Mynd: EPA

Skeljungsfléttan sem gerði fimm einstaklinga ofurríka

Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara réðst í umfangs­miklar aðgerðir í síð­ustu viku vegna Skelj­ungs­máls­ins svo­kall­aða.

Fimmtu­dag­inn 31. maí réðst emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara í umfangs­miklar aðgerðir vegna máls sem hafði verið til skoð­unar þar frá miðju árið 2016. Málið snérist um meint umboð­svik, meint skila­svik, mögu­leg mútu­brot og mögu­legt brot á lögum um pen­inga­þvætti þegar olíu­fé­lagið Skelj­ungur og tengd félög voru keypt og seld á árunum 2008 til 2013. Við brot­unum getur legið allt að sex ára fang­els­is­vist.

Fimm ein­stak­lingar eru með stöðu sak­born­ings við rann­sókn máls­ins. Tvö þeirra, hjónin Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir og Guð­mundur Þórð­ar­son, voru hand­tek­inn á fimmtu­dag. Hin þrjú; Einar Örn Ólafsson, Halla Sigrún Hjart­ar­dóttir og Kári Guð­jóns­son, sem unnu saman í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Glitnis fyrir um ára­tug, voru boðuð til skýrslu­töku sama dag. Fólkið er grunað um að hafa mis­notað aðstöðu sína til að koma eignum út úr banka á und­ir­verði, að hafa nýtt sam­eig­in­legar eignir Skelj­ungs og bank­ans til að greiða fyrir kaup í félag­inu, að hafa vilj­andi rýrt eignir Íslands­banka og að hafa gert með sér sam­komu­lag þar sem Svan­hildur Nanna og Guð­mundur afhentu hinum þremur sem seldu þeim Skeljung yfir 800 millj­ónir króna hverju fyrir sig fyrir þeirra aðkomu að mál­inu.

Á sama tíma og hand­tök­urnar áttu sér stað fóru fram hús­leitir víða um höf­uð­borg­ar­svæðið í tengslum við rann­sókn máls­ins. Engar eignir voru þó kyrr­settar á þessu stigi máls­ins, en fólkið hefur allt efn­ast mjög hratt á síð­ustu árum. Og öll þau umsvif hófust með Skelj­ungs­við­skipt­unum sem nú þykir rök­studdur grunur um að hafi ekki stað­ist lög.

Skref 1: Að eignast Skeljung á undirverði

Skömmu fyrir hrun sat Glitnir uppi með olíu­fé­lagið Skeljung. Það hafði gengið kaupum og sölum milli ein­stak­linga sem voru ráð­andi í eig­enda­hópi bank­ans árin áður. Í des­em­ber 2007 sölu­tryggði Glitnir félagið fyrir 8,7 millj­arða króna, og end­aði með að þurfa að kaupa það á því verði. Selj­and­inn var dótt­ur­fé­lag Fons, fjár­fest­inga­fé­lags Pálma Har­alds­sonar, eins helsta við­skipta­fé­laga Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, sem þá hafði tögl og hagldir í Glitni. Skuldir félags­ins á þessum tíma voru tíu millj­arðar króna og að mestu í erlendum myntum.

Í ágúst 2008 keypti félagið BG Partners 51 pró­senta hlut í Skelj­ungi af Glitni. Eig­endur þess voru hjónin Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir og Guð­mundur Þórð­ar­son og við­skipta­fé­lagi þeirra, Birgir Þór Bielt­vedt. Birgir seldi sinn hlut árið 2011.

Félagið greiddi um 1,5 millj­arða króna í eigin fé fyrir ráð­andi hlut í Skelj­ungi, sem aug­ljós­lega var langt undir því sem Glitnir sjálfur greiddi fyrir félagið nokkrum mán­uðum áður. Loka­verðið var reyndar lík­ast til mun lægra, þar sem BG Partners greiddi fyrir með fast­eignum í Danmörku sem hríð­féllu síðan í verði. Hlut­ur­inn fór þaðan yfir í félag sem hét Skel Invest­ments ásamt skuldum við Íslands­banka vegna kaupanna, sem voru upp á 1,4 millj­arð króna.

Kaupin vöktu strax athygli og tor­tryggni. Það var fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Glitnis sem hafði séð um söl­una á Skelj­ungi. Þau sem sáu um hana þar voru þrír starfs­menn ráð­gjaf­ar­innar; Einar Örn Ólafsson, Halla Sigrún Hjart­ar­dóttir og Kári Þór Guð­jóns­son.

Það var ekki ein­ungis lágt kaup­verð og vafa­samt eigna­safn sem notað var til að greiða fyrir sem hringdi við­vör­un­ar­bjöllum. Það að naumasti meiri­hluti í félag­inu hafi verið seldur með þessum hætti þótti líka ein­kenni­legt, enda ljóst að Glitnir myndi lenda í vand­ræðum með að selja minni­hluta í félagi, sem fylgdu engin áhrif, á sóma­sam­legu verði.

Svo kom hrun.

Skref 2: Að nota eignir Skeljungs til að borga fyrir restina

Eft­ir­stand­andi eign Glitnis í Skelj­ungi flutt­ist yfir í Íslands­banka eftir að hann var stofn­aður í kjöl­far banka­hruns­ins. Einar var gerður að for­stöðu­manni fyr­ir­tækja­ráð­gjafar og Kári og Halla Sigrún störf­uðu þar áfram.

Í lok maí 2009 var Einar, mað­ur­inn sem sá um söl­una á meiri­hluta í Skelj­ungi, ráð­inn for­stjóri félags­ins af fólk­inu sem hann hafði selt hlut­inn. Tveir full­trúar Íslands­banka í stjórn Skelj­ungs greiddu ekki atkvæði með ráðn­ing­unni og innan Íslands­banka ríkti bæði furða og reiði vegna þessa.

Bankinn lét í kjöl­farið óháðan aðila fara yfir söl­una á ráð­andi hlut hans í Skelj­ungi. Það þótti eðli­lega mjög tor­tryggi­legt að Einar, sem hafði selt Svan­hildi Nönnu og Guðmundi ráð­andi hlut í Skelj­ungi, væri nú far­inn að vinna fyrir þau.

Eitt af því sem hinn óháði aðili var lát­inn rann­saka var hvort eðli­legt hefði verið að taka við greiðslu fyrir Skelj­ung í formi þeirra fast­eigna sem not­aðar voru til að greiða fyrir hlut­inn.

Á þessum tíma var Íslands­banki ekki sjálfur kom­inn með efna­hags­reikn­ing og mjög erfitt að átta sig á virði eigna svo skömmu eftir hrunið. Vilji var á þó á meðal stjórn­enda Íslands­banka að rifta kaup­unum ef nægt til­efni yrði til.

Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar var sú að það væri mjög erfitt.

Íslands­banki var í vanda með eft­ir­standi hlut sinn í Skelj­ungi. Það var ekki mik­ill mark­aður fyrir kaup á minni­hluta í félagi, þar sem nýir eig­endur myndu ekki geta haft nein áhrif.

Hlut­ur­inn var settur í sölu­ferli í nóv­em­ber 2009 og snemma á árinu 2010 var til­boði frá félagi Svan­hildar Nönnu, Guð­mundar og Birgis tek­ið. Þau greiddu mun lægra verð fyrir en þegar þau keyptu upp­runa­lega hlut­inn. Og gögn sem Íslands­banki er með undir höndum gefa til kynna að hjónin hafi notað fjár­muni S-fast­eigna, dótt­ur­fé­lags Skelj­ungs, til að greiða fyrir bróð­ur­part hlut­ar­ins. Peningar félags í næstum helm­ings eigu Íslands­banka voru sam­kvæmt þessu not­aðir til að kaupa hlut bank­ans.

Skref 3: Þynna út lánadrottinn

Þar með var þó aðkoma Íslands­banka að Skelj­ungi ekki lokið. Eign­ar­halds­fé­lag þeirra hjóna sem keypt hafði meiri­hluta í félag­inu sum­arið 2008, Skel Invest­ments, skuld­aði honum enn 2,2 millj­arða króna í lok árs 2011. Með veði í öllum eignum félags­ins.

Skeljungur var skráður á markað fyrir nokkrum árum.
Skelj­ungur var skráður á markað fyrir nokkrum árum.

Samkvæmt við­mæl­endum Kjarnans var það almenn skoðun innan bank­ans að á árunum eftir hrunið hafi nýir eig­endur Skelj­ungs kerf­is­bundið dregið úr raun­veru­legum verð­mætum félags­ins til að hámarka skulda­af­skriftir og letja kröfu­hafa til að ganga að veðum sínum. Á kostnað Íslands­banka.

Næstu árin eftir að hjónin náðu að eign­ast Skeljung að nán­ast öllu leyti voru góð. Félagið hagn­að­ist um tæpan 1,5 millj­arð króna á árunum 2010 og 2011, fór í gegnum mikla fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu og í febr­úar 2012 end­ur­fjár­magn­aði Arion banki allar skuldir móð­ur­fé­lags Skelj­ungs.

Vorið 2013 var greint frá því að Svan­hildur Nanna og Guð­mundur vildu selja Skeljung. Áður en sú sala gekk í gegn hafði Íslands­banki gengið að veðum sínum í Skel Invest­ment og tekið yfir félagið. Hlutur þess í Skelj­ungi hafði þá verið þynntur niður í 34 pró­sent. Íslands­banki vill í dag meina að hjónin hafi með mark­vissum og ólög­mætum hætti þynnt út hlut­inn og ætlar að tap hans á þessum gjörn­ingi sé að minnsta kosti 900 millj­ónir króna.

Samhliða var annað félag sem Svan­hildur Nanna og Guð­mundur höfðu keypt út úr þrota­búi Fons sum­arið 2009 selt. Það félag hét Magn P/F og var fær­eyskt olíu­fé­lag og mun koma mikið við sögu síðar í þess­ari umfjöllun.

Í lok árs 2013 var greint frá því að fram­taks­sjóð­ur­inn SÍA II, sem var að mestu í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, hefði keypt Skeljung og P/F Magn á um átta millj­arða króna.

Skref 4: Gera starfsmenn fyrirtækjaþjónustu ríka

Íslands­banki var aðili að þeirri sölu þótt að hlut­ur­inn í sölu­and­virð­inu sem hann fékk í sinn hlut hafi ekki dugað til að gera upp skuldir Skel Invest­ment. Það félag var sett í þrot snemma árs 2014 og því skip­aður skipta­stjóri. Sá gjörn­ingur reynd­ist örlaga­valdur í þeirri rann­sókn sem nú leiddi til aðgerða af hendi hér­aðs­sak­sókn­ara í síð­ustu viku.

Þegar Skelj­ungur var settur í sölu­ferli á árinu 2013 var opnað gagna­her­bergi þar sem væntir fjár­festar gætu fengið ýmsar trún­að­ar­upp­lýs­ingar um félagið. Ýmsir þeirra sem nýttu sér það aðgengi tóku eftir að í gagna­her­berg­inu var að finna upp­lýs­ingar um eign­ar­haldið á Skelj­ungi sem Íslands­banki ætti að hafa áhuga á að skoða, og komu þeim upp­lýs­ingum til hans.

Þær upp­lýs­ingar voru eft­ir­far­andi: Vorið 2009 keyptu Svan­hildur Nanna og Guð­mundur, í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Heddu, fær­eyska olíu­fé­lagið P/F Magn af þrota­búi Fons, á þriðja hund­rað milljón króna.

Í gagna­her­berg­inu voru skjöl sem sýndu að árið 2011 hafi Halla Sig­rún Hjart­ar­dótt­ir, Einar Örn Ólafs­son og Kári Þór Guð­jóns­son, sem öll unnu í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Glitn­is/Ís­lands­banka þegar Guð­mundur og Svan­hildur Nanna keyptu Skelj­ung, eign­ast 66 pró­sent hlut í Heddu. Hvert og eitt þeirra átti eftir þetta 22 pró­sent hlut í Heddu. Hvert og eitt þeirra greiddi 24 millj­ónir fyrir hlut sinn í Heddu.

Í mars 2012, mán­uði eftir að Skelj­ungur var end­ur­fjár­magn­að­ur af Arion banka, var Skelj­ungur lát­inn kaupa 34 pró­sent hlut í P/F Magn af Heddu, félagi þeirra Svan­hildar Nönnu og Guð­mund­ar.

Í aðdrag­anda kaupanna var hlutafé Skelj­ungs aukið um 447 millj­ónir króna á geng­inu þrjár krónur á hlut. Sam­kvæmt því var kaup­verðið á hlutnum í fær­eyska félag­inu í kringum 1,3 millj­arðar króna. Kaup­verðið var greitt með nýju hlutafé í Skelj­ungi, og eftir við­skiptin átti Hedda 25 pró­sent í Skelj­ungi auk 66 pró­sent hlutar í P/F Magn.

Fjórð­ungs­hlutur Heddu í Skelj­ungi var áfram verið einka­eign Guð­mundar og Svan­hildar Nönnu. P/F Magn áttu Skelj­ungs­hjónin siðan saman með þre­menn­ing­unum Höllu Sig­rúnu, Ein­ari og Kára.

Þegar Skelj­ungur og P/F Magn voru seld í lok árs 2013 var verð­mið­inn á P/F Magn 3,95 millj­arðar króna. Halla Sigrún, Einar og Kári fengu sam­kvæmt því um 2,6 millj­arða króna í sinn hlut, eða um 870 millj­ónir hvert. Þau voru skyndi­lega orðin sterk­efnað fólk. Ávinn­ingur hvers og eins þeirra á einu og hálfu ári var rúm­lega 850 millj­ónir króna.

Innan Íslands­banka var grunur um að samið hefði verið við þre­menn­ing­anna um að þau myndu eign­ast í P/F Magni með sam­komu­lagi sem hafi verið gert 2008 eða 2009.

Eftir að skipta­stjóri var skip­aður yfir Skel Invest­ments fór hann, með vit­und og vilja stærsta kröfu­hafans, Íslands­banka, í ítar­lega rann­sókn á félag­inu og við­skiptum þess. Sú rann­sókn leiddi af sér að í júní 2016 var kæra unnin upp úr nið­ur­stöð­unum og hún send til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara sem hefur haft málið til rann­sóknar síðan. Aðgerð­irnar á fimmtu­dag eru afleið­ing af þeirri vinnu.

Tímalína atburða í Skeljungsmálinu:

Febrúar 2004:

Félag Pálma Har­alds­sonar og Jóhann­esar Krist­ins­sonar kaupir Skeljung af Kaup­þingi.

Mars 2005:

Skelj­ungur seldur til Haga, þá í eigu Baugs­fjöl­skyld­unnar.

Mars 2006:

Skelj­ungur seldur til félags Pálma og Jóhann­esar að nýju.

Desember 2007:

Glitnir sölu­tryggir allt hlutafé í eig­anda Skelj­ungs upp á 8,7 millj­arða króna og tekst ekki að selja félagið.

Ágúst 2008:

BG Partners, félag Svan­hildar Nönnu Vig­fús­dóttur, Guð­mundar Þórð­ar­sonar og Birgis Bielt­vedt kaupir 51 pró­sent hlut í Skelj­ungi af Glitni. Fær lán fyrir hluta kaupa frá bank­anum.Hlut­ur­inn síðar færður í Skel Invest­ments.

Maí 2009:

Einar Örn Ólafsson, sem hafði séð um söl­una á meiri­hluta í Skelj­ungi sem starfs­maður fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Glitnis, ráð­inn for­stjóri Skelj­ungs af nýjum aðal­eig­endum félags­ins.

Vorið 2009:

Íslands­banki, sem stofn­aður var á grunni Glitnis og átti 49 pró­sent í Skelj­ungi, fær óháðan aðila til að rann­saka söl­una á 51 pró­sent hlutnum sum­arið 2008. Ekkert kemur út úr þeirri rann­sókn.

September 2009:

49 pró­sent hlutur Íslands­banka í Skelj­ungi settur í sölu­ferli.

Byrjun árs 2010:

Félag í eigu Svan­hildar Nönnu, Guð­mundar og Birgis kaupir.

2011:

Birgir selur sinn átta pró­sent hlut í Skelj­ungi til hjón­anna Svan­hildar Nönnu og Guð­mundar.

2010 og 2011:

Hagnaður Skelj­ungs er 1,5 millj­arðar króna.

Vorið 2013:

Greint frá því að Skelj­ungur sé til sölu.

Seint á árinu 2013:

Íslands­banki gengur að veði sínu og tekur yfir Skel Invest. Búið að þynna niður eign­ar­hlut félags­ins í Skelj­ungi um 900 millj­ónir króna.

Lok árs 2013:

Greint frá því að sjóður í stýr­ingu hjá Stefni, sem líf­eyr­is­sjóðir áttu að mestu, hefðu keypt Skeljung og P/F Magn fyrir sam­tals um átta millj­arða króna. Um fjórir millj­arðar voru greiddir fyrir hvort.

Í sölu­ferl­inu: Aðilar sem fengu aðgang að gagna­her­bergi Skelj­ungs reka augun í að Einar Örn Ólafsson, Halla Sigrún Hjart­ar­dóttir og Kári Þór Guð­jóns­son áttu sam­tals 66 pró­sent í Heddu, sem átti allt hlutafé P/F Magn og 25 pró­sent í Skelj­ungi. Öll þrjú höfðu unnið hjá Glitni við að selja Skeljung.

Byrjun árs 2014:

Íslands­banki setur Skel Invest­ments í þrot. Skipta­stjóri skip­aður sem fer í ítar­lega rann­sókn á félag­inu og við­skiptum þess.

Október 2014:

Íslenskir fjöl­miðlar opin­bera að þre­menn­ing­arnir hafi átt í Heddu og að þeir hafi efn­ast stór­kost­lega á söl­unni í lok árs 2013.

Júní 2016:

Kæra sem unnin er upp úr rann­sókn skipta­stjóra Skel Invest­ments send hér­aðs­sak­sókn­ara.

31. maí 2018:

Hér­aðs­sak­sókn­ari hand­tekur Svan­hildi Nönnu og Guðmund og boðar Einar Örn, Höllu Sigrúnu og Kára í skýrslu­töku vegna rann­sóknar á umboðs­svikum, skila­svikum, mögu­legum mútu­brotum, ákvæðum laga um pen­inga­þvætti og ýmsum öðrum ákvæðum hegn­ing­ar­laga. Auk þess fóru fram hús­leitir víða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Möguleg fang­els­is­vist við brot­unum er allt að sex ár. Öll fimm eru með stöðu sak­born­ings í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rannsókn

Mest lesið undanfarið ár