Umboðsmaður vill fá öll samskipti Bjarna við Bankasýsluna

Umboðs­maður Alþingis vill frek­ari skýr­ingar frá Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á afstöðu hans til eigin hæfis vegna sölu á 22,5 pró­senta hlut í Íslands­banka. EInnig vill umboðs­maður fá afhent öll gögn um sam­skipti ráð­herr­ans og ráðu­neytis hans við Banka­sýslu rík­is­ins í sölu­ferl­inu.

Feðgar
Feðgar Umboðs­maður Alþingis er með til skoð­unar álita­mál sem varðar hæfi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vegna kaupa einka­hluta­fé­lags föður hans á hlut í bank­anum. Hér á mynd eru þeir feðgar, Benedikt Sveins­son og Bjarni Bene­dkts­son. Mynd: Samsett / Heimildin

Umboðs­maður Alþingis hefur farið fram á að öll gögn sem til eru um sam­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og ráðu­neytis hans við Banka­sýslu rík­is­ins frá því að sölu­ferlið á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í Íslands­banka hófst og þar til úthlutun hluta­bréfa lauk. Umboðs­maður vill meðal ann­ars fá tölvu­póst­sam­skipti, minn­is­blöð og sím­töl.

Þessi krafa umboðs­manns er í tengslum við beiðni hans um frek­ari skýr­ingar frá fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra varð­andi afstöðu ráð­herr­ans til eigin hæfis, en umboðs­maður hefur verið með athugun í gangi sem varða álita­mál um hæfi ráð­herr­ans vegna kaupa einka­hluta­fé­lags föður hans á hlut í bank­anum, en félagið Haf­silfur, sem er í eigu Bene­dikts Sveins­sonar, föður Bjarna, tók þátt í útboði Banka­sýsl­unnar.

Síðasta svar ráð­herr­ans í tengslum við þessa athugun barst umboðs­manni 24. mars og óskar umboðs­maður nú, í bréfi sem stílað var á ráð­herr­ann 5. maí, efitr „nán­ari og ítar­legum skýr­ingum á afstöðu ráð­herra, m.a. hvort hann telji það hafa verið for­sendu hugs­an­legs van­hæfis síns í mál­inu að hann hefði vit­neskju um að einka­hluta­fé­lagið væri meðal bjóð­enda.“ 

Í til­kynn­ingu sem birt er á vef umboðs­manns í dag segir sömu­leiðis að umboðs­maður telji „ekki enn fylli­lega ljóst hvort ráð­herra telji það fyr­ir­komu­lag sem við­haft var við söl­una hafi í reynd tryggt að gætt yrði hæf­is­reglna“ og segir umboðs­maður að í því til­liti sé meðal ann­ars „spurt um hvort raun­hæft hefði verið að kanna hvort fyr­ir­hug­aðir kaup­endur hefðu þau tengsl við ráð­herra að slík álita­mál vökn­uðu.“

Taldi ráðuneytið að Bankasýslan hefði átt að kanna tengslin?

Umboðs­maður vísar til þess að í svari ráð­herra hafi komið fram að engin athugun á slíkum tengslum fór fram innan ráðu­neyt­is­ins og óskar eftir upp­lýs­ingum um hvort ráðu­neytið hafi litið svo á að Banka­sýsl­unni bæri að kanna slík atriði.

„Spyr [umboðs­maður] í því sam­bandi hvort stofn­un­inni hafi verið ljóst að einka­hluta­fé­lag í eigu föður ráð­herra væri á meðal bjóð­enda og þá hvers vegna athygli ráðu­neyt­is­ins hafi ekki verið vakin á því,“ segir í til­kynn­ingu umboðs­manns.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jack Danielsson skrifaði
    Umbinn þorir að hjóla í glæpahundinn í fjármálaráðuneytinu og það er gott að vita að það er einhver þarna sem þorir í helvítis glæpaklíkuna.
    0
  • Kári Jónsson skrifaði
    Hitastigið undir Bjarna Ben hækkar bara og hækkar umboðsmaður alþingis fær ófullnægjandi svör við öllum spurningum, vegna sölu-RÁNSINS á Íslandsbanka, það stendur ekki steinn yfir steini, hvenær telur auðvaldið að framganga Bjarna Ben sé komið á hættustig og tímabært að skipta um mann í brúnni ? Auðvaldið hlífir engum ekki einu sinni strengjabrúðum sínum.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár