Íbúar Peking óttast aðra bylgju kórónuveirufaraldursins

Rúm vika er liðin frá því að slakað var á aðgerðum sem gripið var til í Peking vegna kór­ónu­veirunnar. Nú ótt­ast fólk þá röskun sem gæti fylgt annarri bylgju veirunnar ef ekki tekst að hefta útbreiðsl­una.

Maður stendur vörð við eftirlitsstöð í lokuðu hverfi í Peking.
Maður stendur vörð við eft­ir­lits­stöð í lok­uðu hverfi í Peking. Mynd: EPA

Mikill við­bún­aður er nú í Peking vegna ótta um að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn nái sér aftur á strik í borg­inni. Fjölda flug­ferða hefur verið aflýst, skólum hefur verið lokað sem og íbúð­ar­hverfum að því er fram kemur í frétt Reuters.

Í gær greind­ist 31 smit­aður af veirunni og tala smit­aðra síð­ast­liðna sex daga komin upp í 137. Ekki hafa jafn margir greinst með veiruna þar í borg í fjóra mán­uði en alls hafa rúm­lega 350 þús­und íbúar verið skimaðir síðan á sunnu­dag.

Talið er að útbreiðslu veirunnar megi rekja til Xinfadi mat­ar­mark­að­ar­ins sem stað­settur er í suð­vest­ur­hluta Peking. Mark­að­ur­inn er sá stærsti fyrir land­bún­að­ar­af­urðir í kín­versku höf­uð­borg­inni, þar er höndlað með þús­undir tonna af græn­meti, ávöxtum og kjöti á degi hverjum. Mark­að­ur­inn hefur verið lok­aður síðan á laug­ar­dag.

Rúmlega helm­ingur fluga til og frá borg­inni hafa verið felld niður, flest þeirra inn­an­lands­flug. Þar að auki er leigu­bíl­stjórum meinað að aka úr borg­inni og mörgum rútu- og lestar­ferðum hefur verið aflýst.

27 hverfi hafa verið skil­greind sem miðl­ungs hættu­svæði. Íbúar þeirra þurfa að láta mæla hita sinn á sér­stökum eft­ir­lits­stöðvum þeir fara úr hverf­inu eða snúa aftur í hverfið. Þá hefur hverfið í næsta nágrenni við Xinfadi mark­að­inn verið skil­greint sem algjört áhættu­svæði og allir íbúar skyld­aðir til að vera í sótt­kví.

Yfirvöld ótt­ast enn frek­ari útbreiðslu veirunnar en talið er að smit sem greinst hafa í hér­uð­unum Hebei, Liaoning, Sichuan og Zhejiang megi rekja til Xinfadi mark­að­ar­ins.

Rétt rúm­lega vika er liðin frá því að slakað var á aðgerðum sem gripið var til í borg­inni vegna kór­ónu­veirunnar. En nú hafa margir íbúar áhyggjur af þeirri röskun sem kann að hljót­ast af annarri bylgju veirunnar verði hún að veru­leika, að því er segir í annarri frétt Reuters.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár