39 greindust með COVID-19 í gær – 464 greinst frá miðjum mánuði

Rétt tæp­lega fjöru­tíu smit af kór­ónu­veirunni greindust í gær, sunnu­dag. Lang­flestir voru í sótt­kví við grein­ingu en áhöfn línu­báts, sem öll smit­að­ist, er inni í tölum gær­dags­ins.

Frá 15. sept­em­ber, á tæp­lega hálfs mán­aðar tíma­bili, hafa 464 greinst með COVID-19 hér á landi. Í gær greindust 39 með veiruna inn­an­lands.

Nýgengi inn­an­lands­smita á hverja 100 þús­und íbúa er nú komið í 128,2. Það var 13,6 fyrir um tveimur vikum eða um það leyti sem þriðja bylgja far­ald­urs­ins hér á landi hófst.

Fjórir sjúk­lingar eru inniliggj­andi á Land­spít­al­anum og í gær var einn þeirra kom­inn á gjör­gæslu­deild og í önd­un­ar­vél.

Í gær voru 1.385 sýni tekin á land­inu og þar af 629 við landa­mærin. Þetta er nokkuð minni fjöldi en síð­ustu daga enda eru yfir­leitt tekin færri sýni á sunnu­dögum en aðra daga vik­unnar. Mikill meiri­hluti þeirra sem greind­ist í gær var þegar í sótt­kví eða 87 pró­sent.

Í heild eru 492 í ein­angrun vegna COVID-19 og tæp­lega 1.900 manns í sótt­kví. Frá upp­hafi far­ald­urs­ins í lok febr­úar hafa 2.663 fengið COVID-19 á Íslandi. Tíu eru látin.

Hræðileg staða að vera með hópsýkingu úti á sjó

Inni í tölum gær­dags­ins er hóp­sýk­ing sem kom upp um borð í línu­skip­inu Valdimar GK. Staðfest var í gær að allir fjórtán skip­verjarnir væru með COVID-19. Í frétt RÚV kemur fram að veik­indi hefðu komið upp um borð á fimmtu­dags­kvöldið er skipið var að veiðum vestur af Horna­firði. Þegar fleiri tóku að veikj­ast var ákveðið að snúa til hafnar.

Björn Hall­dórs­son, örygg­is­stjóri útgerð­ar­fé­lags­ins Þor­bjarnar sem gerir Valdimar GK út, sagði í sam­tali við RÚV í gær­kvöldi að það væri hræði­leg staða að vera með hóp­sýk­ingu úti á sjó. Þegar ákveðið var að taka stefn­una í land var sól­ar­hrings­sigl­ing í „skíta­brælu“ fyrir höndum. Allt hafi þó gengið vel.

150 starfsmenn Landspítala í skimun

Land­spít­al­inn er á hættu­stigi vegna far­ald­urs­ins. Við­bragðs­á­ætlun vegna far­sótta hefur verið virkjuð á ný. Við­bragðs­stjórn og far­sótta­nefnd funda dag­lega.

Í dag stendur til að skima fyrir COVID-19 hjá um 150 starfs­mönnum Land­spít­al­ans í Fossvogi. Vegna fjölg­unar inn­lagna á sjúkra­húsið og vax­andi þunga í eft­ir­liti á COVID-göngu­deild­inni hefur við­bún­aður á smit­sjúk­dóma­deild­inni, sem er í Fossvogi, verið auk­inn.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði í sam­tali við Frétta­blaðið í gær að hann væri til­bú­inn með til­lögur að hertum aðgerðum ef á þyrfti að halda vegna áfram­hald­andi útbreiðslu kór­ónu­veirunnar hér á landi. Hann benti á að árangur af aðgerðum sem gripið var til síð­ast, t.d. tíma­bundin lokun vín­veit­inga­staða, taki sinn tíma að koma í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár