Hafa sofið á eftirlitsverðinum

Eftirlit með raf­magns- og tölvuköplum sem liggja á hafs­botni í Evrópu, ásamt gas- og olíu­leiðslum, er allt of lítið. Skemmd­irnar á Nord Stream-gasleiðsl­unum hafa vakið margar þjóðir Evrópu, þar á meðal Dani, af værum blundi.

Danskt herskip við höfnina í Ronne í Borgundarhólmi, ekki langt frá því þar sem spreng­ingar urðu í Nord Str­eam-gasleiðsl­unni fyrir skömmu.
Danskt her­skip við höfn­ina í Ronne í Borg­und­ar­hólmi, ekki langt frá því þar sem spreng­ingar urðu í Nord Str­eam-gasleiðsl­unni fyrir skömmu. Mynd: EPA

Í langri frétta­skýr­ingu sem birt var á vef­síðu Danska útvarps­ins, DR, fyrir nokkrum dögum er skýr­ing­ar­mynd. Hún sýnir köngu­ló­ar­vef (orða­lag DR) kapla og röra sem liggja á hafs­botni við Danmörku og tengja dönsku eyj­arnar við umheim­inn. Gaslagnir, olíu­leiðslur, raf­magns- og tölvukaplar, sam­tals rúm­lega 30 tals­ins.

Þangað til fyrir um mán­uði síðan lá þessi röra- og kapla­bún­aður nán­ast eft­ir­lits­laus á hafs­botni. Skemmd­irnar á Nord Stream-gasleiðsl­unum hafa hins­vegar opnað augu margra fyrir því hve við­kvæmar þessar lagnir eru og hve auð­velt virð­ist vera að valda skemmdum á þeim.

Hvernig á að fylgjast með köplum og rörum á hafsbotni?

Þessa spurn­ingu lagði frétta­maður danska útvarps­ins fyrir Nils Wang fyrr­ver­andi yfir­mann í danska sjó­hernum. Að sögn Nils Wang þarf slíkt eft­ir­lit að vera tvenns konar: vöktun með þar til gerðum bún­aði á hafs­botni og í öðru lagi skipu­lagt eft­ir­lit með umferð skipa á dönsku haf­svæði. Tækni­kunn­áttu til að sinna þessum verk­efnum, bæði á hafs­botni og skipa­um­ferð, ræður danski her­inn þegar yfir að sögn Nils Wang.

Varðandi vöktun á hafs­botni nefndi Nils Wang tund­ur­dufla­slæðar­ann Saltholm sem not­aður hefur verið til að rann­saka skemmd­irnar á Nord Stream-gasleiðsl­unni í Eystra­salti. Saltholm er búinn svo­nefndum Site- Scan sonar til að mynda hafs­botn­inn en danski flot­inn ræður sam­tals yfir sex skipum sömu gerðar og Saltholm. Þau eru öll búin Site-Scan són­ar­tækjum og að jafn­aði eru þrír í áhöfn.

[links]Skipunum er jafn­framt hægt að fjar­stýra frá her­skipum, ef hætta er talin á ferðum. Són­ar­tækið áður­nefnda er dregið með­fram, eða yfir, kap­al­inn eða rörið sem verið er að vakta. Með því að bera svo saman nýjar myndir við eldri myndir (allt varð­veitt í tölvu) er hægt að sjá breyt­ingar á köplum og rörum.

Nils Wang segir að þótt danski sjó­her­inn búi yfir tækni­kunn­áttu til að sinna þessu verk­efni vanti mikið á að nægur bún­aður sé til staðar. Hvað varðar síð­ara atriðið, eft­ir­lit með skipa­ferðum, sagði Nils Wang að danska strand­gæslan hefði til umráða 30 skip, sem geta ann­ast það verk­efni.

Aldrei hægt að útiloka skemmdarverk

Þótt hægt sé að fylgj­ast með skipa­ferðum og vakta kapla og leiðslur á hafs­botni verður, að mati Nils Wang, aldrei hægt að úti­loka skemmd­ar­verk.

Hann telur að fyrsta skrefið í eft­ir­liti með köplum og leiðslum á hafs­botni gæti verið að skil­greina þau svæði sem eru við­kvæmust. Sums staðar liggja kaplar og leiðslur á fjög­urra kíló­metra dýpi og fremur ósenni­legt að reynt yrði að vinna skemmd­ar­verk á svo miklu dýpi. Hann gat þess einnig að það sé meira en að segja það að ætla að fylgj­ast grannt með á hafs­botn­inum og nefndi að í smá­bænum Nørre Nebel á Suð­vestur-Jótlandi kemur á land sæstrengur sem er rúm­lega 15 þús­und kíló­metra langur. Þessi strengur tengir saman Banda­ríkin og Evrópu.

Aukin umferð rússneskra kafbáta

Fyrir skömmu birti dag­blaðið The Times við­tal við Tony Radakin flota­for­ingja í breska sjó­hernum. Þar kom fram að á síð­ustu 20 árum hefði orðið gríð­ar­leg (fænomenal) aukn­ing á ferðum rúss­neskra kaf­báta. Bretar hefðu reynt að rekja ferðir Rússanna og árið 2020 varð árekstur milli bresks her­skips og rúss­nesks kaf­báts. Í kjöl­far þess urðu miklar vanga­veltur um að Rússar væru að kort­leggja kapla á hafs­botni.

Fyrir tíu dögum eyði­lagð­ist sæstrengur (net­kap­all) sem tengir Hjaltlandseyjar við Skotland. Ekki er vitað hvort það var skemmd­ar­verk eða fiski­troll sem eyði­lagði streng­inn. Viku áður en þetta gerð­ist skemmd­ist sæstrengur norðan við Hjaltlandseyjar. Sá strengur liggur til Færeyja. Íbúar Hjaltlands, sem eru 22 þús­und voru þá dögum saman í vand­ræðum með síma, tölvur og net­banka.

7. jan­úar sl. urðu skemmdir á sæstreng skammt frá Longye­ar­byen á Sval­barða. Ekki er vitað hvað olli en grunur beind­ist að rúss­neskum tog­ara sam hafði verið að veiðum á þessum slóðum. Með neð­an­sjáv­ar­mynda­vél sást eitt­hvað sem talið var að gæti verið far eftir troll en enn hefur ekki fund­ist skýr­ing á hvað gerð­ist.

Njósnaskipið Yantar

Eftir skemmd­ar­verkið á Nord Stream-gasleiðsl­unni hafa norskir fjöl­miðar fjallað tals­vert um rúss­neska njósn­a­skipið (orða­lag norskra miðla) Yantar.

Yantar var tekið i notkun árið 2015 og er sagt vera búið full­komnum tækjum til neð­an­sjáv­ar­rann­sókna. Í ágúst í fyrra fylgd­ust Bretar með skip­inu þar sem það sigldi allengi beint fyrir ofan sæstreng sem liggur frá Banda­ríkj­unum til Írlands. Yantar sást enn­fremur á sömu slóðum og til stendur að leggja sæstreng­inn Celtic Norse, milli Noregs og Írlands.

Haustið 2021 sást til skips­ins fyrir norðan Skagen í Danmörku. Skömmu síðar var slökkt á svo­nefndum AIS-sendi skips­ins, tæki sem notað er til að stað­setja skip.

Líflínur upplýsinga og orku

Nokkrum dögum eftir að skemmd­irnar á Nord Stream-gasleiðsl­unni komu í ljós lagði Ursula von der Leyen for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins fram drög að áætlun um eft­ir­lit og varnir á mik­il­vægum innviðum „líf­línum upp­lýs­inga og orku“ eins og hún komst að orði. „Skemmd­ar­verkin á Nord Stream-leiðsl­unni hafa sýnt okkur fram á hve við­kvæmt orku­flutn­inga­kerfi okkar er,“ sagði Ursula von der Leyen.

Hún sagði að orku­flutn­inga­kerfið væri það fyrsta sem þyrfti að skoða varð­andi öryggi og varnir en sama gilti í raun um gagna­flutn­inga­kerfið.

Evr­ópu­sam­bandið þarf að mati Ursulu von der Leyen að stór­auka notkun gervi­hnatta í þessu skyni og styrkja sam­vinn­una við NATÓ.

Ursula von der Leyen hefur einnig kynnt áætlun um að styrkja og auka sam­vinnu ESB-land­anna varð­andi borg­ar­ana og nefndi í því sam­bandi sam­starfið í kringum COVID-19 veiruna. „Sú sam­vinna gekk mjög vel en við þurfum að koma skipu­lag­inu í fast­ari skorður,“ sagði Ursula von der Leyen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár