verk og draga þá sem valda meng­un­ar­slysum af þessu tagi til ábyrgðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár