Ítalir hnykla vöðvana og ESB kinkar kolli

Sú ákvörðun ítal­skra stjórn­valda að hindra send­ingu 250 þús­und skammta af bólu­efni AstraZeneca til Ástralíu er slagur sem afhjúpar það ljóta stríð sem gæti verið í upp­sigl­ingu um dropana dýr­mætu.

Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, á blaðamannafundi eftir að ákvörðun Ítalíu lá fyrir.
Scott Morrison, for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu, á blaða­manna­fundi eftir að ákvörðun Ítalíu lá fyrir. Mynd: EPA

Til marks um að bar­dag­inn um bólu­efnin sé haf­inn fyrir alvöru er sú ákvörðun ítal­skra stjórn­valda að stöðva fyr­ir­hug­aða send­ingu 250 þús­und skammta af bólu­efni til Ástralíu. Evr­ópu­sam­bandið gerir ekki athuga­semdir við ákvörð­un­ina. Enda var hún byggð á fyr­ir­komu­lagi sem fram­kvæmda­stjórn þess kynnti til sög­unnar í jan­úar: Að sækja þyrfti um sér­stakt leyfi til stjórn­valda í við­kom­andi ríki innan sam­bands­ins áður en bólu­efni væri flutt út.

Sú ákvörðun sam­bands­ins snéri fyrst og fremst að lyfja­fyr­ir­tæk­inu AstraZeneca. Skærur brut­ust út á milli fram­kvæmda­stjórn­ar­innar og fyr­ir­tæk­is­ins eftir að það til­kynnti að minna yrði til skipt­anna af bólu­efn­inu innan ESB en áætl­anir höfðu upp­runa­lega gert ráð fyrir. Stjórnin sagði það samn­ings­brot. Sér­stak­lega í ljósi þess að Bretar og fleiri ríki fengju alla sína skammta þrátt fyrir fram­leiðslu­erf­ið­leika. Fyr­ir­tækið benti hins vegar á að ESB hefði dregið lapp­irnar í samn­inga­gerð­inni.

[adspot]

Og það er einmitt bólu­efni frá því fyr­ir­tæki sem ítölsk stjórn­völd sitja nú á og neita að heim­ila að sent verði til Ástralíu eins og til stóð. Bóluefni sem fram­leitt er í verk­smiðjum AstraZeneca á Ítalíu. Fram­kvæmda­stjórn ESB getur ógilt þá ákvörðun en ekki er útlit fyrir að það verði gert. Enda gerðu Ítalir, að því er heim­ildir Politico og fleiri fjöl­miðla herma, stjórn­inni fyr­ir­ætl­anir sínar ljósar fyrr í vik­unni og eftir skoðun tók hún undir með þeim: Hætta væri á að svo stór send­ing til Ástralíu myndi brjóta í bága við bólu­efna­samn­inga sem ESB hefur gert.

Þetta er ekki í sam­ræmi við þau svör sem João Aguiar Machado, sendi­herra ESB hjá Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni, gaf fyrr í vik­unni. „Frá því að fyr­ir­komu­lagið tók gildi þann 1. febr­úar höfum við fengið 150 beiðnir um útflutn­ing [á bólu­efni]. Við höfum heim­ilað þær allar. Ég end­ur­tek, allar.“

Ekki viðkvæmt ríki

Það var við­skipta­blaðið Financial Times sem fyrst greindi frá ákvörðun Ítala. Í frétt blaðs­ins í gær­kvöldi kom fram að ástæður hennar væru m.a. þær að Ástralía teld­ist ekki „við­kvæmt“ ríki hvað far­ald­ur­inn varðar. Þar sé hann undir nokkuð góðri stjórn í augna­blik­inu. Í öðru lagi þótti send­ingin of stór, 250 þús­und skammtar, sem krefj­ist sér­stakrar athug­unar.

Viðbrögð Ástrala hafa hingað til verið kurt­eis­is­leg. Sjálfir eru þeir að hefja, ef allt gengur að óskum, nokkuð umfangs­mikla fram­leiðslu bólefna á næst­unni. Þeir hafa þó vin­sam­lega beðið fram­kvæmda­stjórn ESB að end­ur­skoða ákvörð­un­ina. Ef loka­svarið verður hið sama gæti annað hljóð komið í strokk­inn.

Evr­ópu­sam­bandið hafði veðjað nokkuð stórt á bólu­efni AstraZeneca sem þróað var af vís­inda­mönnum við Oxford háskóla. Þeir voru þeir fyrstu til að ljúka við fyrstu fasa rann­sókn sína, sem lof­uðu góðu, þó að bæði Pfizer og Moderna hafi svo tekið fram úr í þró­un­ar­ferl­inu og fengið mark­aðs­leyfi á undan.

Hindr­anir í fram­leiðslu bólu­efnis AstraZeneca urðu hins vegar til þess að í stað þess að afhenda 100 milljón skammta til ESB á fyrsta árs­fjórð­ungi verða þeir nær 40 millj­ónum.

Í ljósi alls þessa kemur það ekki öllum á óvart að það hafi verið útflutn­ingur af bólu­efni AstraZeneca sem hafi verið stöðv­aður en ekki ein­hverra ann­arra fram­leið­enda.

En ef aðrir beita sömu brögðum?

Útflutn­ings­höml­urnar sem ESB setti á njóta stuðn­ings leið­toga ríkja sam­bands­ins. Þeir hafa þó sumir hverjir vakið athygli fram­kvæmda­stjórn­ar­innar á því að fleiri, t.d. Banda­ríkin, gætu ef út í það er farið, beitt svip­uðum með­ulum til að hindra útflutn­ing bólu­efna.

Um þetta er m.a. fjallað í bréfi sem Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, sendi Ursulu von der Leyen, for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB, í febr­úar. Áhyggj­urnar snúa að nýju bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins Johnson & Johnson en þess er vænst að Evrópska lyfja­stofn­unin veiti því mark­aðs­leyfi á fundi sínum 11. mars. Það gæti þá komið á markað í apríl.

Bóluefni Johnson & Johnson verður m.a. fram­leitt í verk­smiðju í Belgíu en í ljós hefur komið að fyr­ir­tækið ætlar sér að klára fram­leiðslu­ferlið, setja efnið í lyfjaglösin, handan hafs­ins – í Banda­ríkj­unum. Frederik­sen er meðal þeirra sem telja þetta fyr­ir­komu­lag bjóða hætt­unni heim. Að stjórn­völd í Banda­ríkj­unum geti þá heft dreif­ingu þess til Evrópu. Og gera þurfi eitt­hvað í mál­inu til að tryggja hags­muni Evr­ópu­landa.

Af þessu þarf ekki að hafa áhyggjur, hafa Banda­ríkja­menn síðar sagt.

[adspot]

Harðlega hefur verið gagn­rýnt hversu langan tíma tók ESB að klára samn­inga við lyfja­fyr­ir­tækin. Það gerð­ist í ágúst hvað AstraZeneca varðar en mörgum vikum fyrr hafði fyr­ir­tækið gengið til samn­inga við Bretland og fleiri ríki. Sama var uppi á ten­ingnum varð­andi samn­inga við Moderna og Pfizer. Ekki var gengið frá þeim fyrr en í nóv­em­ber.

Þetta á sér ýmsar skýr­ingar sem sumir hafa þó hrist höf­uðið yfir. Þannig er talið að samn­inga­nefnd ESB hafi verið umhugað um að ná niður verðum og tryggja að lyfja­fyr­ir­tækin – ekki sam­bandið – yrði ábyrgt fyrir áhrifum mögu­legra auka­verk­ana bólu­efn­anna. Á meðan ein­stök ríki gengu hratt og örugg­lega til samn­inga og pönt­uðu risa send­ingar ákvað samn­inga­nefnd ESB að „prútta eins og hún væri á útsölu­torgi“ á meðan versti veiru­far­aldur í meira en heila öld er að ganga yfir heims­byggð­ina, líkt og það er orðað í frétta­skýr­ingu Spiegel um samn­inga­við­ræð­urnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár