Tilslökunum á samkomutakmörkunum frestað

„Á und­an­förnum dögum hefur orðið sú breyt­ing á far­alds­fræði COVID-19 hér á landi að inn­flutt smit hafa greinst hér í vax­andi mæli og dreif­ing hefur orðið inn­an­lands,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Bára Huld Beck

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið, að til­lögu sótt­varna­læknis, að fram­lengja núgild­andi aug­lýs­ingu um tak­mörkun á sam­komum til 18. ágúst. Fjölda­tak­mörk á sam­komum mið­ast því áfram við 500 manns. Opn­un­ar­tími spila­sala og veit­inga­staða með vín­veit­inga­leyfi verður einnig óbreyttur og heim­ilt að hafa opið til 23.00 á kvöldin.

Í ljósi þess að á und­an­förnum dögum hafa inn­flutt smit greinst hér í vax­andi mæli og dreif­ing á COVID-19 sjúk­dómnum hefur orðið inn­an­lands telur sótt­varna­læknir að fara þurfi með gát varð­andi til­slak­anir á fjölda­tak­mörkum og opn­un­ar­tíma skemmti- og vín­veit­inga­staða.

[adspot]

Þann 17. júlí lagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir til að fjölda­tak­mörk­unum vegna COVID-19 yrði breytt úr 500 í 1.000 ein­stak­linga þann 4. ágúst og að opn­un­ar­tími skemmti- og vín­veit­inga­staða yrði rýmk­aður til kl. 24:00. Samkvæmt aug­lýs­ingu ráðu­neyt­is­ins var ákveðið að þessar breyt­ingar myndu taka gildi eins og lagt var til.

[links]„Á und­an­förnum dögum hefur orðið sú breyt­ing á far­alds­fræði COVID-19 hér á landi að inn­flutt smit hafa greinst hér í vax­andi mæli og dreif­ing hefur orðið inn­an­lands,“ skrifar Þórólfur í minn­is­blaði sínu til heil­brigð­is­ráð­herra. „Enginn hefur hins vegar veikst alvar­lega og eng­inn hefur lagst inn á sjúkra­hús. Um 200 ein­stak­lingar hafa þurft að sæta sótt­kví vegna þess­ara smita.

Í ljósi þessa þá tel ég að fara þurfi með gát varð­andi ofan­greindar til­slak­anir á fjölda­tak­mörk­unum og opn­un­ar­tíma­tíma skemmti- og vín­veit­inga­staða svo útbreiðsla far­ald­urs­ins nái sér ekki frekar á strik.“

24 virk smit eru nú hér á landi. Um helm­ingur þeirra er inn­an­lands­smit.

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur sem fyrr segir fall­ist á til­lögu sótt­varna­læknis og verður fram­leng­ing á núver­andi aug­lýs­ingu birt á næstu dögum í Stjórn­ar­tíð­indum og mun hún gilda til 18. ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár