Fyrsta kynhlutlausa vegabréfið gefið út í Bandaríkjunum

Kyn: X. Banda­ríkin hafa nú bæst í þann stækk­andi hóp ríkja sem gefið hafa út vega­bréf með hlut­lausri kyn­skrán­ingu.

Bandaríkin hafa gefið út sitt fyrsta kynhlutlausa vegabréf.
Banda­ríkin hafa gefið út sitt fyrsta kyn­hlut­lausa vega­bréf. Mynd: Pexels

Banda­ríkin hafa gefið út sitt fyrsta kyn­hlut­lausa vega­bréf, sam­kvæmt til­kynn­ingu sem barst frá utan­rík­is­ráðu­neyti lands­ins í dag. Kyn­hlut­leysi er táknað með bók­stafnum X í vega­bréf­inu. Stefnt er að því að bjóða almennt upp á hlut­lausa kyn­skrán­ingu í vega­bréfum þar í landi frá og með næsta ári.

AP-frétta­stofan greinir frá þessu í dag og segir þetta mik­inn áfanga í rétt­inda­bar­áttu þeirra sem ekki skil­greina sig sem annað hvort karl né konu vest­an­hafs.

Ekki fylgdi til­kynn­ingu stjórn­valda hver hefði fengið vega­bréfið útgefið. Samkvæmt frétt AP neit­aði ráðu­neytið að tjá sig um hvort vega­bréfið hefði verið útgefið fyrir Dönu Zzyym, inter­sex mann­eskju frá Kólóradó-ríki sem hefur háð bar­áttu fyrir því að fá gefið út vega­bréf með hlut­lausri kyn­skrán­ingu allt frá árinu 2015, en af frétt­inni má lesa að það þyki lík­legt.

Hægt að fá kynhlutlaus vegabréf á Íslandi frá því í janúar

Banda­ríkin feta með þessu skrefi í kjöl­far nokk­urra ann­arra ríkja sem hafa þegar byrjað að heim­ila hlut­lausa kyn­skrán­ingu á opin­berum per­sónu­skíl­ríkjum. Ísland er eitt þeirra.

[adspot]

Eftir að lög um um kyn­rænt sjálf­ræði, sem voru sam­þykkt sum­arið 2019, tóku gildi hefur verið heim­ilt óska eftir hlut­lausri kyn­skrán­ingu hjá Þjóðskrá. Þjóðskrá fékk 18 mán­aða frest til þess að upp­færa kerfi sín og aðlaga þau að hlut­lausri kyn­skrán­ingu og í upp­hafi þessa árs, nánar til tekið 6. jan­úar, varð fyrst mögu­legt að sam­þykkja slíkar skrán­ingar.[links]

Ein­stak­lingar með hlut­leysa kyn­skrán­ingu, sem í þjóð­skrá falla undir flokk­inn „Kynsegin/annað“ hafa frá þeim degi getað sótt um að fá útgefin ný per­sónu­skíl­ríki, eins og vega­bréf, öku­skír­teini, nafn­skír­teini og fleira.

Samkvæmt ákvæðum laga um kyn­rænt sjálf­ræði skal ávallt tákna hlut­lausa skrán­ingu kyns í vega­bréfum með bók­stafnum X.

Á meðal ann­arra ríkja sem bjóða þegnum sínum upp á hlut­lausa kyn­skrán­ingu hjá hinu opin­bera og þar með í vega­bréfum eins og öðrum opin­berum per­sónu­skíl­ríkjum eru Argent­ína, Ástralía, Kanada, Danmörk, Indland, Malta, Nepal, Nýja-Sjáland, Portúgal og Pakistan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár