Kúrfan áfram á niðurleið en „sigurinn er hvergi nærri í höfn“

„Allar tölur benda til þess að við séum raun­veru­lega að sjá fækkun á til­fellum eins og staðan er núna,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mögulega er hægt að hefja aflétt­ingu aðgerða eftir 1-2 vikur.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

„Við getum sagt að sú þróun sem við höfum verið að sjá und­an­farna daga – að kúrfan er að fara niður á við – heldur áfram,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi dags­ins. Í gær greindust 33 með COVID-19 inn­an­lands. 61 pró­sent voru í sótt­kví við grein­ingu. „Allar tölur benda til þess að við séum raun­veru­lega að sjá fækkun á til­fellum eins og staðan er núna,“

Um 1.160 manns eru í ein­angrun í land­inu með COVID-19. Á Land­spít­ala liggur 21 vegna sjúk­dóms­ins, þar af eru þrír á gjör­gæslu og tveir í önd­un­ar­vél. Í þess­ari bylgju, sem hófst um miðjan sept­em­ber, hafa 73 þurft að leggj­ast inn á spít­ala.

[adspot]

Þórólfur benti á að und­an­farið hefðu óvenju margir greinst með sjúk­dóm­inn á landa­mær­unum. Flestir hinna smit­uðu eru að koma frá Póllandi. Þetta telur hann til marks um það að far­ald­ur­inn sé í upp­sveiflu þar í landi.

Ísland er eitt fjög­urra landa Evrópu þar sem dag­leg tíðni smita að með­al­tali síð­ustu viku fer lækk­andi. Annars staðar í álf­unni er far­ald­ur­inn enn í upp­sveiflu.

Nið­ur­sveiflan hér er að sögn Þórólfs bein afleið­ing af þeim aðgerðum sem gripið var til fyrir rúm­lega tveimur vikum. „Árang­ur­inn sýnir að með sam­stöðu og sam­vinnu er hægt að beygja far­ald­ur­inn niður“.

En Þórólfur sagði of snemmt að fagna. „Sigurinn er hvergi nærri í höfn og því þurfum við að halda áfram [sam­vinnu og sam­stöðu] svo að hægt verði að aflétta íþyngj­andi aðgerðum.“ Hann sagði að ef kúrfan héldi áfram að sveigj­ast niður yrði mögu­lega hægt að hefja aflétt­ingu aðgerða eftir 1-2 tvær vikur.

Hann minnti svo enn og aftur á að stríðið við veiruna væri lang­hlaup. Reynslan sýndi að það þyrfti lítið útaf að bregða svo bakslag verði. „Bar­átt­unni er hvergi nærri lokið. Ég vil hvetja alla til dáða á næstu mán­uðum.“

Á fund­inum ræddi Þórólfur um þá óánægju sem bloss­aði upp í sam­fé­lag­inu vegna þess sem fólk upp­lifði sem ósam­ræmi í reglu­gerðum ráð­herra og minn­is­blöðum hans. Hann sagði að allir þyrftu að læra af þessu, bæði hann sjálfur og ráðu­neytið, og að héðan í frá þyrftu aðilar að vera sam­hent­ari í fram­setn­ingu upp­lýs­inga. Að hans mati sé ekk­ert óeðli­legt við það að ráðu­neytið fari ekki í einu og öllu eftir hans ráð­legg­ingum þar sem stjórn­völd þurfi að taka til­lit til fleiri þátta.

Farsóttarþreytan

Alma Möller land­læknir sagði á fund­inum að meðal þeirra þátta sem hafa áhrif á hversu fólk er til­búið til að taka þátt í aðgerðum vegna far­sótt­ar­innar, sé gagn­sæi í ákvarð­ana­töku og sam­hljómur í skila­boðum og ákvörð­unum allra aðila. Svo að hin svo­kall­aða far­sótt­ar­þreyta geri ekki vart við sig sé mik­il­vægt að miðla upp­lýs­ingum með skýrum og ein­földum hætti. Sagði hún að í til­mælum Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar væri lögð áhersla á sam­hæf­ingu í fram­setn­ingu aðila sem koma að málum, heil­brigð­is­yf­ir­valda jafnt sem stjórn­mála­manna. Bætti hún við að allir ættu rétt á sinni skoðun en minnti á að orð ráða­manna hefðu áhrif. „Við getum gert betur þegar kemur að sumum þess­ara þátta,“ sagði Alma.

Samtal þurfi að vera á milli aðila og upp­lýs­inga­miðlun þurfi að vera ein­fald­ari og skýr­ari. Úthald og seigla væru mik­il­væg um þessar mundir. Rann­sóknir sýndu að far­sótt­ar­þreytan virt­ist minni hér á landi en víð­ast ann­ars staðar í Evrópu.

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­vörnum, sagði eðli­legt að verða reiður og pirr­aður í því ástandi sem nú ríki og í ofaná­lag að upp­lifa mis­ræmi í aðgerðum. Mik­il­vægt væri að geta litið til baka síðar og sagt að við höfum þó reynt okkar besta. „Það reynir mikið á þrekið og þraut­seigj­una núna,“ sagði Víðir og bætti svo við: „Sam­staðan er áfram besta sótt­vörnin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár