Skilgreiningu vantar á „nýjum hagkvæmum“ íbúðum

Frumvarp félags- og barna­mála­ráð­herra á að auð­velda fyrstu kaup­endum að koma þaki yfir höf­uðið. Aðeins er lánað fyrir nýjum íbúðum sem hafa verið sam­þykktar af Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun sem hag­kvæmar íbúðir.

Frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar um hlutdeildarlán var kynnt á fundi í húsakynnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar í gær.
Frumvarp Ásmundar Einars Daða­sonar um hlut­deild­ar­lán var kynnt á fundi í húsa­kynnum Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar í gær. Mynd: Bára Huld Beck

Ekki hefur enn verið útfært end­an­lega hvernig hag­kvæmar íbúðir verða skil­greindar af Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun en eitt af skil­yrðum fyrir hlut­deild­ar­láni er að keypt sé ný íbúð sem sam­þykkt hafi verið sem hag­kvæm íbúð. Þetta kemur fram í svari Rúnar Knúts­dóttur, lög­fræð­ings hjá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun, við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, hefur lagt fram frum­varp á Alþingi um breyt­ingu á lögum um hús­næð­is­mál. Í frum­varp­inu eru svokölluð hlut­deild­ar­lán kynnt til sög­unnar. Hlut­deild­ar­lánin voru kynnt í gær í húsa­kynnum Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar.

Frum­varpið veitir Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun heim­ild til að veita fyrstu kaup­endum sem hafa tekjur undir ákveðnum við­mið­un­ar­mörkum hlut­deild­ar­lán. Lánin geta numið allt að 20 pró­sentum af kaup­verði hús­næðis. Þau bera enga vexti og ekki er borgað af lán­inu fyrr en íbúð er seld. Hámarks­láns­tími hlut­deild­ar­lána er 25 ár og að þeim tíma liðnum skal end­ur­greiða rík­inu lánið hafi íbúðin ekki verið seld.

Einungis lánað fyrir kaupum á nýjum hagkvæmum íbúðum

Hlut­deild­ar­lánin eru ein­ungis veitt fyrir kaupum á ákveð­inni teg­und íbúða eins og fram kemur í laga­frum­varp­inu: „Aðeins er lánað fyrir nýjum íbúðum sem hafa verið sam­þykktar af Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun sem hag­kvæmar íbúðir á grund­velli samn­ings bygg­ing­ar­að­il­ans við stofn­un­ina. Með hag­kvæmum íbúðum sam­kvæmt ákvæði þessu er meðal ann­ars átt við íbúðir sem upp­fylla stærðar- og verð­mörk sam­kvæmt reglu­gerð sem ráð­herra setur og íbúðir sem taka mið af her­bergja­fjölda miðað við fjöl­skyldu­stærð.“

Líkt og áður segir á enn eftir að útfæra hvernig hag­kvæmar íbúðir verða skil­greindar nákvæm­lega. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans segir Rún það verða gert að höfðu sam­ráði við Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun, Samtök iðn­að­ar­ins og bygg­ing­ar­að­ila.

„Stefnt er að því að horfa frekar á fjöl­skyldu­stærðir og hag­kvæmni því fremur skil­greind út frá hámarks­verði m.v. her­bergja­fjölda heldur en fer­metra­stærð,“ segir í svari Rúnar. Þannig gef­ist hönn­uðum og bygg­ing­ar­að­ilum aukið svig­rúm til nýsköp­unar.

Gert er ráð fyrir að hagkvæmar íbúðir verði 340 til 710 á ári

Spurð um hver fjöldi og hlut­deild hag­kvæmra íbúða á mark­aðnum gæti orðið segir Rún það ráð­ast af því hvaða við­mið séu notuð. Hún bendir á grein­ar­gerð frum­varps­ins í því sam­hengi. Í grein­ar­gerð­inni kemur fram að áætl­aður fjöldi hag­kvæmra íbúða á næstu árum liggi á bil­inu 340 til 710 íbúðir á ári. Í þeim tölum er gert ráð fyrir að hlut­fall hag­kvæmra nýrra íbúða af heild­ar­fram­boði sé á bil­inu 18 til 26 pró­sent.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins kemur einnig fram að heild­ar­fram­boð nýrra íbúða árið 2018 hafi verið 1.520 íbúðir og af þeim megi flokka 18 pró­sent, alls 280 íbúðir, sem hag­kvæmar. Í þessum tölum eru nýjar íbúðir í póst­núm­er­inu 101 und­an­skildar því þær eru of dýrar til að flokk­ast sem hag­kvæmar íbúðir. Í áætl­un­inni er gert ráð fyrir að árlegt fram­boð nýrra íbúða muni aukast um 20 til 80 pró­sent miðað við árið 2018.

„Lík­leg­ast er þó að umfangið verði um það bil 3,7 millj­arðar kr. á ári, eða rétt rúmar 400 lán,“ segir enn fremur í grein­ar­gerð frum­varps­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár