Ríkið borgar 650 milljónir í VIRK á næsta ári

Framlag rík­is­ins til VIRK end­ur­hæf­ing­ar­sjóðs­ins verður óbreytt á þessu ári, 200 millj­ónir króna. Á næsta ári verður fram­lag rík­is­ins 650 millj­ónir króna og árið 2017 verður það 0,06 pró­sent af gjald­stofni trygg­inga­gjalds. Gert er ráð fyrir að sú upp­hæð verði 740 millj­ónir króna.

Þetta kemur fram í sam­komu­lagi milli fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra ann­ars vegar og VIRK starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóðs hins vegar. Sam­komu­lagið var und­ir­ritað í dag og tryggir að allir sem þurfa á því að halda fá atvinnu­tengda starfsend­ur­hæf­ingu til þess að verða virkir á vinnu­mark­aði á ný.

Ætluðu að hafna skjólstæðingum ríkisins ef ekki semdist


Virk er starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóður sem stofn­aður var af Alþýðu­sam­bandi Íslands (ASÍ) og Samtökum atvinnu­lífs­ins (SA) í maí 2008. Síðan þá hafa atvinnu­rek­endur og líf­eyr­is­sjóðir greitt hlut­fall af stofni iðgjalds til sjóðs­ins til að standa undir rekstri hans og starfsend­ur­hæf­ingu þeirra sem eru virkir á atvinnu­mark­aði. Ríkið átti síðan, sam­kvæmt lögum sem sam­þykkt voru árið 2012 og samn­ingum sem voru gerðir þegar VIRK var sett á fót, að greiða fram­lag til sjóðs­ins. Það fram­lag átti meðal ann­ars að fjár­magna starfsend­ur­hæf­ingu þeirra ein­stak­linga sem eru atvinnu­lausir, þiggja örorku­líf­eyri eða eru skjól­stæð­ingar félags­mála­stofn­ana. Það hefur ekki verið gert eins og samið var um.

VIRK greindi frá því í des­em­ber 2014 að sjóð­ur­inn myndi ekki taka við ein­stak­lingum sem standa utan vinnu­mark­aðar, sem eru örorku­líf­eyr­is­þegar eða skjól­stæð­ingar félags­mála­stofn­ana á árinu 2015 ef fram­lag rík­is­ins til sjóðs­ins yrði ekki hækkað. Í fram­haldi af því svar­aði Eygló Harð­ar­dóttir því til að ef VIRK myndi ekki falla frá þeirri ákvörðun sinni að hafna 200 millj­óna króna fram­lagi rík­is­ins „verði allt kapp lagt á að tryggja fólki þá þjón­ustu sem það þarf hjá VIRK eða eftir öðrum leiðum“. Þjón­ustan var því í hnút í nokkurn tíma og við­ræður hafa staðið yfir um lausn deil­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár