Kvika stefnir á skráningu á Aðalmarkað

Stjórn Kviku banka sam­þykkti í dag að stefnt yrði að skrán­ingu á Aðal­markað Kaup­hall­ar­innar á næstu 6-12 mán­uðum.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka
Ármann Þor­valds­son, for­stjóri Kviku banka Mynd: Anton Brink

Stjórn Kviku banka sam­þykkti á fundi sínum í dag að stefna að skrán­ingu hluta­bréfa bank­ans á Aðal­markað Nasdaq Iceland á næstu 6-12 mán­uðum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bank­anum á vef Kaup­hall­ar­innar.

Í til­kynn­ing­unni segir Ármann Þor­valds­son, for­stjóri Kviku, skrán­ingu á Aðal­markað vera áhuga­vert skref fyrir bank­ann og eðli­legt fram­hald eftir skrán­ingu á First North fyrr á þessu ári. Með skrán­ingu á Aðal­markað verði Kvika fyrsta félagið á Íslandi sem færir sig af First North yfir á Aðal­markað.

Kvika hefur staðið í umfangs­miklum við­skiptum und­an­farin miss­eri, en Kjarninn greindi frá því þegar bank­inn sam­þykkti kaup á GAMMA á 3,75 millj­arða íslenskra króna fyrir tveimur vikum síðan. Sömu­leiðis lækk­aði VÍS hlutafé sitt í bank­anum í síð­ustu viku og mun greiða fyrir lækk­un­ina með því að gefa hlut­höfum sínum beina eign­ar­hlut­deild í Kviku. Með því mun eign­ar­hlut­deild þriggja ein­stak­linga sem allir hafa stöðu sak­born­ings aukast í bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár