Skattar gætu hækkað vegna öldrunar þjóðar

Breytt ald­urs­sam­setn­ing þjóð­ar­innar í fram­tíð­inni mun leiða til við­var­andi halla á opin­berum fjár­málum og hærra skulda­hlut­falli Íslands ef ekk­ert verður að gert, sam­kvæmt fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

Hærra hlut­fall aldr­aðra hér­lendis mun auka fjár­þörf hins opin­bera á næstu ára­tugum. Verði skattar og opin­ber þjón­usta í óbreyttri mynd má búast við við­var­andi 4 pró­senta halla á opin­berum fjár­málum og 87 pró­senta skulda­hlut­fall vegna öldr­unar þjóð­ar­innar árið 2050.

Þetta kemur fram í skýrslu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um lang­tíma­horfur í efna­hags­málum og opin­berum fjár­málum.

Fleiri eldri borgarar

Í skýrsl­unni er fjallað um hækk­andi með­al­aldur á heims­vísu, þar sem lífslíkur hafa auk­ist og frjó­semi hefur minnkað. Þetta leiði til hærra hlut­falls aldr­aðra sem standa utan vinnu­mark­að­ar­ins, en sam­kvæmt spá­tölum frá Efnahags- og fram­fara­stofn­un­inni gæti það hækkað úr 28 pró­sentum í 43 pró­sent á næstu þremur ára­tugum.

Með auknum fjölda eldri borg­ara er búist við að opin­ber útgjöld auk­ist, þar sem hlut­falls­lega fleiri muni þurfa á heil­brigð­is­þjón­ustu að halda og rík­is­sjóður muni þurfa að greiða meira í elli­líf­eyri. Þó sé mögu­legt að aðrir útgjalda­flokkar, til dæmis útgjöld til mennta­mála, muni minnka, en heilt yfir er búist við aukn­ingu í útgjöldum hins opin­bera.

Með auknum útgjöldum og óbreyttum tekjum býst því ráðu­neytið við því að við­var­andi halli verði á afkomu hins opin­bera næstu ára­tug­ina.

Meiri halli og hærri skuldir kalla á skattahækkun

Þessi halli mun svo auka skuldir hins opin­bera og mun því hlut­fall þeirra af lands­fram­leiðslu stöðugt vaxa. Innan þriggja ára­tuga er búist við því að hlut­fallið, sem er núna tæp­lega 50 pró­sent, verði komið upp í 87 pró­sent árið 2050. Verði fram­tíð­ar­hag­vöxtur minni en gert er ráð fyrir núna megi búast við að skulda­hlut­fallið gæti farið upp fyrir 100 pró­sent þessu tíma­bili, segja skýrslu­höf­undar.

Samkvæmt ráðu­neyt­inu þýðir þetta að minna svig­rúm verði hjá hinu opin­bera til að auka fjár­fest­ingar eða þjón­ustu í öðrum mála­flokkum í fram­tíð­inni, nema að skattar hækki.

Þó segir í skýrsl­unni að mikil óvissa sé um ald­urs­sam­setn­ingu þjóð­ar­innar á næstu ára­tugum. Lítið sé hægt að full­yrða um umfang búferla­flutn­inga til lands­ins, að hvaða marki inn­flytj­endur verði tengdir hag­sveifl­unni og hvernig atvinnu­þátt­taka þeirra muni þró­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár