„Um viljaverk var að ræða“

Götin á Nord Stream-gasleiðsl­unum er mjög stór og gríð­ar­legt magn met­ans streymir enn út í and­rúms­loftið. Danir og Svíar ætla að gæta þess að á fundi örygg­is­ráðs Sþ í kvöld verði fjallað um stað­reyndir, „nefni­lega þær að um vilja­verk var að ræða“.

Á fjórum stöðum streymir gas upp af leiðslunni í Eystrasalti.
Á fjórum stöðum streymir gas upp af leiðsl­unni í Eystra­salti. Mynd: EPA

Dönsk og sænsk stjórn­völd hafa sent Sam­ein­uðu þjóð­unum bréf í tengslum við umræður á fundi örygg­is­ráðs stofn­un­ar­innar um gaslek­ann í Eystra­salti. Fund­ur­inn fer fram í kvöld og á honum er staðan á stríð­inu í Úkraínu einnig til umræðu.

Rússnesk stjórn­völd fóru fram á að fundur yrði hald­inn í örygg­is­ráð­inu til að ræða gasleka á leiðsl­unum Nord Stream 1 og 2 sem liggja frá Rúss­landi til Þýska­lands.

Bréf Norð­ur­land­anna tveggja var sent stofn­un­inni til að tryggja að umræðan um lek­ann yrði á „fag­legum og stað­reynda­mið­uðum“ grunni.

[adspot]

Jeppe Kofod, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur, segir að í bréf­inu hafi verið upp­lýst um allt sem vitað er á þess­ari stundu um lek­ann, „nefni­lega það að um vilja­verk var að ræða,“ segir hann. Tvær spreng­ingar urðu skammt frá dönsku eyj­unni Borg­und­ar­hólmi á mánu­dag. Í kjöl­farið hafa upp­götvast 4 göt á leiðsl­unum og streymir nú jarð­gas í gríð­ar­legu magni upp á yfir­borðið.

Í bréf­inu kemur m.a. fram að jarð­skjálfta­fræð­ingar hafi stað­fest spreng­ingar sem jafn­ast á við notkun „nokk­urra hund­raða kílóa“ af sprengi­efni. Þá kemur enn­fremur fram að umfang lek­ans sé gríð­ar­legt og af yfir­borði sjávar megi ráða að götin á leiðsl­unni séu risa­vaxin, milli 200-900 metrar á lengd.

[links]Dönsk og sænsk stjórn­völd hafa tekið höndum saman við rann­sókn máls­ins enda er eitt gat á leiðsl­unni innan danskrar lög­sögu og annað innan sænskrar. Öllum steinum verður velt við, segir í bréf­inu, til að fá „skýra mynd af því sem gerð­ist og af hverju“.

Gas streymir enn úr leiðsl­unum. Ekki er vitað með vissu hversu mikið magn af gasi, sem aðal­lega er metan­gas, var í þeim er þær sprungu.

Stjórn­völd í bæði Úkraínu og Póllandi telja að rúss­nesk stjórn­völd hafi staðið að spreng­ing­unum. Stjórn­völd í öðrum löndum Evrópu fara var­legar í síkar yfir­lýs­ingar en segja flest ljóst að um skemmd­ar­verk sé að ræða.

Nord Stream gasleiðsl­urnar eru að mestu í eigu rúss­neska rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Gazprom. Rússar hafa ítrekað notað gasið, sem Evrópa er mjög háð, sem vopn gegn við­skipta­þving­unum sem Evr­ópu­sam­bandið og fleiri hafa beitt þá vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu. Verulega var dregið úr gas­flæð­inu í sumar og loks var alveg skrúfað fyrir. Skömmu síðar urðu spreng­ing­arnar.

Norska lofts­lags­stofn­unin telur að í það minnsta 80 þús­und tonn af met­ani hafi nú þegar sloppið út í and­rúms­loftið frá götum leiðsl­unnar. Til sam­an­burðar er öll losun Norð­manna á met­ani árlega í kringum 17 þús­und tonn. „Við höfum aldrei áður séð neitt þessu líkt,“ sagði Cathrine Lund Myhre, rann­sak­andi við stofn­un­ina, á blaða­manna­fundi í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

nordstream

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár