Kærkomin vaxtalækkun – Frekari vaxtalækkun í pípunum?

Það kom ekki á óvart að meg­in­vextir Seðla­banka Íslands hafi lækkað í morgun. Nú er spurn­ingin: Verður gengið enn lengra?

Ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands um lækka meg­in­vexti bank­ans úr 4,5 pró­sent í 4 pró­sent kom fjár­festum ekki mikið á óvart, en grein­endur höfðu spáð því að lækk­unin yrði ýmist um 0,25 pró­sentur eða 0,5 pró­sentur, eins og varð raunin.

Verð­bólga mælist nú 3,3 pró­sent, en í máli Más Guð­munds­sonar seðla­ban­ak­stjóra, á kynn­ing­ar­fundi vaxta­á­kvörð­un­ar­innar, kom fram að erlendir seðla­bankar hafi í gegnum tíð­ina getað sveiflað sínum raun­stýri­vöxtum meira en raunin hefur verið hér á landi en staðan nú væri breytt miðað við það sem áður hefur verið.

Þannig hafa raun­vextir oft verið nei­kvæðir, tíma­bundið, á erlendum mörk­uðum. Grein­ing­ar­deild Arion banka, sem spáði lækkun meg­in­vaxta niður í 4 pró­sent, segir í grein­ingu sinni á vaxta­á­kvörð­un­inni að túlka megi orð Más um vaxta­horf­urnar á þá leið, að vextir gætu lækkað enn meira. „Því má túlka orð banka­stjór­ans á þá leið að þegar verð­bólgu­vænt­ingar eru trygg­ari, þá geta seðla­bankar brugð­ist við efna­hags­þreng­ingum með vaxta­lækk­unum sem jafn­vel leiða til nei­kvæðra stýri­vaxta. Það gæti orðið raunin nú þó full snemmt sé að svara þeirri spurn­ingu. Aftur á móti ef krónan helst stöðug, efna­hags­um­svif minnka, verð­bólga fer ekki úr bönd­unum og kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga heldur, þykir okkur alls ekki ólík­legt að sjá tíma­bundið nei­kvæða raun­stýri­vexti,“ segir í grein­ing­unni.

Erfiðleikar eftir uppgang

Í Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands birt­ist allt önnur mynd af stöðu mála í hag­kerf­inu en hefur verið uppi und­an­farin ár. Samkvæmt bráða­birg­ar­tölum Hagstofu Íslands var hag­vöxtur í fyrra 4,6 pró­sen, en spá Seðla­bank­ans nú gerir ráð fyrir að sam­dráttur verði í lands­fram­leiðslu um 0,4 pró­sent.

Ástæðan er fyrst og fremst almennur efna­hags­legur sam­dráttur eftir fall WOW air og sam­drátt í ferða­þjón­ustu, en gert er ráð fyrir því í spánni sem birt­ist í Pen­inga­málum að ferða­mönnum muni fækka um 10 pró­sent á þessu ári, miðað við í fyrra. Það er nokkuð minni sam­dráttur en aðrir grein­endur á mark­aði hafa reiknað með, en spár hafa gert ráð fyrir á bil­inu 15 til 18 pró­sent sam­drætti á þessu ári.

Útlit er fyrir að árið 2019 verði tíma­mótaár í einu til­liti. Ef spár ganga eftir þá verður í fyrsta skipti frá árinu 2006 sam­dráttur í útflutn­ingi. Sam­drátt­ur­inn verður um 3,7 pró­sent, sam­kvæmt spá bank­ans.

Það er ekki aðeins sam­dráttur í ferða­þjón­ustu heldur einnig í sjáv­ar­út­vegi, þar sem loðnu­brestur vegur þungt. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands hefur verð­mæti loðnu­afla verið á bil­inu 18 til 30 millj­arðar á ári, á und­an­förnum ára­tug.

Spáin gerir einnig ráð fyrir að atvinnu­leysi fari vax­andi á næst­unni og að störfum fækki í hag­kerf­inu á næstu mán­uðum. Í ítar­legri kynn­ingu Þórarins G. Pét­urs­sonar, aðal­hag­fræð­ings Seðla­banka Íslands, var farið yfir helstu atriði, sem til umfjöll­unar eru í Pen­inga­málum, sem komu út í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár