Kínverjar aldrei aftur niðurlægðir

Kínverjar munu aldrei aftur sætta sig við að vera niður­lægðir af útlendingum að sögn þarlendra ráðamanna. Stjórnmála­fræðingar segja að kínverski kommúnista­flokkurinn, sem nýlega fagnaði 100 ára afmæli sínu, byggi tilkall sitt til valda meðal annars á þjóðernis­hyggju og stolti auk mikils hagvaxtar.

Kína fagnar
Kína fagnar Dansarar túlka 100 ára afmæli Kín­verska komm­ún­ista­flokks­ins í Hreiðinu, leik­vangi í Beijing, 28. júní síð­ast­lið­inn. Á þessum 100 árum hefur Kína þró­ast úr stríðs­hrjáðu landi yfir í vax­andi heims­veldi sem nú vill hnykla vöðvana. Mynd: NOEL CELIS / AFP

Öld niður­lægingarinnar er hugtak sem er nauðsynlegt að skilja til að átta sig á þeirri stöðu sem kínverski kommúnista­flokkurinn hefur í hugum almennings. Um er að ræða rúmlega hundrað ára tímabil frá miðri 19. öld þegar vestur­veldin og Japanir hersátu og tvístruðu landi Kínverja sem hafði verið helsta menningar­þjóð og stórveldi Austur-Asíu í þúsundir ára. 

Þessu tímabili niður­lægingar kínversku þjóðarinnar lauk formlega árið 1949 þegar landið var á ný sameinað en í þetta sinn undir stjórn Kommúnista­flokksins. Indverski stjórnmála­fræðingurinn Pratap Bhanu Mehta, sem hefur sérhæft sig í saman­burði á risunum tveimur í Asíu, segir sláandi hversu mikil áhersla sé lögð á þessa niður­lægingu á öllum stigum kínversks samfélags í dag. 

„Hún er algjör þunga­miðja í allri sögu­skoðun Kínverja. Mennta­kerfið er byggt í kringum hana,“ segir Mehta í nýlegri grein í blaðinu Indian Express. „Meira að segja ef við lítum á minnis­merki má sjá að þau eru öll viljandi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár