Ekki komið til móts við þá sem voru útundan í fyrri aðgerðapakka

Stjórn Eflingar lýsir yfir von­brigðum með nýjan aðgerða­pakka stjórn­valda vegna COVID-19 far­ald­urs­ins.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn Eflingar hefur lýst yfir von­brigðum með aðgerða­pakka vegna COVID-19 far­ald­urs­ins sem stjórn­völd kynntu í gær. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stétt­ar­fé­lag­inu í dag.

Þá telur Efling að í pakk­anum sé ekki komið til móts við þær kröfur sem verka­lýðs­hreyf­ingin hefur sett fram, sér­stak­lega varð­andi vernd ýmissa hópa sem hafa orðið útundan í fyrri aðgerða­pakka.

Fram kemur að stjórn Eflingar hafi vakið athygli á stöðu slíkra hópa í ályktun frá 7. apríl síð­ast­liðnum, til dæmis þeirra sem eru í 45 pró­sent starfs­hlut­falli eða minna og for­eldra sem neyð­ast til að missa úr vinnu vegna skertrar opn­unar skóla. ASÍ og BSRB hafi enn fremur talað skýrt til stjórn­valda varð­andi þessa hópa og það sé miður að „það sé fyrir daufum eyrum“.

[links]Stjórn Eflingar minnir einnig á að vegna stór­auk­ins atvinnu­leysis þurfi að aðlaga hefð­bundnar atvinnu­leys­is­bætur. Stjórn minnir á fyrri ályktun þar sem kallað hafi verið eftir hækkun á atvinnu­leys­is­bótum og rýmkun skil­mála, sér í lagi að grunnatvinnu­leys­is­bætur verði hækk­aðar, hlut­fall tekju­teng­ingar hækkað, tíma­bil á tekju­tengdum bótum lengt og tveggja vikna bið­tími á grunnatvinnu­leys­is­bótum áður en tekju­tengdar bætur taka við afnum­inn.

Stjórn Eflingar fagnar bón­us­greiðslum til fram­línu­starfs­manna. „Mik­il­vægt er að ómissandi Efl­ing­ar­starfs­menn sem starfa í fram­línu þrifa, aðhlynn­ingar og umönn­unar gleym­ist ekki við úthlutun þessa bón­uss. Slíkt væri ólíð­andi órétt­læti,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár