Konungur hljóðfæranna þrjú hundruð ára

Um þessar mundir eru þrjú hund­ruð ár síðan hljóð­færið sem iðu­lega er nefnt kon­ungur hljóð­fær­anna varð til. Slag­harpan, eða píanóið, á engan eig­in­legan ,,afmæl­is­dag” en um alda­mótin 1700 er þessa hljóð­færis fyrst getið.

Árið 1655 fædd­ist í Padova á Ítalíu drengur sem síðar var skírður Bar­tolomeo, fjöl­skyldu­nafnið var Christofori. Fátt er vitað um æsku pilts­ins en talið vitað að hann hafi numið fiðlu­smíði á verk­stæði Stra­di­vari fjöl­skyld­unnar í bænum Cremona á Norður-Ítalíu. Ítalskur sagn­fræð­ingur telur sig hafa fundið sann­anir fyrir því að Antoni Stra­di­vari hafi verið leið­bein­andi Christofori. Antoni Stra­di­vari þessi er þekkt­asti fiðlu­smiður sem uppi hefur verið en hann smíð­aði jafn­framt ann­ars konar strengja­hljóð­færi.

Prinsinn í Flórens

Bar­tolomeo Christofori var árið 1688 ráð­inn til Ferdin­ando de Medici í Flórens. Ferdin­ando þessi var prins, sonur her­tog­ans í Toscana, eins rík­asta manns Evrópu á þessum tíma. Um til­drög þess­arar ráðn­ingar er ekk­ert vitað en Ferdin­ando prins var mik­ill áhuga­maður um tón­list og kannski hefur Stra­di­vari bent á Christofori þegar prins­inn leit­aði að starfs­manni. Prinsinn lék sjálfur á hljóð­færi, átti fjöld­ann allan af vönd­uðum hljóð­færum og tón­list­ar­menn voru tíðir gestir í höll hans í Flórens. Meðal hljóð­fær­anna í eigu prins­ins voru 37 semb­alar og til eru gögn sem sýna að Christofori ann­að­ist ýmis konar við­hald og við­gerðir á þeim.

Vildi eitthvað nýtt

Ferdin­ando prins var eins og áður sagði mik­ill áhuga­maður um tón­list og hljóð­færi. Hann mun hafa sagt Christofori að hann gæti bæði eytt tíma og pen­ingum í það sem nú myndi vera kallað þró­un­ar­vinna og ku hafa nefnt semb­alinn sér­stak­lega. Christofori lét ekki segja sér þetta tvisvar og eyddi miklum tíma í alls kyns til­raunir og prins­inn fylgd­ist áhuga­samur með. Christofori þótti hljóm­ur­inn í semb­alnum of ein­hæfur og ein­setti sér að bæta úr því. Eftir margra ára vinnu hafði honum tek­ist að smíða hljóð­færi, sem í upp­hafi dró nafn sitt af því að á það var bæði hægt að spila veikt og sterkt, Gravicembalo col piano e forte. Christofori hafði semsé tek­ist það sem hann ætl­aði sér. Ferdin­ando prins var him­in­lif­andi og hvatti Christofori til að halda áfram til­raunum sínum. Prinsinn lést fimm­tugur að aldri árið 1713 en þremur árum síðar var gerð skrá yfir þau hljóð­færi sem til voru í höll fjöl­skyld­unnar í Flórens og á list­anum var semb­all með hömrum, semsé píanó. Til eru þrjú píanó sem með vissu er vitað að Christofori smíð­aði á árunum 1720 – 1726. Þau líkj­ast sembal að ytra útliti, strengja­harpan (úr tré) liggj­andi, eins og í flygli. Hér verður ekki fjallað um hina tækni­legu hlið og upp­bygg­ingu píanós­ins en í mjög ein­földu máli má segja að það er hamar með filt­klæddum haus á tréstilk sem slær í streng­ina en á sembal er það sér­stakur bún­aður sem ,,kroppar” í streng­ina.

Vakti takmarkaða athygli í upphafi

Þótt píanóið byði uppá marg­falt fjöl­breytt­ari túlk­un­ar­mögu­leika en semb­all­inn vakti það ekki sér­staka athygli í upp­hafi. Semb­alinn þekkti fólk enda átti hann sér langa hefð. Christofori á að hafa látið svo um mælt árið 1720 að það væri aðeins tíma­spurs­mál hvenær heim­ur­inn myndi upp­götva píanóið. Það reynd­ist rétt, árið 1725 birt­ist í þýsku tíma­riti löng grein um Christofori og píanóið, grein þess vakti mikla athygli,en Christofori lést sex árum síðar, 1731.

Píanóið slær í gegn

Margir hljóð­færa­smiðir hófu fyrir og um miðja átj­ándu öld­ina að smíða píanó. Vin­sældir hljóð­fær­is­ins juk­ust eins og Christofori hafði spáð. Meðal þeirra sem snemma komu auga á mögu­leika píanós­ins var fyr­ir­tækið Broadwood & Sons í Lundúnum sem síðar sendi bæði Ludwig van Beethoven og Josep Haydn píanó að gjöf.

Til að gera langa sögu stutta

Þótt tækn­inni hafi fleygt fram frá dögum Christofori er grund­vall­ar­upp­bygg­ing hljóð­fær­is­ins sú sama. Árið 1825 fékk banda­rískt fyr­ir­tæki einka­leyfi á heil­steyptum ramma (hörp­u­nni) úr járni. Þannig varð harpan marg­falt sterk­ari en áður og hljóð­færið að sama skapi hljóm­sterkara. Franskt fyr­ir­tæki hóf smíði upp­rétts píanós (þar sem strengir liggja lóð­rétt) snemma á nítj­ándu öld. Slík hljóð­færi eru minni og ódýr­ari og einsog franska fyr­ir­tækið sagði í aug­lýs­ingum ,,henta því betur til heim­il­is­nota”.

Á síð­ustu ára­tugum hafa komið á mark­að­inn margs konar raf­magns­pí­anó sem, að minnsta kosti sum hver, kosta ein­ungis brot af verði hinna hefð­bundnu píanóa. Hljóm­gæðin eru ekki sam­bæri­leg.

Þeir fjórir stóru

Píanó­fram­leið­endur eru í dag ótelj­andi, um allan heim. Fjögur fyr­ir­tæki eru þó af mörgum talin standa fremst í þeim flokki. Bösend­orfer í Vín (í dag eign Yamaha í Japan) er elst þess­ara fjög­urra, stofnað 1828. Hin þrjú, Steinway & Sons í Þýsklandi og Banda­ríkj­unum, Bechstein og Bluthner í Þýska­landi (Berlín og Leipzig) voru öll stofnuð árið 1853.

Af hverju er píanóið svona vinsælt hljóðfæri?

Þessari spurn­ingu er kannski fljótsvarað. Píanóið er geysi­lega fjöl­hæft hljóð­færi enda til ógrynni af tón­verkum sem samin hafa verið fyrir það. Hægt er að leika á það veikt og sterkt, dramat­ískt og róm­an­tískt, það sómir sér jafn vel eitt og sér og í hópi ann­arra hljóð­færa, það fyllir sal­inn og nýtur sín líka vel sem lág­vær bak­grunnur þegar svo ber undir. Sem með­leiks­hljóð­færi söngv­ara er það í sér­flokki. Þegar öllu er á botn­inn hvolft er ekki að undra að píanóið eða slag­harpan sé iðu­lega kallað kon­ungur hljóð­fær­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár