Umsvifamiklir fjárfestar með stöðu sakbornings

Fjórir fjár­festar sem hafa stöðu sak­born­ings eiga stóra hluti í mik­il­vægum fjár­mála­fyr­ir­tækjum hér­lendis og auka við sig á meðan að rann­sókn stendur yfir á málum þeirra.

Eitt dómsmálanna tengist meintum umboðssvikum í Skeljungi.
Eitt dóms­mál­anna teng­ist meintum umboðs­svikum í Skelj­ungi. Mynd: EPA

Fjórir ein­stak­lingar sem allir hafa stöðu sak­born­ings í yfir­stand­andi dóms­málum hafa á und­an­förnum vikum kom­ist til auk­inna áhrifa innan umsvifa­mik­illa fjár­mála­fyr­ir­tækja á meðan rann­sókn stendur yfir. Enginn þeirra er enn orð­inn virkur eig­andi neins fyr­ir­tækis en í þremur til­vikum eru þeir með stærstu ein­stak­lings­fjár­festum skráðra fyr­ir­tækja.

Hugsanlega umfangsmestu skattalagabrot Íslands

Í Frétta­blað­inu var greint frá dóms­máli Sigurðar Gísla Björns­sonar, stofn­anda og eig­anda fisk­út­flutn­ings­fyr­ir­tæk­is­ins Sæmark ehf., en hann er grun­aður um stór­felld skattaund­an­skot sem eru til rann­sóknar hjá Skatt­rann­sókn­ar­stjóra og Hér­aðs­sak­sókn­ara. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri sagði rann­sókn­ina snú­ast um eitt af umfangs­mestu skatta­laga­brotum sem upp hafa komið hér á landi.

Í frétt­unum var greint frá því að lög­maður Sigurðar Gísla, Andri Gunn­ars­son, hafði fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings í mál­inu, en hús­leit var fram­kvæmd á heim­ili hans annan maí síð­ast­lið­inn.

Andri er einn af eig­endum eign­ar­halds­fé­lags­ins Óska­beins ehf. ásamt öðrum fjár­festum, en félagið á 2,05% í VÍS, auk þess sem það á um 10% hlut í Korta­þjón­ust­unni. Sömu­leiðis veitti Arion banki Óska­beini fullt umboð til að fara með atvæð­is­rétt rúmra 4% af VÍS við síð­asta hlut­hafa­fund, en á þeim fundi ákvað fyr­ir­tækið að lækka hlutafé sitt um 1,8 millj­arða króna sem það greiðir með hluta­bréfum í Kviku.

Skeljungsfléttan

Annað mál sem er til skoð­unar hjá emb­ætti Hér­aðs­sak­sókn­ara er hið svo­kall­aða Skelj­ungs­mál, sem Kjarninn hefur áður fjallað um. Skelj­ungs­málið snýst um meint umboð­svik, meint skila­svik, mögu­leg mútu­brot og mögu­leg brot á lögum um pen­inga­þvætti þegar olíu­fé­lagið Skelj­ungur og tengd félög voru keypt og seld á árunum 2008 til 2013. Meðal þeirra sem gegna stöðu sak­born­ings í því máli eru Einar Örn Ólafsson auk hjón­anna Svan­hildi Nönnu Vig­fús­dóttur og Guð­mundar Arnar Þórð­ar­sonar. Hjónin Guð­mundur og Svan­hildur voru hand­tekin 31. maí síð­ast­lið­inn, en Einar Örn var einnig boð­aður til skýrslu­töku sama dag.

[links]Einar Örn er meðal stærstu eig­enda Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar (TM), en eign­ar­hlutur hans í félag­inu nær 2,8%, í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið sitt Einir ehf.. Auk þess er Einar í hópi eig­enda eign­ar­halds­fé­lags­ins S121, sem á um 59% í Stoðum ehf., sem áður var þekkt sem FL Group. S121 jók nýverið við hlut sinn í Stoðum, en félagið keypti 4,6 pró­senta hlut af öðrum hlut­höfum fyr­ir­tæk­is­ins seint í maí síð­ast­liðnum. Líkt og Kjarninn greindi frá nýverið keyptu Stoðir 0,6% hlut í Arion banka og eru þar með orðnir stærstu íslensku einka­fjár­fest­arnir í bank­anum. Stoðir skráðu sig fyrir átta sinnum stærri hlut í útboði bank­ans, en fengu ekki að kaupa hann allan.

Hjónin Svan­hildur Nanna og Guð­mundur Örn eiga svo sam­an­lagt um 7 pró­senta hlut í VÍS í gegnum eign­ar­halds­fé­lögin sín, Heddu ehf. og K2B ehf, og eru því með stærstu ein­stak­lings­fjár­festum félags­ins. Þar að auki eiga þau 7,4% beinan eign­ar­hlut í Kviku og 6,7% hlut í Korta­þjón­ust­unni.

Hlutir í Kviku í boði VÍS

Á hlut­hafa­fundi VÍS þann 27. júní síð­ast­lið­inn var sam­þykkt að 1,8 millj­arðar króna verði greiddar til hlut­hafa í formi hluta­bréfa í Kviku banka. Þar sem eign­ar­hlut­deild VÍS í Kviku var 23,57% og metin á uþb. 2,6 millj­arða króna sam­kvæmt síð­asta árs­reikn­ingi félags­ins má gróf­lega áætla að hlut­deildin sem þeir gefi eftir verði um 16% í Kviku.

Þar sem Andri, Svan­hildur og Guð­mundur eru öll hlut­hafar í VÍS er því víst að með hluta­fjár­lækk­un­inni muni þau einnig fá hærri hlut­deild í Kviku. Samkvæmt for­send­unum hér að ofan fengju Svan­hildur og Guð­mundur uþb 1,1% eign­ar­hlut í Kviku til við­bótar við 7,4% hlut sinn og ættu því u.þ.b. 8,5% eign­ar­hlut sam­an­lagt í því fyr­ir­tæki. Einnig, þar sem Kvika á 41% í Korta­þjón­ust­unni myndu eigna­hlutur hjón­anna í fyr­ir­tæk­inu aukast um 2,9% og því sam­an­lagt ná allt að 9,6 pró­sentum.

Við hluta­fjár­lækkun VÍS myndi eigna­hlutur Óska­beins einnig aukast lít­il­lega fyr­ir­tækj­unum tveimur, þ.e. 0,3% í Kviku og 0,14% í Korta­þjón­ust­unni. Þannig gæti óbeinn hlutur Óska­beins í Korta­þjón­ust­unni náð yfir tíu pró­sentum, séu útreikn­ingar réttir.

Fylgist með virkum eignarhluti

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans greindi Fjár­mála­eft­ir­litið frá því að fylgst væri með hvort mynd­ast hafi virkur eign­ar­hlutur í fjár­mála­fyr­ir­tækjum, en með því sé átt við beina eða óbeina hlut­deild í félagi sem nemur 10% eða meira af hlutafé. Þó geti eign­ar­hlutur einnig verið tal­inn virkur ef jafna megi áhrifum eig­anda við slíkan eign­ar­hlut.

Enn fremur gerir Fjár­mála­eft­ir­litið ekki athuga­semd við virkan eign­ar­hlut hafi hann gott orð­spor, en við mat á því styðst FME eftir ákvæði laga um vátrygg­inga­starfs­semi og við­miðum evr­ópskra eft­ir­lits­stofn­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rannsókn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár