Sema Erla: Hatursorðræða á ekkert skylt við tjáningarfrelsi

Karl­maður hefur verið dæmdur fyrir hat­urs­orð­ræðu vegna þess sem hann skrif­aði á athuga­semda­kerfi DV í nafni konu sinnar. Sema Erla segir dóm­inn vera mik­inn sigur og marka tíma­mót í bar­átt­unni gegn hat­urs­orð­ræðu.

Sema Erla Serdar
Sema Erla Serdar Mynd: Aðsend mynd

Karl­maður var dæmdur fyrir hat­urs­orð­ræðu í Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands í júní síð­ast­lið­inum en að mati dóm­stóls­ins er það aug­ljóst að ummæli sem hann hafði uppi eru til þess fallin að hæð­ast að, róg­bera, smána eða ógna múslimum almennt vegna þjóð­ernis, lit­ar­háttar, kyn­þáttar eða trú­ar­bragða. Sema Erla Serdar greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni í dag. 

Í færsl­unni segir hún að í maí síð­ast­liðnum hafi hún borið vitni í máli Lög­regl­unnar í Vest­manna­eyjum gegn manni sem ákærður var fyrir hat­urs­orð­ræðu. Ummælin voru skrifuð á vef DV.is í nafni kon­unnar hans. Maðurinn var ákærður fyrir hat­urs­orð­ræðu gagn­vart múslimum, en ekki henni sér­stak­lega, þó nafn hennar komi þarna fram.

„Þrátt fyrir að mað­ur­inn hafi við­ur­kennt að hafa skrifað þetta þá neit­aði hann sök og hélt því fram að „ekki hafi vakað fyrir honum að smána, hæða, róg­bera eða ógna á opin­berum vett­vangi með þessu“ og að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því að ummælin myndu hafa áhrif. Ákærði vildi ekki tjá sig um afstöðu sína til múslima, hvorki í yfir­heyrslu hjá lög­regl­unni né fyrir dómi,“ segir í færsl­unni.

Að mati dóms­ins er aug­ljóst að ummælin eru til þess fallin að hæð­ast að, róg­bera, smána eða ógna múslimum almennt vegna þjóð­ernis, lit­ar­háttar, kyn­þáttar eða trú­ar­bragða, en jafn­framt Semu Erlu Serdar þó að hún sé ekki múslimi.

Þá segir í dómnum að það sé hafið yfir skyn­sam­legan vafa að ákærði hefur gerst sekur um þá hátt­semi sem honum er gefin að sök í ákæru og að úti­lokað sé að ummælin geti verið varin af skoð­ana­frels­is­á­kvæði Stjórn­ar­skrár­innar enda hafi ákærði sjálfur ekki byggt á því að þarna hafi hann verið að lýsa skoð­unum sínum, hvorki á Semu Erlu né múslimum, heldur verði þvert á móti ráðið af fram­burði hans að hann hafi ekki verið að lýsa skoð­unum sínum.

Maðurinn var dæmdur til að greiða 100.000 krónur í fésekt til rík­is­sjóðs innan 4 vikna eða sæta ellega fang­elsi í 8 daga. Hann þarf enn fremur að greiða allan sak­ar­kostnað, eða rúmar 400.000 krónur.

Sema Erla segir dóm­inn vera mik­inn sigur og marka tíma­mót í bar­átt­unni gegn hat­urs­orð­ræðu. „Dómurinn stað­festir að hat­urs­orð­ræða er ekki varin af skoð­ana­frels­is­á­kvæði Stjórn­ar­skrár­innar, enda á hat­urs­orð­ræða ekk­ert skylt við tján­ing­ar­frelsi. Ekkert. Hat­urs­orð­ræða er ofbeldi,“ segir hún í færslu sinni.

Hatursorðræða notuð til að niðurlægja einstaklinga

Sema Erla segir það vera ein­kenni hat­urs­orð­ræðu að ger­and­inn sendir þol­anda meið­andi skila­boð með vísan í stöðu beggja í sam­fé­lag­inu og því hafi hún áhrif á og grafi undan rétti ann­arra til jafn­réttis og þess að þurfa ekki að þola mis­munun. Hún sé notuð til þess að nið­ur­lægja ein­stak­linga, gera lítið úr per­sónu þeirra og brjóta þá niður.

„Í hvert skipti sem hat­urs­orð­ræða er notuð kostar hún ein­hvern hluta af þeim sjálfum, sjálfs­mynd þeirra og hluta af sál­ar­lífi þeirra. Hat­urs­orð­ræða er stór­hættu­legt sam­fé­lags­mein. Hat­urs­orð­ræða sem látin er óáreitt getur haft mjög alvar­legar afleið­ingar en fæstir gera sér grein fyrir að fáein orð á Facebook eða öðrum miðlum geta haft mikil áhrif á ein­stak­linga og hópa auk þess sem það getur kveikt hug­mynd eða sáð fræi í huga ein­stak­linga og hópa sem mögu­lega ganga þegar með ein­hverjar skað­væn­legar hug­myndir í koll­inum enda er hat­urs­orð­ræða oft­ast und­an­fari hat­urs­glæps. Hat­urs­orð­ræða getur ýtt undir þess konar ástand í sam­fé­lögum að ákveðnir hópar eru lít­ils­virtir og mis­munun þeirra almennt við­ur­kennd. Í alvar­leg­ustu til­vikum leiðir það til sam­fé­lags­rofs,“ segir hún.

Í þessu sam­hengi seg­ist hún vera hugsi yfir þeim til­lögum sem lagðar hafa verið fram um breyt­ingar á lög­unum sem taka á hat­urs­orð­ræðu. Í stað þess að þrengja skil­grein­ing­una á hat­urs­orð­ræðu ætti að skil­greina hana betur. Hið sama eigi við um hat­urs­glæpi. „Þegar kemur að því erum við langt á eftir nágranna­ríkjum okkar, en víða eru td. heim­ildir til refsi­hækk­unar ef hægt er að sýna fram á ásetn­ing byggðan á nei­kvæðu við­horfi.

Að mínu mati er galið að það eigi að fara að gera þolendum hat­urs­orð­ræðu erf­ið­ara fyrir með að leita verndar gegn ofbeld­inu, nú þegar það er loks­ins orðið mögu­legt. Slíkt er mikil aft­ur­för. Orðum fylgir ábyrgð og fólk verður að axla ábyrgð á því sem það segir,“ segir hún.

Hatursorðræða snýst um ofbeldi

Að lokum seg­ist henni ofbjóða að heyra full­trúa í nefnd­inni um þessi nýju lög tala um hat­urs­orð­ræðu og móðg­anir í sömu umræðu, eins og gert hafi verið í Kast­ljósi í gær­kvöldi. Það lýsi miklu skiln­ings­leysi. Hat­urs­orð­ræða snú­ist ekki um að móðg­andi hlutir séu sagðir við eða um ein­hvern eða leyfi til þess.

„Hat­urs­orð­ræða snýst um ofbeldi sem m.a. verður til þess að fólk tekur sitt eigið líf, drepur stjórn­mála­fólk og fremur hryðju­verk. Þess vegna er hún hættu­leg. Þess vegna hefur mynd­ast víð­tæk alþjóð­leg sam­staða um að mik­il­vægt sé að sporna gegn henni. Við eigum að taka skýra afstöðu í þeirri bar­áttu og berj­ast gegn því að hat­urs­orð­ræða festi sig í sessi með öllum mögu­legum leiðum!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár