Athugasemd frá ritstjórn Kjarnans

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur það geta varðað við lög að birta upp­lýs­ingar úr sam­runa­skrá 365 og Vodafone, líkt og Kjarninn gerði í dag.

Kjarninn hefur undir höndum fyrstu útgáf­una af sam­runa­skránni, þar sem trún­að­ar­upp­lýs­ingar úr skránni voru aðgengi­legar, þar á meðal upp­lýs­ingar um hversu mörg stöðu­gildi myndu hverfa við sam­run­ann. Þeirri skrá var skipt út með nýrri útgáfu þar sem ekki er hægt að nálg­ast þessar upp­lýs­ingar.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu vegna þessa fyrir skömmu, þar sem kemur fram að 365 og Vodafone höfðu ekki fellt út trún­að­ar­upp­lýs­ing­arnar með full­nægj­andi hætti, því hægt var að finna þessar upp­lýs­ingar í skjal­inu. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi þegar gripið til aðgerða.

„Þeim ein­dregnu til­mælum er beint til þeirra sem hafa gripið til ráð­staf­ana til þess að nálg­ast hinar útfelldu upp­lýs­ingar að eyða við­kom­andi upp­lýs­ingum og miðla þeim ekki. Minnst er á að það getur varðað við lög að miðla og dreifa upp­lýs­ingum sem leynt eiga að fara.“

Vegna Fréttatilkynningar frá Samkeppniseftirlitinu og athugasemda Fjarskipta vegna frétta Kjarnans um trúnaðarupplýsingar úr samrunaskrá Fjarskipta og 365 vill Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, koma eftirfarandi á framfæri:

Starfs­menn Kjarnans settu ekki skjal á vef Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sem inni­hélt trún­að­ar­upp­lýs­ingar, heldur eft­ir­litið sjálft. Á því getur Kjarninn ekki borið ábyrgð. Auk þess getur blaða­maður ekki brotið lög um miðlun trún­að­ar­upp­lýs­inga heldur ein­ungis sá sem lætur honum þær upp­lýs­ingar í té.

Í lögum um fjöl­miðla er með skýrum hætti tekið fram, í 25. grein sem fjallar um vernd heim­ild­ar­manna, að „ starfs­mönnum fjöl­miðla­veitu sem hlotið hafa leyfi eða skrán­ingu hjá fjöl­miðla­nefnd er óheim­ilt að upp­lýsa hver sé heim­ild­ar­maður að grein, riti, frá­sögn, til­kynn­ingu eða öðru efni, hvort sem það hefur birst eða ekki, hafi heim­ild­ar­maður eða höf­undur óskað nafn­leyndar. Starfs­mönnum fjöl­miðla­veitu er jafn­framt óheim­ilt að láta af hendi gögn sem hafa að geyma upp­lýs­ingar um heim­ild­ar­mann eða höf­und í slíkum til­vikum.“ Þessari vernd er ein­ungis aflétt ef mál­efni varðar „öryggi, rétt­indi eða heill rík­is­ins eða skipta mjög miklu fyrir við­skipti eða fjár­hag þjóð­ar­innar.“

Ljóst er að frétt um hversu mörg stöðu­gildi Fjar­skipti ætlar að fækka um eftir sam­runa sinn við 365 miðla, og hversu mikla pen­inga sú fækkun sparar á ári, er ekki þjóðar­ör­ygg­is­mál. Því er áminn­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í tengslum við þessa frétt um að það geti varðað við lög að miðla og dreifa upp­lýs­ingum sem leynt eigi að fara alfarið hafnað. Og fullt til­efni er að gera athuga­semd við að eft­ir­lits­stofnun setji fram svo lítt dul­búna hótun gagn­vart fjöl­miðlum vegna þess að sam­runa­að­ilar gerðu mis­tök við gerð skjals og Sam­keppn­is­eft­ir­litið birti skjalið með þeim mis­tökum. Hér virð­ist sem lít­ill vilji sé til staðar til að axla ábyrgð á eigin mis­tökum, og þess í stað hengja sök í mál­inu á fjöl­miðil. [links]

Enn fremur er rétt að gera alvar­lega athuga­semd við þá kröfu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um að fjöl­mið­ill eigi að eyða við­kom­andi upp­lýs­ingum og miðla þeim ekki. Kjarninn segir fréttir. Trúnaður hans er við almenn­ing, ekki eft­ir­lits­stofnun eða fyr­ir­tækin sem eru að sam­ein­ast. Það er frétt­næmt að það eigi að fækka um á fimmta tug stöðu­gilda hjá fjöl­miðla­fyr­ir­tæki, algjör­lega óháð því hvort að Fjar­skipti, 365 og Sam­keppn­is­eft­ir­litið ætl­uðu þeim upp­lýs­ingum að verða opin­berar eða ekki. Fjöl­miðlar eru mik­il­vægar stoðir í lýð­ræð­is­ríkjum og því færri sem á þeim starfa, því veik­ari verður máttur þeirra til að sinna hlut­verki sínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár