Lágur smitfjöldi talinn mikilvægur fyrir heilsu og hagsmuni ferðaþjónustu

Ótti við að lenda á rauðum listum sótt­varna­yf­ir­valda í Evrópu og Banda­ríkj­unum var tek­inn inn í heild­ar­hags­muna­mat rík­is­stjórn­ar­innar varð­andi nýjar sótt­varna­ráð­staf­anir inn­an­lands. Á morgun verður mann­lífið heft á ný vegna veirunnar.

Ferðamenn við Skógafoss.
Ferða­menn við Skóga­foss. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Nýjar sótt­varna­ráð­staf­anir sem snerta dag­legt líf lands­manna taka gildi á mið­nætti og eiga að vera í gildi til 13. ágúst, sam­kvæmt reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra. Þrátt fyrir að for­sæt­is­ráð­herra hafi sagt við Frétta­blaðið fyrr í vik­unni að ekki væri „hægt að draga bara sömu aðgerðir upp úr poka“ eru þær aðgerðir sem verða í gildi frá og með morg­un­deg­inum kunn­ug­legar öllum lands­mönnum.

Fjölda­tak­mark­anir munu mið­ast við 200 manns í hverju hólfi, bæði úti og inni og eins metra nánd­ar­regla hefur verið tekin upp. Þá verður krám og veit­inga­stöðum meinað að selja áfengi eftir kl. 23 á kvöldin og þurfa að vera búin að vísa gestum sínum út og skella í lás fyrir mið­nætti. Grímu­skylda verður tekin upp að nýju í þeim aðstæðum inn­an­húss þar sem ekki er hægt að tryggja eins met­ers fjar­lægð á milli fólks. Einnig verður grímu­skylda í almenn­ings­sam­göngum.

Óvissa um vörn viðkvæmra gegn alvarlegum veikindum

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir í minn­is­blaði sínu til ráð­herra, þar sem aðgerð­irnar voru lagðar til, að erlendar upp­lýs­ingar sýni að þau bólu­efni sem notuð eru á Íslandi virð­ist vernda um 60 pró­sent full­bólu­settra gegn smiti af völdum delta-afbrigðis veirunnar og yfir 90 pró­sent vernd gegn alvar­legum veik­indum.

[adspot]

„Nýjar upp­lýs­ingar frá Ísrael benda hins vegar til að vernd bólu­efnis Pfizer geti jafn­vel verið enn minni en að framan greinir bæði gegn öllu smiti og alvar­legum veik­indum,“ segir jafn­framt í minn­is­blaði Þórólfs. Sótt­varna­lækn­ir­inn segir að afleið­ingar þess að smit ber­ist í við­kvæma hópa hér­lendis, bólu­setta og óbólu­setta, séu ófyr­ir­séðar og hætta sé á „alvar­legum afleið­ingum.“ Fjórir eru í dag inn­lagðir á sjúkra­hús með COVID-19.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði við Stöð 2 eftir rík­is­stjórn­ar­fund­inn á Egils­stöðum í gær að sterk rök hefðu þurft að liggja fyrir því að grípa til hertra aðgerða inn­an­lands og hverfa þannig frá þeirri aflétt­ing­ar­á­ætlun sem kynnt var á vor­mán­uðum og lauk fyrir mán­uði síðan með algjöru afnámi allra tak­mark­ana á dag­legt líf lands­manna, í ljósi góðs gangs bólu­setn­inga.

„Þau eru komin fram að hálfu sótt­varna­yf­ir­valda með vísan í vöxt smita og óvissu með það hversu greiða leið þau smit eiga inn í við­kvæma hópa. Við tökum mark á því núna,“ sagði Bjarni við Stöð 2. Hann sagð­ist horfa á aðgerð­irnar nú sem „var­úð­ar­ráð­stöfun“ og að við þyrftum að átta okkur á því að hversu alvar­legar fylgdu því að bólu­settir væru að smit­ast af delta-afbrigð­inu.

Hagsmunir af því að lenda ekki á rauðum listum

Í umræð­unni und­an­farna daga hefur all­víða verið kallað eftir því að stjórn­völd horfi til heild­ar­hags­muna við ákvarð­anir um nýjar sótt­varna­ráð­staf­anir inn­an­lands. Það er, ekki ein­ungis til mögu­legrar óvissu af heilsu­fars­legum afleið­ingum far­ald­urs heldur einnig til þeirra áhrifa sem tak­mark­anir inn­an­lands hafa á efna­hags­lífið.

Ljóst er að margir verða fyrir fjár­hags­legu tjóni nú þegar ákveðið hefur verið að banna fjöl­mennar sam­komur fólks og stytta opn­un­ar­tíma skemmti­staða.

Sú staða er þó uppi ferða­þjón­ustan á Íslandi, sem orðið hefur fyrir miklum skakka­föllum í far­aldr­inum, hefur ríka hags­muni af því að böndum verði komið á útbreiðslu smita inn­an­lands. Í Morg­un­blað­inu í dag er rætt við þrjá aðila í ferða­þjón­ustu sem segja allir í kór að það skipti miklu máli að Ísland lendi ekki á rauðum listum varð­andi stöðu far­ald­urs­ins inn­an­lands.

Alls 95 smit greindust í gær og 14 daga nýgengi smita inn­an­lands á hverja 100 þús­und íbúa er nú komið upp í 111. Ekki þarf marga daga með slíkum tölum til við­bótar til þess að Ísland lendi verði rautt á korti sótt­varna­yf­ir­valda í Evrópu og á lista stjórn­valda í Banda­ríkj­unum yfir ríki sem ekki ætti að ferð­ast til.

„...ef Ísland verður allt í einu rautt og talið vera háá­hættu­svæði þá myndi það hafa miklar afleið­ingar. Það stoppar frekar fólk að koma,“ segir Stein­grímur Birg­is­son for­stjóri Bíla­leigu Akur­eyrar og Hölds í sam­tali við blaðið. Davíð Torfi Ólafsson fram­kvæmda­stjóri Íslands­hót­ela tekur í svip­aðan streng og segir að það sé „lita­kóð­inn sem þetta allt snýst um í raun og veru,“ því ef við hættum að vera „græn“ á kort­inu megi fólk frá vissum löndum ekki ferð­ast hingað.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra nefndi í sam­tali við RÚV í gær að ein af ástæð­unum fyrir því að rík­is­stjórnin hefði tekið ákvörðun um að grípa til tak­mark­ana inn­an­lands nú væri að það væri mik­il­vægt að Ísland lenti ekki á rauðum lista.

„Við erum að horfa til þess að það skipti miklu máli að halda þessum smit­fjölda niðri. Það er líka mik­il­vægt, ekki bara fyrir sam­fé­lagið og heilsu okkar allra, heldur líka það að Ísland lendi ekki á rauðum lista,“ sagði Katrín.

Ráð­legg­ingar sótt­varna­yf­ir­valda og hags­munir ferða­þjón­ust­unnar virð­ast því, ef til vill í fyrsta sinn síðan far­ald­ur­inn hófst í upp­hafi árs 2020, ganga hönd í hönd, hvað þessar nýju sótt­varna­ráð­staf­anir inn­an­lands varðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár