Dánartíðni vegna krabbameina á Íslandi lækkar

Efnahags- og fram­fara­stofn­unin í París (OECD) hefur gefið út ritið „Health at Glance 2017, OECD Indicators“. Í rit­inu má finna ýmiss konar upp­lýs­ingar um heil­brigð­is­mál í aðild­ar­ríkjum stofn­un­ar­innar sem nú eru 35 tals­ins auk fleiri landa.

Frá 1970 til 2015 jókst meðalævilengd um rúm tíu ár að meðaltali í aðildarlöndum OECD og er nú 80,6 ár. Hér á landi jókst hún heldur minna eða um 8,5 ár.
Frá 1970 til 2015 jókst með­al­ævi­lengd um rúm tíu ár að með­al­tali í aðild­ar­löndum OECD og er nú 80,6 ár. Hér á landi jókst hún heldur minna eða um 8,5 ár. Mynd: Rakel Tómasdóttir

Rúmur þriðj­ungur dauðs­falla eða 36 pró­sent í ríkjum OECD er af völdum hjarta- og æða­sjúk­dóma og um fjórð­ungur af völdum krabba­meina. Dán­ar­tíðni vegna sjúk­dóma í heila­æðum lækk­aði um 65 pró­sent í ríkjum OECD tíma­bilið 1990 til 2015 en 52 pró­sent á Íslandi.

Dán­ar­tíðni vegna krabba­meina lækk­aði á þessu tíma­bili um 22 pró­sent hér á landi en 18 pró­sent að með­al­tali í ríkjum OECD.

Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar. Efnahags- og fram­fara­stofn­unin í París (OECD) hefur gefið út ritið „Health at Glance 2017, OECD Indicators“. Í rit­inu má finna marg­vís­legar upp­lýs­ingar um heil­brigð­is­mál í aðild­ar­ríkjum stofn­un­ar­innar sem nú eru 35 tals­ins auk fleiri landa. Hag­stofan tók saman helstu nið­ur­stöður rits­ins.

Ritið skipt­ist í ell­efu kafla sem fjalla um heil­brigð­is­á­stand, áhrifa­þætti heil­brigðis aðra en lækn­is­fræði­lega, aðgengi, gæði, heil­brigðis­út­gjöld, mann­afla, starf­semi heil­brigð­is­þjón­ust­unnar, lyfja­mál og öldrun og lang­tíma umönnun. Sér­stakur kafli er um ástæður ávinn­ings síð­ustu ára­tuga í auknum lífslíkum. Í rit­inu er einnig svo­nefnt mæla­borð þar sem löndin eru borin saman við með­al­tal OECD út frá nokkrum þáttum. 


Meðalævilengd jókst um 8,5 ár hér á landi

Að mati OECD hafa heil­brigð­ari lífs­hættir, hærri tekjur og betri menntun, ásamt betri heil­brigð­is­þjón­ustu, stuðlað að auk­inni með­al­ævi­lengd á síð­ustu ára­tugum. Frá 1970 til 2015 jókst með­al­ævi­lengd um rúm tíu ár að með­al­tali í aðild­ar­löndum OECD og er nú 80,6 ár. Hér á landi jókst hún heldur minna eða um 8,5 ár.

Í frétt Hag­stof­unnar segir jafn­framt að lífslíkur íslenskra karla við fæð­ingu hafi verið 81,2 ár, hæstar OECD-ríkja en lífslíkur kvenna 83,8 ár eða í 15. sæti OECD ríkja árið 2015 og sé bilið milli kynj­anna einna minnst hér á landi. Í rit­inu er fjallað um sam­band mennt­unar og ævi­lengdar. Fram kemur að með­al­ævi­lengd þeirra sem eru með háskóla­menntun um þrí­tugt sé að jafn­aði sex árum lengri en þeirra sem minnsta menntun hafa.

Ungbarnadauði einna fátíðastur á Íslandi

Af OECD ríkj­unum var ung­barna­dauði einna fátíð­astur á Íslandi eða sem svarar tveimur látnum á fyrsta ári af 1000 lif­andi fæddum. Þetta er með­al­tal á árunum 2013 til 2015. Með­al­talið fyrir OECD lönd var 3,9. Börn með lága fæð­ing­ar­þyngd voru hlut­falls­lega fæst hér á landi.

Þrír af hverjum fjórum full­orð­inna eða 76 pró­sent á Íslandi töldu sig við góða eða mjög góða heilsu árið 2015 sam­an­borið við 68,2 pró­sent full­orð­inna í OECD löndum að með­al­tali. Var þetta hlut­fall almennt lægra meðal tekju­lágra en tekju­hærri.

Dregur úr reykingum og áfengisneyslu hjá ungmennum

Meðal lífs­stíls­þátta sem áhrif hafa á heilsu­far eru reyk­ingar, áfeng­is­neysla, offita og hreyf­ing. Dregið hefur úr reyk­ingum í flestum löndum frá árinu 2000 og er Ísland í hópi landa þar sem sam­drátt­ur­inn var hvað mestur. Árið 2015 reyktu um 18 pró­sent full­orð­inna, 14 pró­sent kvenna og 23 pró­sent karla, dag­lega í ríkjum OECD að með­al­tali en 10 pró­sent Íslend­inga árið 2016. Aðeins í Mexíkó var þetta hlut­fall lægra.

Almennt reykja hlut­falls­lega fleiri karlar en konur en því var öfugt farið hér og í Danmörku en munur milli kynja var lít­ill. 

Á Íslandi reyktu 3 pró­sent 15 ára ung­menna að minnsta kosti einu sinni í viku ár árunum 2013 til 2014 en 12 pró­sent að með­al­tali í ríkjum OECD og var hlut­fallið lægst hér á landi. Hefur almennt dregið úr reyk­ingum og áfeng­is­neyslu meðal 15 ára ung­menna.

Skráð áfeng­is­neysla minnk­aði úr 9,5 lítrum af hreinum vín­anda á íbúa 15 ára og eldri árið 2000 í 9 lítra árið 2015 að með­al­tali í OECD-ríkjum. Ísland er meðal þrettán ríkja þar sem áfeng­is­neysla jókst á þessu tíma­bili, úr 6,2 lítrum í 7,5 lítra.

Ofþyngd fer vaxandi

Hlutfall full­orð­inna sem neyttu ávaxta dag­lega var 52 pró­sent hér á landi árið 2015 eða undir með­al­tali OECD-ríkja eða 57 pró­sent, en græn­metis­neysla lands­manna var jöfn OECD með­taltal­inu eða 60 pró­sent. Fleiri konur en karlar neyttu ávaxta og græn­metis dag­lega. Dagleg neysla bæði ávaxta og græn­metis meðal 15 ára ung­menna var hér hlut­falls­lega meiri en að með­al­tali í OECD-ríkjum 2013 til 14.

Rúmlega helm­ingur full­orð­inna telst of þungur í ríkjum OECD að með­al­tali þar á meðal á Íslandi. Árið 2015 var hlutur of þungra 19 pró­sent hér á landi 18,8 pró­sent kvenna og 19,2 pró­sent karla eða svipað og með­al­tal OECD-ríkja. Hæst var hlut­fallið í Banda­ríkj­unum eða 38 pró­sent en lægst í Japan og Kóreu eða 4 til 5 pró­sent.

Ofþyngd hefur farið mjög vax­andi, ekki bara hjá full­orðnum heldur einnig meðal ung­menna, segir í frétt­inni. Árin 2013 til 14 voru 18 pró­sent 15 ára ung­menna hér á landi of þung eða 20 pró­sent drengja og 16 pró­sent stúlkna og aðeins í þremur af 28 OECD löndum var hlut­fallið hærra, í Grikk­landi, Kanada og Banda­ríkj­unum á árunum 2009 til 2010. Lægst var hlut­fallið í Danmörku eða 9,5 pró­sent. Meðaltal OECD-ríkja var 15,6 pró­sent.

Heilbrigðisútgjöld jukust minna á Íslandi

Heil­brigðis­út­gjöld á mann juk­ust í flestum ríkjum OECD sam­kvæmt bráða­birgða­tölum fyrir árið 2016. Er það áfram­hald­andi vöxtur í kjöl­far stöðn­unar eða sam­dráttar í heil­brigðis­út­gjöldum á árunum 2009 til 2011. Árlegur með­al­vöxtur heil­brigðis­út­gjalda á mann á árunum 2009 til 2016 var 1,4 pró­sent að með­al­tali í ríkjum OECD en 1 pró­sent á Íslandi. Á árunum 2003 til 2009 var árlegur með­al­vöxtur heil­brigðis­út­gjalda á mann að með­al­tali 3,6 pró­sent í ríkjum OECD en 0,4 pró­sent á Íslandi.

Heild­ar­út­gjöld til heil­brigð­is­mála á Íslandi árið 2016 námu sam­kvæmt bráða­birgða­tölum 8,6 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu árs­ins. Voru heild­ar­út­gjöld til heil­brigð­is­mála að með­al­tali 9,0 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu árs­ins í ríkjum OECD.

37% lækna á Íslandi konur

Árið 2015 var fjöldi starf­andi lækna á þús­und íbúa 3,8 hér á landi en 3,4 að með­al­tali fyrir OECD-ríkin. Á hinum Norð­ur­lönd­unum var hlut­fallið lægst í Finn­landi eða 3,2 pró­sent og hæst í Noregi eða 4,4 pró­sent. Hlutfall kvenna af starf­andi læknum hefur hækkað en er mjög breyti­legt eftir löndum eða frá 20 pró­sent í Japan til 74 prós­net í Lett­landi.

Hér á landi er hlut­fall kvenna af starf­andi læknum rúm 37 pró­sent. 

Fjöldi hjúkr­un­ar­fræð­inga og sjúkra­liða var 15,5 á þús­und íbúa hér á landi árið 2015, en 9,0 að með­al­tali fyrir OECD lönd. Á hinum Norð­ur­lönd­unum var fjöldi þeirra á bil­inu 11 til 17 á þús­und íbúa.

Færri keisaraskurðir hér á landi en annars staðar

Fjöldi sjúkra­húsa­rýma á Íslandi var 3,1 á þús­und íbúa árið 2015 en 4,7 að með­al­tali fyrir OECD lönd. Fjöldi útskrifta af sjúkra­húsi var 114 á þús­und íbúa hér­lendis árið 2015 en 156 að með­al­tali í ríkjum OECD. Með­al­legu­tími á sjúkra­húsum var 6,3 dagar á Íslandi eða svip­aður og í Noregi eða 6,7 dagar og Svíþjóð eða 5,9 dagar en 7,8 dagar að með­al­tali í OECD.

Árið 2015 voru 16 keis­ara­skurðir fram­kvæmdir hér á landi á hund­rað lif­andi fædda og aðeins í Hollandi og Finn­landi var hlut­fallið örlítið lægra. Hæst var hlut­fallið í Tyrk­landi eða 53 en með­al­tal OECD-ríkja var 28.

Notkun þunglyndislyfja mikil á Íslandi

Hér á landi fjár­magn­aði hið opin­bera 38 pró­sent af lyfja­út­gjöldum í smá­sölu en heim­ilin 58 pró­sent árið 2015. Aðeins í Lett­landi og Póllandi var hlutur heim­il­anna hærri. Á hinum Norð­ur­lönd­unum var hlut­fallið 42 til 51 pró­sent. Í þeim 30 OECD-ríkjum sem upp­lýs­ingar náðu til var hlutur hins opin­bera og skyldu­trygg­ingar 57 pró­sent að með­al­tali en hlutur heim­il­anna 39 pró­sent.

Lyfja­notkun hefur farið ört vax­andi og er notk­unin breyti­leg milli landa. Árið 2015 var notkun syk­ur­sýkis­lyfja á Íslandi þriðja minnst miðað við önnur OECD-ríki en notkun þung­lynd­is­lyfja lang­mest hér á landi, 130 dag­skammtar á hverja þús­und íbúa á dag eða meira en tvö­falt meiri en að með­al­tali í OECD-ríkjum sem var 60 dag­skammtar. Notkun lyfja við háþrýst­ingi og blóð­fitu­lækk­andi lyfja var hér undir með­al­tali OECD.

Lífslíkur fólks með þeim bestu

Lífslíkur fólks við 65 ára aldur hafa auk­ist um 5,4 ár frá 1970 að með­al­tali í löndum OECD en 4,6 ár hér á landi. Lífslíkur án veru­legrar heilsu­fars­skerð­ingar við 65 ára aldur voru 9,4 ár að með­al­tali í OECD-ríkjum Evrópu árið 2015 en bestar voru þær í Svíþjóð, eða 16,3 ár og því næst á Íslandi og í Noregi, eða 15,3 ár.

Fjöldi hjúkr­un­ar­rýma á stofn­unum og sjúkra­húsum árið 2015 var 60,6 á þús­und íbúa 65 ára og eldri á Íslandi. Var hlut­fallið heldur hærra meðal ann­ars í Finn­landi eða 65,3 og Svíþjóð eða 66,4 en það var 49,7 að með­al­tali í ríkjum OECD. Hæst var hlut­fallið í Hollandi 87,4 en lægst í Tyrk­landi 8,0.

Rit OECD byggir á gagna­grunni stofn­un­ar­innar um heil­brigð­is­mál en einnig ýmsum öðrum gögnum. Samkvæmt Hag­stof­unni er mik­il­vægt að hafa í huga að sam­an­burður milli landa á þann hátt sem kemur fram í riti OECD er aðeins mögu­legur í þeim til­vikum þar sem upp­lýs­ingar eru aðgengi­legar. Að auki þurfi alltaf að hafa í huga að óvissa kann að ríkja um sam­an­burð­ar­hæfi gagna frá mis­mun­andi löndum, til dæmis vegna ólíkra skil­grein­inga eða aðferða við útreikn­ing.

Hægt er að nálg­ast upp­lýs­ingar um ritið á vef­síðu OECD.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár